Wednesday, July 16, 2008

Til Didda út af Gunter Heim.

Elsku bróðir. Hann Gunther kemur með Margit dóttur sína þann 29. júlí til Keflavíkur klukkan 8.30. Hann spyr hvort þau geti gist hjá ykkur. Pabbi er með netfangið hans og getur sent svar. ég er að verða komin í tímaþröng með minn undirbúning. :) Á t.d. eftir að koma dóti i kassa og út á pósthús, og fleira slíkt. Svo það væri gott ef pabbi reddaði vini sínum, og ekki ég. Hann bíður náttúrlega eftir svari.
Finn ekki netfang Ninu--getur þú sent mér það. Bara á blogginu. Það er best. Er að fara út í bakarí í rigningunni :) setur plönin úr skorðum. Allir hressir og æðislegt að hafa þau Affí og Ella.
Takk fyrir allt. þín Áslaug systir.

2 comments:

Anonymous said...

Ohh hvað ég vildi óska að ég væri að fara með ykkur! saknaðarkveðjur Arnhildur

Anonymous said...

Sæl systir. Það sem er hérna að neðan er inni á síðunni Heimagisting.dk Þar áttu að geta séð þetta allt. Prentaðu þetta nú út áður en þú ferð til Dk. Gott að hafa kort af svæðinu líka af degulesider.dk
Bið að heilsa Affí og Ella og góða ferð til ykkar allra.
METRO og Strætó
Heimagistingin er álíka langt frá miðborginni og Skeifan er frá Lækjartorgi í Reykjavík
VEGALENGDIR FRÁ GISTISTAÐ METRO OG STRÆTISVAGNAFERÐIR
það er 4 mínútna gangur að næstu METRO stöð FEMØREN við Hedegaardsvej
Við Hedegaardsvej eru einnig
Stoppustöðvar leiða 4A, 12 og 78
c.a. 3 mínútna gangur frá gististað
Við Kastrupvej er
Stoppustöð leiðar 2A,
c.a. 4 mínútna gangur frá gististað
ATH:
sömu miðarnir gilda í Metro, Strætó og S Tog
Ráðhústorgið Tivoli & Járnbrautarstöðin:
4 km.
METRO til Nørreport ( skipta um lest ) og þaðan S Tog til Hovedbanegaarden
eða Strætó 2A frá Kastrupvej.
Kóngsins Nýjatorg & Nýhöfn:
3 km.
METRO