Laugardagur, klukkan að verða 12. Held ég hati rigninguna, sem var að rennbleyta þvottinn, sem ég gat ekki hengt upp í gær fyrir rigningu. Setti svo út áðan í glampandi sól, og varla komin inn fyrr en hann tók til eina ferðina enn :) Klaus segir að það séu til verri hlutir en blautur þvottur:):)
Já, við erum sem sé komnar í frí við mæðgur. Ekki hefur þó vinnan minkað, enda var verið að taka til áður en Affí kæmi. Eða að minnsta kosti að reyna það:) Eldhúsið er ferlegt, og líklega fer ég í það í dag. Þegar bæði Affí og Malla koma verður maður nú að þykjast vera þrifinn :)
Margrét þurfti ekki að sitja eftir nema í tíu mín.á miðvikudaginn. Kennarinn sagði að þau hefðu átt að segja henni að þau hefðu skrópað og út af hverju, ekki bara fara. Hver tilkynnir skróp fyrirfram:)? Margrét fékk viðurkenningarskjal fyrir enskuframmistöðuna. Og var ósköp ánægð með það. Maria kom heim með henni, og við skutluðum henni heim í leiðinni til Gifhorn til tannlæknis. Margrét fékk teygjur, sem eru frekar ömurlegar. Varla hægt að opna munnin almennilega, en hún er dugnaðarforkur, og ber þetta allt með þolinmæði.
Við tókum svo hennar herbergi í gegn á fim., og skruppum svo í bæinn til Bs. Ætlaði að redda sætismiðunum til Köben, en það er enn vesen hjá Dönum í tölvukerfi lestanna, og við fengum engin sæti. Skruppum í búðir, og keyptum--þrátt fyrir áform um mikinn sparnað--3 boli á tilboði í Vero Moda. Svo var rennt til Ikea. Þar keypti ég tvenn sængurverasett, sem ég þvoði í gær, og sendi Affí með til Köben. Við notum þau svo þar líka, og skiljum eftir handa Eiríki sem smá þakklætisvott fyrir íbúðarlánið. Þau eru örugglega í stíl aðdáenda nútíma listamanna. Eins og léreftspoki á litinn, og vantar bara smá rauða bletti til að minna á ryðbletti. Smá joke :)
Aumingja Sigyn að vera komin inn í svona íhaldssama famelíu, en gott ef allir geta gert að gamni sínu, ekki satt. ( Í alvöru eru þetta fína sængurföt:) )
Svo í gær var þrifið af krafti. Enda öll gólf skítug, og baðið ferlegt, og svo framvegis. Affí hringdi svo um hádegið. Hvort þessi þrjú, sem með eru í ferð, gætu fengið gistingu hérna í bænum. Ekkert mál. Þau komu svo öll hingað, og miklu fyrr en ég hélt. Var ekki búin að komast út í búð að ná í bjór, og átti bara bjór með sítrónublandi. En þau drukku hann nú, og fengu svo hvítvínið góða, sem mamma er alveg forfallin í :) Og fengu kaffi og kex. Heldur lélegar veitingar.
Svo fylgdi ég þeim til Ahnsen, og þau fengu rosa sæt herbergi í litlu "Playmobil" húsi. Huggulegt, og tandurhreint. ( 70 fyrir tvo, 40 fyrir einn)
Við Affí og Elli skruppum svo út í búð. Elduðum saman kalkúnbringur og vorum með osta, kex og vínber. Voða notalegt, og mikið spjallað. Þau fóru svo af stað fyrir tíu í morgun, og hlökkuðu mikið til að fara til Köben.
(Ég veit að þið trúið því ekki að ég sendi með þeim smá af mat handa okkur Margréti svona til að hafa þegar við kæmum fyrsta kvöldið, og til að spara smá :) :) :) )
Þau vildu ekkert nesti nema eitt rúndstykki og eina kók. Nægjusamt lið.
Þau eru á þessum fína Benz, og verða líklega að borga skaðabætur þar sem Affí er búin að gera svo mikil för í gólfið eftir að Elli ók 150 á hraðbrautinni--ha, ha, ha.
Margrét var farin til Birthe til Celle rétt um tíu mín. áður en þau komu. En þau sjá hana nú eftir helgi. Kannski gistir hún líka í nótt. Fæ hringingu á eftir.
Klaus er reyndar að fara að gera skattayfirlitið á eftir. Batnandi manni er best og svo framvegis.
Hann Vigfús tengdasonur á afmæli í dag.
Til hamingu með daginn Fúsi minn !!!!!! Mér skilst að þau Arnhildur hafi farið í útilegu í gær. Vona að þau skemmti sér vel.
Jæja. Klaus bíður eftir tölvunni. Góða helgi og hafið það öll gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gott að vita til þess að ekki verður matarlaust í Kaupmannahöfn þegar þið mæðgur komið þangað. Hjúkk - var alveg dauðhræddur um einmitt þetta atriði. En Birmavej 54 b er i byggð og fremur stutt í Irmabúð, ekki langt í Netto og svo bakarí og sjoppa þarna líka. En Randi er í kjallaranum og númer hans er 004551366728. Þú hefur samband við hann og færð lykil hjá honum. Prentaðu svo út kortið hjá heimagisting.dk og þú getur líka skoðað þetta umhverfi með því að fara inn á degulesider.dk og skoðað kort af Birmavej. Svo verður þú bara í sambandi ef eitthvað er óljóst. Kv. úr rigningunni við Álftavatn þar sem frúin er að deyja úr strengjum í maganum eftir glæsiferðir í spranginu.
Diddi
Það verður fjör hjá ykkur mæðgum í Köben, ekki spurning :o).
Ég er á leiðinni í Mývó á morgun... setti inn yfir 400 myndir á heimasíðu gormanna minna í gær.
Hafið það gott, kemst sennilega ekki í tölvu fyrr en um miðjan ágúst aftur :þ
Verð að fá nánari lýsingu á þessu fyrirframákveðna skrópi Margrétar... skil ekki alveg :S
Já og til lukku með daginn Fúsi :o)
Til hamingju með afmælið Fúsi - ég klikkaði á að kíkja í búðina til Arnhildar meðan ég var á Akureyri, og ég sem ætlaði að lýsa nánar fyrir ykkur tröllatussunum...
Hitti þau hjónaleysin þó á förnum vegi, hress og kát. Fínt sumarfrí fyrir norðan, Dagur Elís reyndar með magapest allan tímann :(
Vorum að koma heim eftir frábæra Húnavöku á Blönduósi, vorum 25 saman þar hjá Ásdísi Arinbjarnar (frá Brekku...) Kvöldvaka og brekkusöngur, HM og DE tóku þátt í söngkeppni og Helga komst í 6 manna úrslit. Enduðum svo á sveitaballi með Sálinni hans Jóns míns, Hildur tjúttaði þar með foreldrum sínum ;)
Hafið það gott í Köben, hefði viljað vera þar með ykkur...
Við Fúsi skelltum okkur bara á Eistnaflug á Neskaupstað og chilluðum með Aldísi og Bósa. Gistum svo lau.í Atlavík í mígandi rigningu-en samt hlýtt-og komum heim á sunnud. og Kristín Dögg kom svo heim 2 tímum á eftir okkur með flugi. Svo fékk Fúsi tvær íslenskar hænur í afmælisgjöf frá Huldu í slökkviliðinu...hann ætlar að græja kanínukofann fyrir hænurnar..!AARrrghhh! Og Gummi ætlar að heimsækja okkur í nýja húsdýragarðinn á Akureyri...gæti lamið Huldu núna! En annars bæ í bili ykkar pornodog Arnhildur
(the pornodog verður til sýnis milli klukkan 10-18 í Adam&Evu Sunnuhlíð)
Post a Comment