Wednesday, August 3, 2011

Aftur blogg frá dóttirini :)

Ætlaði bara að leyfa ykkur að vita að ég er miklu bjartsýnari í dag. Það var skemmtilegt kvöldið hjá okkur í gær. Fjölskyldan var með vini í heimsókn og við sátum úti, borðuðum og það var hlegið mikið. Þegar það er svona mikið af fólki í kringum mann þá hættar maður líka að hugsa stanslaust um hlutina. Litlu börnin eru æðisleg og það er gaman að knúsa þau, þótt að þau geta auðvitað líka verið erfið. Ég lít þá bara á strákinn sem verkefni eins og þið hafið öll ráðlagt mér og kannski venst ég því líka bara hvernig hann er. Hann hefur líka verið rólegari þegar við höfum verið tvö þótt að það hafi ekki verið oft undanfarið. Erfitt þegar mamman er alltaf með líka :)
En mér líður vel í dag og ég fór í hressilegan göngutúr með i-poddinn stillt auch glaðlegu lögin. Svo hlakka ég rosa til að fara til Oslo á morgun og hitta Christine og Björn og hitta svo au-pair stelpuna 13. águst og hlakka líka til að byrja í norskunámi í lok águst.
Sakna ykkar samt :D
Yngri dóttirin

2 comments:

Anonymous said...

Mikið er þetta nú hressilegt blogg ástin mín. Áfram svona:) Mamma.

Anonymous said...

Flott, þetta verður bara fínt :) Kv affí