Mikið er ég fegin. Það kom í ljós að þetta var bara venjulegt kalk, sem sást á myndunum í brjóstaskoðuninni. Þeir vilja bara fylgjast með þessu áfram og ég fer eftir 6 mánuði í myndatöku. Bara til að vera viss.
Svo það var frekar ánægð kona, sem ók heim með manninum sínum. Við komum við í bakaríi og fengum okkur svo snarl áður en við renndum til BS. Þar átti ég nefnilega tíma hjá húðsjúkdómalækni til að láta líta á fæðingarbletti. Hann var ekki í mínútu að kíkja á þetta og gaf sinn úrskurð að allt væri í lagi. Svo ég held að ég geti bara horft björtum augum framá við, ekki satt.
Margrét hringdi í okkur áður en við fórum til BS. Hún má ekki vera að því að spjalla á skæpinu þar sem það er svo mikið að gera:) Hún gisti á laugardaginn og sunnudaginn hjá Stefáni Erni, og var voða ánægð með það. Hitti allar stelpurnar. Henni líkar mjög vel við Guðrúnu Björgu, sem er ótrúlega indæl. Náttúrlega sú elsta og kannski mesta mamman í sér ennþá. Ég er svo fegin að þau séu svona indæl við Margréti og gott að vita af þeim þarna í nágrenninu.
Margrét á eftir að segja ykkur frá skírninni, en þar sem sumir kunna ekki ensku má ég kannski segja smá:) En geri það samt bara eftir að hún er búin að skrifa sit tblogg:)
Í dag vann hún fyrri partinn. Fór svo snemma til Drammen að kaupa bækur fyrir norskukúrsinn og ætlaði í banka. Fyrsti tíminn í kvöld og við spennt að heyra hvernig henni líki. Á morgun fer hún til Oslo í bíó og á miðvikudaginn aftur í norskutíma. Svo hún er á fullu fram á fimmutdaginn. Gott mál það.
Við Klaus vorum ekki lengi í BS í dag því hann rigndi mest allan tímann. Ég keypti mér samt rándýrar brúnar gallabuxur, á 70 evrur, og belti við, á 25 evrur. Og sko ekki nóg með það. Fann 2 bækur um hvernig maður fari að því að sauma töskur, sem mig langar mikið að prófa. Reyndar eru textarnir við þetta frekar flóknir, en maður hlýtur að geta notað þessa heilbrigðu skynsemi, hehehe.
Engar berjatertur hjá Möwenpick svo við keyptum bara kökur til að taka með heim og svo uppáhalds tesortirnar.
Sólin komin fram , en spáin ekki sérstök.
Í fyrramálið fer ég til sálu minnar í Gifhorn og spjalla þar um vandamál lífs míns:) Og svo er vinnan og tiltekt heima þar á eftir. Ætla að taka mér það sem verkefni næstu viku að fara í klippingu og kaupa efni í töskur. Ef hún Didda Jó væri nú nærri, og ekki tala ég um hana Maddý mína! Þá væri ég ekki á flæðiskeri stödd.
Hef þetta ekki lengra að sinni. Hafið það gott. Og takk fyrir öll kommentin!!!!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Kom því meira að segja í verk að lesa bloggið þitt í kvöld. þetta gengur nú samt ekki hvað ég hef lítin tíma til að kíkja á netið :) hehe
heyrumst fljótlega aftur !! elska þig rosa mikið bestasta mamma. og þú mátt endilega segja frá öllu sem ég geri á blogginu þínu. ég nenni bara ekki að skrifa allt á þýsku og íslensku þannig að ég er mjög ánægð ef að þú bara þýðir kannski fyrir íslenska fólkið :)
á blogginu mínu meina ég :)
Margrét hefur heldur betur slegið í gegn í Norge :) Gott að allt gengur vel. Hér er dásemdar veður þó það rigni aðeins,ég var að vísu að vinna alla þessa vikuna, en dásamlegt að vera úti á þessum árstíma þegar veðrið er gott. Allir að hressast hér, AD betri eftir að hún fékk aftur lyf við kvefinu. Allt að fyllast af fiðrildum, má varla opna út þá svífa þessi grey inn, tilheyrir á þessum árstíma. Annars allt í góðu hér, kveðja í bæinn og knús á Klaus. Þín sys affí
jæja.. GOTT að það er nu i lagi með þig elsku frænka.
Mér finnst frábært að margret spilaði á píano og söng i kirkjunni!!
hún er svo frabær;)
I dag er lika rigning her en eg væri miklu frekar til í að vera í þyskalandi i rigningu heldur en islandi haha.
kv.gudny
Post a Comment