Wednesday, August 3, 2011

Við mæðgur í bloggstuði.

Held ég verði að neyða mig til að setjast smá niður og þá er gott að bogga bara um stund. Er nefnilega búin að gera svo mikið úti í garði. Klaus á eftir að skamma mig hressilega þegar hann kemur um 7 því ég klippti niður runna og nú er tómlegt að horfa á staðinn, sem hann var á. Hann er framan við skúrinn og vex eins og brjálaður á hverju ári. Og ég nenni ekki þessu endalausa striti með þessar plöntur, sem vaxa svona geðveikislega. Ætla bara að taka runnann í burtu í haust og setja fallegar klifurplöntur í staðinn. Og hananú:)
Svo þvoði ég útidyrahurðina og eldhúsgluggann-það er bara glampandi fínt útsýni þar í gegn:) Tók hálf visin blóm úr kassanum og setti þau í beðið og kannski þau geti glatt mann þar smá. Og á morgun ætla ég að kaupa ný blóm fyrir eldhúsgluggasilluna.
Veðrið er frábært. Það voru um 28 stig, en þar sem himininn var nokkuð skýjaður var ekki svo heitt.
Fór í morgun á hjólinu og gaf kisa. Vökvaði blómin og skrapp í leiðinni í kirkjugarðinn og vökvaði fyrir Frau Kühle. Svo spjölluðum við Margrét í hádeginu á skæpinu og það er nú gott að hljóðið henni er mun hressilegra.

Í gær átti Daniela afmæli. Klaus sótti mig og við fórum til hennar í lasagne. Gáfum henni pening því hún vill helst bækur og velur þær sjálf. Susanne og Gregor voru líka. En Ramona var heima. Fékk sýkingu út af heyrnartæki, sem hún fékk meðan verið var að gera við hennar.

Ætlaði að ná í sólgleraugnaumgjörð, sem Margrét á að fá. Hún fékk sér sólgleraugu með hennar styrk. En svo kom í ljós að skrúfurnar eru ekki alveg í lagi og hún fær því nýja umgjörð. Fór samt með hin út. En akkurat á miðvikudögum er lokað:) Og svo fór ég með bækur á bókasafnið til að gefa ef þau vilja-og þá er bara lokað allt sumarfríið:)

Fór í gær með bílinn í skoðun. Hann komst ekki í gegn. Eitthvað með Vorderachse- bremsur, og í dag er gert við hann fyrir ca 500 evrur. Og á morgun kíkir svo kalinn frá skoðunarfyrirtækinu aftur á hann og vonandi fæ ég hann þá eftir hádegið.
Það var búið að spá þrumum í dag, en spáin er betri.
Hvernig er svo veður heima???

Bestu kveðjur frá bloggglöðu mömmunni og vonandi lesið þið þetta sem flest:)

4 comments:

Anonymous said...

Hér er búið að vera aldeilis fínt veður, 20 stig og sól, og bara legið íleti úti í garði. P og M litu við, en pabbi ekki spenntur að vera mikið í sólinni svo ég setti hann undir sólhlífina og skyggnishúfu af ella. ´Kominn smá vindur, en ennþá hið besta veður. Ætlaði að skokka smá, en nennti því svo ekki heldur settist út með bók. Spáð rigningu á morgun svo ég ætla að taka til í skúrnum,gengur ekki að hanga svona í leti hehe. Gott hljóð í Margréti, þetta verður allt í sómanum. Kveðja affí sys.

Anonymous said...

Hvaða leti er þetta, ekkert búin að blogga síðan í gær !! Hér er logn, sólarlaust en gott veður. ég er búin að taka til í skúrnum, reyna að koma einhverjum þrifnaði á þar eftir alla bílavinnu Ella í sumar, hann búinn að smíða, mála og spreyja bílavarahluti í djöfulmóð, svo´hér var frekar mikill skítur.Hef ætlað að taka til í geymslunni í kjallaranum í allt sumar en fullt af dóti Þórgunnar þar niðri enn, ( hún kemur um 20 ág. og tekur það), svo mér fannst ekki taka því að gera fínt þar fyrr en það er allt farið. Langar að kaupa svona 40 stk. plastkassa og sortera allt drasl í þá, en þeir kosta nærri 2000 kr sem er bara bilun. Held ég drífi mig út að skokka og svo í ræktina, þrátt fyrir skakka öxl og aumt bak. Dídi kom hér í gærkvöldi með mömmu, bara gaman að hitta hana. Annars allt rólegt hjá okkur fram að helgi en þá förum við í sumarbústað í Vaðnesi, sem er rétt hjá Didda. Verst að geta ekki tekið AD með, þoli ekki að skilja hana eftir, en svona er þetta bara. Heilsa í bæinn , kv. affí sys.

Anonymous said...

dugleg mamma :) og ég er mjög stolt af þér í hvert skipti og þú drífir þig á hjólið :D
Margrét

Anonymous said...

sammála Margéti, duglega mamma :)
Ég er að fara núna í viðtal hjá starfsendurhæfingunni, verð svo í bandi með hvernig það fer. Ástarkveðjur þín Arnhildur