Kominn sunnudagur, og hann er farinn að rigna. Eftir að við Margrét vorum að vökva vel og vandlega. :) Ég var að hreinsa beðin framan við húsið í eina 3 klukkutíma. Fékk góðan félagsskap af Sonju. Hún borðaði gamalt rúndstykki og svo eitt heitt úr ofninum þegar ég hitaði morgunmat handa dóttur minni, sem svaf til hálf tólf :) Pesónulegt met, eða þannig.
Það er ósköp tómlegt hérna eftir að pabbi og mamma fóru. En ekki vantar verkefnin og okkur leiðist ekki á meðan.
Það var nú meira hvernig þetta gekk nú allt saman. Fyrst fékk pabbi ekki pláss í Hannover þó að þau væru bókuð. Endaði með að hann sat á fyrsta farrými, en mamma hjá fátæklingunum. En svo fannst ekki taska mömmu, og þegar þetta er skrifað er ég ekki búin að fá neinar jákvæðar fréttir af því máli. Þeir vita ekki einu sinni hvert hún fór, eða hvort hún er enn í Hannover. Heldur betur ergilegt, og mamma situr uppi í Reykjavík án fatnaðar og snyrtiveskis, og vantar gjafirnar handa barnabörnunum. Meira vesenið.
Við Margrét vorum latar á fö. Nenntum ekki að baka fyrir heimsókn Susanne og co. Ég fór svo á fætur klukkan 8 í gær, og lagaði til, og bjó til tvö salöt. Svo var grillað í besta veðri. Og í kaffinu voru grillaðir bananar með ís. Sonja og Lukas voru hér sem gráir kettir. Fullt af pólverjum við hliðina, og fjör að vanda. Lúkasi tókst að skella einu af fínu glösunum frá Íslandi um koll, og nú á ég ekki lengur strákinn. Verð að redda mér því seinna.
Carolin kom með Leonie, og lét hann biðjast afsökunar. Hún stansaði lengi og ég hélt á þeirri litlu og mikið var spjallað úti í besta veðri. Svo kom Marko. Amma hans var að deyja. Hún var á sama aldri og pabbi svo ekki var hún neitt fjörgömul. Foreldrar Enno fóru til Ítalíu. Jörgen gaf Sabine gistingu á hóteli í tilefni af 10 ára brúðkaupsafmæli. Gæti maður fundið til smá öfundar--hm,hm. sniff.
Töluðum lengi við Arnhildi í gær. Hún er nokkuð einmanna á Akureyri þar sem allir eru í burtu. En hún þraukar og ég dáist að henni að geta unnið í dimmri búð, án dagsljóss. Hún sem þarf nú á því að halda. Held að hún verði að taka sér einn ekstra frídag fljótlega.
Og Affí að fara að koma. Hún ekur svo til Köben, og fer í íbúð Eiríks. Kemur víst um 14. til okkar á leiðinni suður eftir. Og við Margrét stefnum á að fara þá til Köben þann 18. júlí. Og vera í einar 2 vikur. Ef Eiríkur þarf ekki á plássinu að halda. Við erum nú svo nægjusamar að við þurfum ekki mikið pláss :) ---Hvað er Malla að tala um. Allt í einu barasta er hún að stefna á Þýskaland, og ég hef ekkert frétt. Við erum þá kannski ekki heima á þessum tíma. Hvert farið þið, eruð þið með strákana og hvað verðið þið lengi????????
Það væri nú ergilegt ef þetta rækist á, og við misstum af ykkur.
Hjólatúrinn féll niður hjá skólanum hennar Margrétar. það var algjört úrhelli á föstudaginn. Á morgun er svo partý hjá Tankumsee, til að kveðja kennarann. Og bekkinn. Öllu breytt í haust.
Ég tek að mér að aka Leu og Natalie með Margréti, og svo koma þær heim með mömmu Leu. Lít þá inn til Hildegard og Hannelore.
Nú er hann gjörsamlega að hella úr öllum götum að ofan. Heldur betur regn.
Hef nú ekki staðið mig í afmæliskveðjunum. Mundi vel eftir Helgu Margréti í lok júní, en kom aldrei í verk að pikka kveðju. Elsku Helga--við óskum þér alls hins besta, og vonum að þú hafir það gott í kuldanum í Mývatnssveitinni. Og eins bestu kveðjur til Didda og Sigynar--til lukku með giftingardaginn þann 4. júlí.---- :)
Sólin að koma fram. Engar þrumur. Ætli það sé ekki best að laga til í eldhúsinu. Nú er engin mamma, sem sér um það :) :) Bestu kveðjur til ykkar allra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
við stefnum á að fara út í vikunni 28 júlí og vera í ca 2 vikur, byrjum líklegast á því að skoða fóðurbílinn, tekur einhverja daga og svo væri gaman að ná nokkrum dögum með ykkur. Við förum öll 4, ferðatilhögun skýrist þegar nær dregur,hvert við fljúgum t.d. En miðað við að þú takir 2 vikur frá 18.júlí þá ættir þú að vera komin ;) Við heyrumst þegar ég veit meira um þetta allt saman.
Sko þetta að mig vanti dagsljós-já og sólarljós-já, en það vantar það nú alla hér á Ak. miðað við veðurfar undanfarið! Takk fyrir að vesenast fyrir mig og mína fjölskyldu, þrátt fyrir lítinn tíma!!Sérstakar kveðjur til Þórdísar (ef hún sér þetta)fyrir pössun á dóttur minni-og Didda&Sigyn fyrir núverandi pössun á dóttur minni! Vöruúttekt í boði fyrir pössunina!
Kveðjur Arnhildur
í dónabúðinni að selja dónavörur og dónadót fyrir dónafólk
Post a Comment