Tuesday, July 8, 2008

Vantar svefntöflur.

Fer að styttast í þriðjudagsmorguninn, klukkan að verða tvö um nótt. Og ég hef ekki náð að sofna enn. Gefst bara upp og sest við tölvuna. Þegar ég er komin í bólið fer ég að hugsa og hugsa, og næ ekki að slappa af. Verð líklega að fara í erfiðan hjóltúr á kvöldin svo ég verði þreytt:)
Það hefur verið rót á huganum undanfarið, en nú er allt að smella saman. Mamma fær vonandi töskuna í fyrramálið. Hún "brá" sér til Las Palmas, og svo til London. það er svo sannarlega þungu fargi af manni létt. Og svo var ég að kaupa lestarmiðana til Köben. Húrra!!! Ég hlakka svo mikið til, en eftir síðustu reynslu með ferð til Köben er einhver kvíði í mér að eitthvað komi uppá. En ég reyni að hugsa bara jákvætt. Og svo smellur allt saman með heimsókn Möllu! Húrra líka fyrir því. Malla mín. Þú ert meira en velkomin, þú VERÐUR að koma! :) Við höfum náttúrlega ekki upp á mikið að bjóða. En þið fáið svefnherbergi okkar Klaus, og það er alveg sæmilegt. Svo pöntum við gott veður svo strákarnir geti verið úti sem mest. Sendum svo Össa með þá í skemmtigarðinn hérna rétt hjá eða í sund, og við dömurnar förum i góðan innkaupaleiðangur til BS Alveg pottþétt. Verst að íbúðin verður sjálfsagt á hvolfi eftir dvöl mína í Köben, en það verður að hafa það. Malla, þú verður ekki dómhörð við gömlu frænku:)
Við förum upp úr klukkan tíu þann 17., eða á fimmtudaginn í næstu viku. Ef ég skildi Affí rétt, fara þau Elli þann dag suðureftir. Ég tók þennan dag því daginn eftir kostaði farið 100 evrum meira. Nóg er nú að borga rúmlega 300 evrur. Og heim komum við svo fim., þann 31.7.
Það var úrhellis rigning í dag í fleiri skifti. Margrétar bekkur hætti við að fara til Tankumsee, og voru i staðinn hérna við útisundlaugina. Hún fékk nokkra skúra á sig. Kom svo heim fyrr en hinir því henni var eitthvað illt i maga. Ég ók hins vegar til BS og fékk miðana þar. Færði svo Klaus sokka og boli þar sem hann fékk nú bara einn disk i afmælisgjöf. Annars er ég að spara. :)
Skrapp yfir til Sabine, mömmu Enno, með hvítvínsflösku í tilefni af tíu ára brúðkaupsdeginum. Hún gaf mér feyðivín og ég stansaði um stund. Á meðan kom Enno rennandi blautur og Lukas baðaði sig í pollinum. Ég er að þvo mér sagði hann, alsaklaus:)
Á morgun er síðasti vinnudagur minn. Margrét er í skólanum til klukkan tvö. Svo til 11 á miðvikudaginn. Ég ætla svo í skólann snemma á morgun til að laga til í draslinu mínu--ef ég get haldið mér vakandi eftir þessa nótt.
Voðalega er að sorglegt að Sella geti ekki farið með Ingó út til Spánar. En það er ekki að spauga með blóðtappa, -ef það er það, sem þeir óttast, og flug ekki það besta i því sambandi. Hún er örugglega voða leið, og ég dauðfinn til með henni. Veit nú af eigin reynslu hvernig það er þegar búið er að plana frábæra ferð og maður kemst ekki. En stundum er lífið svona.
Jæja. Kannski ég nái að sofna. Hafið það gott, og góða ferð til útlanda þið systur mínar og famelíur!
Góða ferð til Vestmannaeyja Diddi, og Kristín Dögg og allt það lið, og góða ferð norður pabbi og mamma. Góða nótt þið öll :)

3 comments:

Anonymous said...

Góð bók er líka ótrúlega góð ef maður getur ekki sofnað, já og heit mjólk með hunangi, já eða Bailís ; )
Mikið eruð þið annars heppin þarna norðanlands að vera að byrja í sumarfríinu, við hérna hinu megin eigum eftir að þrauka í fjórar vikur til viðbótar...
Og mikið vona ég að þið mæðgur eigið eftir að hafa það gott og skemmtilegt í Danmörkinni.
Bestu kveðjur, Aldís

Anonymous said...

Svefntöflur eru líka ótrúlega góðar-maður bara sofnar!! Mér verður víst ekki óskað góðrar ferðar neitt..nema kannski á klósettið..þar sem ég er ekkert að fara útúr bænum! Var beðin um að hafa heimakynningu í Hnífsdal(rétt hjá Ísafirði..)en Valdi bigboss sagði að við tækjum 60þús.kall fyrir það þannig að þær hættu við(flug,uppihald,kynning...) En ég ætla að halda áfram að raða þessum skemmtilegu dönsku klámmyndum uppí hillu-er mikið hugsað til mömmu með tillunum...nei titlunum..Sex over 50, Ung og gammel mödes, Skandinavian sexfest-volum 3 og 4 og 5, Pigesex....hehe legg ekki meira á ykkur í bili..jors trúlí Arnhildur i smugfilmer

Anonymous said...

Vona að ykkar ferð til Köben verði æðisleg, ég er að ýta á Össa að ganga frá ferðinni..... læt heyra í mér um leið og ég veit eitthvað. Þið þurfið ALLS EKKI að ganga úr rúmi fyrir okkur, dýnur nægja alveg ;) Hlakka svakalega til!!