Wednesday, July 2, 2008

Er að komast í 33 stig.

Elsku frændfólkið mitt í sælunni á hásléttu andans, sem sé Mývatnssveit. Vildi að ég gæti sent ykkur ein 15 stig af okkar 25, sem er að fara að hækka í 33. Og við sem erum að fara til BS í siðustu og hörðustu innkaupaferðina, sniff, sniff. Takk fyrir allar kveðjurnar til hans Klaus míns. Þetta var meiri afmælisdagurinn. Ég var svo þreytt eftir allt stússið að ég var farin i rúmið klukkan 9, og alveg sprungin á því. En Klaus fékk samt mozzarella ost og tómata í kvöldmatinn, með sítrónubjór. Margrét fékk góða skoðun hjá tanna. Hrós fyrir vel burstaðar tennur. Fær svo nýjan vír eftir viku. Þá fer ég líka til hans til að láta kíkja á mínar tennur, sem skekkjast daglega :)
Höfðum klukkustund í bænum til að versla. Diddi--- passar FAF ekki í 164, er ekki 170 of stórt handa honum????????? Og svo var bara til 146 á Örn, er það ok., eða ættum við að gá betur í BS í dag??????????????????????????????????????
Arnhildur mín--- takk fyrir kommentin þín. Hvað á ég að senda honum tengdasyni mínum í afmælisgjöf frá grimmu tengdó???????? Vörurnar frá H& M ekki komnar enn. Stress, en við keyptum bara viðbótar bikiní handa Ástu til að hún fengi það pottþætt fyrir ferðina. Alltaf hægt að senda til baka. Verra með Guðnýju, finnum ekkert af hennar óskum í búðunum, en kannski við finnum eitthvað í dag.
Átti að vera að hjápa til í menntaskólanum í dag. En þeir þurftu svo ekki á mér að halda.
En vitiði hvað----Margrét gæti farið til annarra landa--t.d. Íslands, og verið þar í hálft ár eftir jólin, sem sé seinni önnina. Hún fær meðmæli að mega sleppa einu skólaári sökum góðrar frammistöðu. Hvernig væri að við slepptum jólaferðinni, kæmum mæðgur heim í janúar, skildum Klaus einan eftir. Ég færi að vinna, Margrét í skóla, Klaus kæmi um páskana, og við svo til Þýskalands í júnílok!!!!! Klaus gæti tekið fríið sitt í júní ef hann vill.
ER ÞETTA EKKI POTTÞÉTT. :) :) :)

9 comments:

Thordisa said...

Til lukku með þinn eiginmann í gær náði aldrei að hringja í ykkur var á fullu fram undir kvöldmat. Núna er verið að klára allt sem klára þarf fyrir utanlandsferðina og eins er ég að redda mér bókum fyrir skólan, tala við LÍN og fleira. Hlakka til að fá pabba og mömmu heim og ekkert stress ef þið finnið ekkert fyrir Guðnýju þar sem við erum nú að fara út.En það má alltaf finna sætan bol handa henni

Anonymous said...

Sko ég veit ekki alveg með þetta nýja ferðaplan ykkar-því ég verð að fá hana Margréti mína til mín um jólin...mig er búið að hlakka svo til að fá hana um jólin...sniff snöft, en auðvitað ef hún vill koma í jan.þá má hún það! En þá verður hún að vera komin fyrir 16 ára afmælið sitt-ég er nefnilega búin að leigja hlöðu,panta 20 lítra af landa og panta slökkviliðsmannsstrippara!! ekki Fúsa samt..og stripparinn er reyndar uppblásinn..en þú skilur!
kveðja Arnhildur

Anonymous said...

Já og með karllufsuna mína, þá geturðu bara gefið honum einhvern Body Shop ilm-eða andlitsskrúbb eða hauskúpu sokka.Hann yrði mjög ánægður með það!

Anonymous said...

Gvöööð, ég vil komast í þetta 16 ára afmæli, er ekki möguleiki á að Fúsi komi í staðinn fyrir einhvern gúmikarl??? Eruð þið að tala um að Margrét geti skeppt einni önn með því að fara eitthvert annað í skóla, skil þetta ekki alveg, og hvers vegna í ósköpunum ætti hún að vilja fara í ísl. skóla, hvað með kúrs í París, eða Barcelona... ég bara spyr? Ertu alveg búin að gleyma hvernig veðrið er hér á fróni í jan-mars?? Þau gömlu um það bil að bresta heim, vonandi bara gaman hjá ykkur. Sendi ferðaplönin mín þegar ég er sjálf búin að skoða hvernig þau eru he he. kv affí

Anonymous said...

Til lukku með afmælið Klaus !! Smá eftir á, ég er nefnilega með sömu afmælisgenin og Affí..... man ekki marga afmælisdaga....
Líst vel á að þú verðir á fróni í hálft ár, það slær þá bara á heimþránna seinna meir ef veðrið er slæmt í jan-mars eins og Affí vill meina. Kíldu á þetta !!

Anonymous said...

Ég býst við að þið séuð á fullu að pakka fyrir gömlu og að jafna ykkur eftir allar búðarferðirnar..en þið megið hugsa hlýlega til mín-verð með heimakynningu fyrir 10 konur á lau.kvöld og var með kynningu fyrir 14 konur síðustu helgi(og það var frekar ömurlegt-geðveikt fyllerí á þeim), so I need your happy thoughts..please send to Arnhildur Verslunarstjóratröllatussa

Anonymous said...

HæHæ.... er að vinna og varð bara að koma að smá brúðkaupsafmæliskveðju til Sigynar og Didda :o) til lukku með 4. júlí :þ (já og Affí... ég man ekki alla afmælisdaga og alls ekki öll brúðkaupsafmæli en það er ekki hægt að gleyma að Diddi hafi kvænst á þjóðhátíðardegi USA :þ)
kv
Kristín E. í vinnunni :S

Anonymous said...

Jæja nú stefnir allt í að við fjölskyldan séum að fara til Þýskalands í lok mánaðarins, verðið þið heima ;) Kv. Malla
Ferðatilhögun er enn óljós en við förum að sækja fóðurbíl til Sittensen og svo verðum við áfram í fríi í Þ.landi

Anonymous said...

Bara allir að fara til útlanda..nema ég-dóttir mín er meira að segja að fara til útlanda..eða sko Vestmannaeyja,en Fúsi segir alltaf við systur sína að gleyma ekki vegabréfinu svo hún komist í land!! Ég villl líka fara til útlanda...og hitta hana Maggý mína! Saknaðarkveðjur Arnhildur-sem sér ekki rigninguna í vinnunni sem er geðveikt jákvætt!!