Loksins að koma sumarfrí. Og við megum prísa okkur sælar miðað við bæjarana. Aumingja Aldís kemst ekki heim fyrr en í ágúst. Það er að segja ég geri ráð fyrir því að þau taki stefnuna heim til Íslands(?) Úti eru ein 15 stig. Menntskólinn er með Picknick úti framan við skólabygginguna. Svo er dagskrá, og nokkrir verða kallaðir upp til að fá viðurkenningarskjal. Svo fá þau einkunnir afhentar hjá bekkjarkennurunum. Margrét og einir 7 aðrir verða svo að sitja eftir því þau skrópuðu í trúðarbragðatíma í vikunni. Skil ekki vel af hverju þar sem margir skrópuðu í eitt eða tvö skifti þegar Þýskaland var að spila í evrópukeppninni. En hvað um það. Sæki hana allavega klukkan 11. Í mínum skóla er kennsku lokið fyrir hádegið, og sameiginlegur hádegismatur hjá starfsliðinu. Og þá er frí til 21. ágúst.---- :) --------
Eins og við var að búast sofnaði ég aftur í gærmorgun eftir lítinn svefn nóttina áður. En kom mér nokkuð tímanlega í skólann, og gekk frá öllu í skápnum mínum. Það þarf að tæma allar hillur svo hægt sé að þurka af í þeim. Það er sem sagt gert hér í landi eini sinni á ári! Subbur þessir þjóðverjar. Krakkarnir báru með mér öll spilin og púslin í geymsluna þar sem skápurinn minn er. Næstu önn fer ég svo í aðra stofu þar sem við getum bara verið í stofum hjá fyrstu bekkingum. Hin eru með kennslu til eitt tvisvar í viku og meira. Sem sé árlegur flutningur.
Og nú er liðið allt komið á áfangastað, eða ekki hef ég frétt annað. Hugsa til Sellu, og vona að hún nái sér vel eftir þetta.
Og smá vesen með dvöl Affíar í Köben. Eiríkur gleymdi vist að hún væri að koma og húsið er fullt. Tíu manns, og hvergi pláss. Ég er viss um að hann er alveg eyðilagður. Ekki gerði hann þetta að gamni sínu. Diddi hefur vonandi náð í Affí á vellinum áður en hún flaug út í gær, og við bara vonum að hún fái pláss hjá vini Eiríks, sem býr rétt hjá. Æ, hún Affí mín ætti það nú skilið að þetta gangi vel. Eins og hún er búin að vinna fyrir börnin sín og laga til hjá mömmu og pabba.
Æ, þessi tölva. Eitthvað vesen, og sambandið datt út, og helmingurinn af bréfinu þurkaðist út.
Takk fyrir bréfið Hildur mín. Sorglegt að frétta af syni vinkonu þinnar. Það er svo skelfilegt þegar ungt fólk er kallað í burtu. Það er rétt að byrja að lifa lífinu, og á framtíðina fyrir sér. Hversu oft vill maður ekki geta hlíft börnunum við hinni og þessari reynslu, eða fengið að fara í þeirra stað. En við ráðum víst ekki miklu um það. Það eina, sem við getum gert er að nota tímann, sem höfum með þeim eins vel og kostur er á.
Malla mín. Þú verður sett í svefnherbergið okkar Klaus hvort sem þér líkar betur eða verr:) Hin herbergin eru nefnilega of lítil fyrir 4, og við erum svo sannarlega vön að ganga úr rúmi. Ég hlakka mikið til. Vonandi verður veðrið frábært, og allir hressir. Við frænkur tökum svo eina góða ferð í H&M, ekki spurning. Þú færð VANA manneskju í það!
Ég hugsa oft til Sellu, og vona að hún nái sér eftir þetta blóðtappavesen. Ósköp sorglegt að þetta fór svona. En eins gott að þetta gerðist ekki úti.
Ég hlakka mikið til að fá tvær vikur með Margréti minni. Það er bara ágætt að við séum án Klaus. Hann er ekkert fyrir búðarrráp og ættingja. Við gerum bara eitthvað saman i haustfríinu.
Það eina, sem mig vantar, er auðvitað Arnhildur mín. En við sjáumst nú annað hvort um jólin ,eða eftir. Það er ekkert farið að tala um það í alvöru hvað Margrét geri. Hún er eitthvað smeik við íslenska unglinga.
Ástarkveðjur í kjallarann í Sunnuhlíð, og góða skemmtun við að sortera myndir, Gott að þú skulir nú hugsa til mín við slík tækifæri -- :)
Hvað er með Kristínu og bloggið? Er allt í lagi? Og sitja þær Magga móða og Þorgerður bara yfir saumaskap í fríinu, eða hvað? :)
Alveg sérstakar kveðjur til Didda og Sigynar og Diddanna með þökk fyrir að hugsa svona vel um Kristínu Dögg. Og húsamálin fyrir okkur Margréti. Sigyn -áttu ekki flugpunkta til að skella þér bara til okkar!
Velkomin heim pabbi og mamma, og takk fyrir dvölina! Líklega gott að komast heim aftur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ. Í bænum núna að undirbúa Vestmannaeyjarferð. Gistum þar í 2 nætur. Öll nema Eiríkur Hákon. Hann er að fara út úr dyrunum í Vatnaskóg með vinum sínum og verður í viku. Ekki leiðinlegt það en verst að hann kemur þá ekki með út í Eyjar. Erum búin að lofa að fara fljótlega eða leyfa honum að fara á Þjóðhátíð. Eiríkur er að sjálfsögðu búinn að redda húsnæðinu, þurfti bara að ýta gestunum sínum aðeins til og þetta var aldrei neitt vandamál nema í hausnum á mér. Við förum svo beint í bústaðinn aftur þegar heim kemur. Sendi ykkur myndabréf fljótlega.
Diddi
Lesið fyrra bréf varlega því ég skrifaði "út í Eyjar" en kona mín vill að ég skrifi "til Eyja". Get það auðveldlega en mín tilfinning er sú að hitt sé líka rétt. Hvað segið þið?
Diddi
Til lukku með að vera komin í frí.Er á Ak.núna og hér er þoka en á mánud.var 16°st. í Mývó en svarta þoka hér.Lagaðist aðeins seinni partinn í gær.Fór á Glerárt. með HV og HM í gær,löbbuðum því ég geymi bílinn í Mývó.Fórum í búðir og enduðum með að fá okkur hammara.Það þarf nú aðeins að sp.þessum barnab.þegar þau eru loks hjá manni.Það væri nú ekki slæmt að vera með ykkur mæðgum í Köben, en þú verður bara að drekka nokkra bjóra fyrir okkur og fá brjálæðisverslunnarkast í H og M. Kveðjur frá öllum Magga móða.
Post a Comment