Oft hef ég kvartað yfir því að hafa ekkert að gera á morgnana og vera hér ein heima. Lengi að koma mér fram úr bælinu og löt í þokkabót. Maður er svo búinn að venjast rólegheitunum á morgnana og hefur komið ýmsu í verk í svona án mikilla loftkasta:). En nú var verið að bjóða mér vinnu sem fylgdarmaður með fötluðum strák í 5. bekk.-- Hann er bróðir stelpu, sem var hjá mér í fyrsta gæsluhópnum. Mamma hans á veitingastað í Ahnsen og líka veitingastað hér, sem kallaður var kartöfluhúsið. það var lagt niður og breytt í dagheimili fyrir fólk með Allsheimer. Mamman hitti mig úti í búð og sagðist straks hafa hugsað til mín. Rauði Krossinn borgar fylgdina en ekki er búið að finna neinn enn fyrir strákinn.
Já, og hvað nú? Kostur: vinn mér fyrir peningum, hef verkefni og kem mér framúr á morgnana.
Gallar : vil ekki hætta í gæslunni, en etv. hægt að skift þessu eitthvað á milli. Strákurinn er alla daga á morgnana og tvo daga fram að kaffi. Verst er að ég þarf á fætur svo snemma--hann byrjar klukkan 7.30. , eða það hélt mamman. Veit ekki hvað Klaus minn segir við því:) Og svo vandinn þegar fer að frysta--hvernig kemst ég þá á milli?
Það er aðalvandinn!
Já, ekki allt svo auðvelt!
En annars er allt í gúddí eins og Maddý segir. Fór í gær til læknis þar sem ég var svo slæm í hálsinum. Svaf lítið um nóttina. Er þá með vírus,sem leggst á einhver bönd bak við hálskirtlana. Fékk dropa við þessu ,sem ég tók á klukkutíma fresti og þeir svínvirkuðu. Svaf hin hressasta í nótt og finn varla fyrir neinu.
Skrapp til Frau Kühle í gær og borðaði morgunmat með henni og barnabarni hennar, Niklas. Mamman er fyrrverandi kærasta Ulli, eldri sonar Frau Kühle,og var að eignast barn með nýjum kærasta, og það er svo allt dottið uppfyrir. Hún er núna með báða strákana hjá Frau Kühle og verður í 2 vikur.
Renndi þá til Gifhorn og fékk lyfseðil hjá kvennsjúkdómalækninum mínum, og kom við í "Góða hirðinum" með troðna hjólatöskuna. Þau tóku við öllu fegins hendi.
Fékk mér sveskjuköku og kaffi á litlu kaffihúsi og slappaði af um stund áður en heim var haldið.
Klaus kom mjög seint heim. Alltaf nóg að gera hjá honum. Spjölluðum við Margréti, sem ætlar í dag til Drammen. Alltaf nóg að gera hjá henni.
Var svo að skæpa lengi við Didda. Frábær uppfinning þetta skæp.
Úti eru þrumur og þvílíka hellidemba. Klaus var að koma heim og nú ætla ég að hella upp á kaffi og bera fram keypta köku--auðvitað með sveskjum að hætti árstíðarinnar.
Læt ykkur svo vita hvað úr þessu öllu verður. Allavega gaman ef fólk vill fá mann í einhver verkefni og hefur álit á manni.
Hafið það gott og eigið góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
gaman að vita hvað blogg-lesendurnir skrifa við þessu vinnu tilboði ...
elska þig
Margrét
Spennandi að nú farir þú loksins að komast að því að þú sért eftirsótt :o) þú ert svo yndisleg elsku frænka :D
En ekki get ég hjálpað til við ákvörðunina, hana verður þú víst að taka sjálf.
Bið að heilsa Klaus og njótið lífsins saman... það er rétt hjá þér að auðvitað er erfitt að dæturnar séu fjarri ykkur en svo er yndislegi hlutinn að sjá þær þroskast og fullorðnast :D
Gangi ykkur vel elsku frænka
kv
Kristín E.... í vinnunni eins og alltaf hehehe
Post a Comment