Klaus er búinn að vera í fríi í 3 daga. Við þurftum bæði í dag til BS en á ólíkum tíma. Svo ég stakk upp á því að við færum saman og eyddum bara deginum í bænum. Ég byrjaði á að mæta til Heilpraktiker klukkan 11. Klaus minn hlustaði á tónlist í útvarpinu í bílnum á meðan. Svo renndum við til Riddagshausen, sem sumir þekkja (Diddi) af heimsóknum hingað. Það eru nokkur vötn nálægt klaustri, og þarna er fiskeldi. Mikið af fuglum og verulega skemmtilegt svæði. Enda fullt af fólki allar helgar og í góðu veðri.
Við fórum svo í bæinn. Fengum okkur nautarúllur hjá Karstadt á teriunni. Þær voru nú ekki eins og mínar, en ok. Og vel mikið af kartöflum og rauðkáli með.
Því næst var farið í búðir. Splæsti nýrri pönnu á mig, eða öllu heldur gerði Klaus það. Þetta var panna, sem fékk "Gut" í Ökotest-prufum. Með tvö höld og hægt að setja í bakarofninn. Hefur lengi langað í slíkt. Ekki hætti hann Klaus minn svo að eyða peningum. Nei, næst var nærfatadeildin á dagskrá og ég fékk nýjan BH og nærbuxur. Tja, ekki vön að kaupa mér nærbuxur á 25 evrur, en þegar maðurinn er með í ráðum--haha. Og svo keyptum við gamaldags slidesfilmur og meiningin er að fara að læra á linsurnar og vél pabba, sem hann gaf okkur. Það er spennandi verkefni.
Aftur var farið í góðan göngutúr. Í þetta sinn í Nussberg-garðinn, sem er stærsti garðurinn í BS. Mjög skemmtilegur líka og við röltum þarna um og sátum á bekkjum og slöppuðum af.
Þá var kominn kaffiþorsti í okkur. Farið á Möwenpick og borðuð risa bláberjakaka. Þær eru ekki nein smásmíði þessar Möwenpickkökur. Enginn kvöldmatur í staðinn!
Kíktum smá í skóbúðir. Því næst fór Klaus í sjúkraþjálfun, og ég sat og hafði það notalegt í bílnum á meðan. Endað var á ferð í byggingarvörumarkað. Keypt stykki á vatnsslönguna og gataslanga til að vökva garðinn. Svo þetta var hinn besti dagur.
Við erum sem sé að læra á það að vera barnlaus og ein, og þetta gengur bara vonum framar. Það var mikil breyting að vera aftur ein. Og auðvitað vildi ég helst hafa Margréti með mér öllum stundum. En það gengur ekki og hún verður að fá að lifa sínu lífi og Arnhildur sínu án þess að mamma gamla skifti sér of mikið af þeim. Og mér sýnist nú að báðar séu á hinni bestu leið að vera sjálfstæðar og það gleður móðurhjartað.
Á morgun er stefnt á ferð til Gifhorn. Klaus fer í vinnuna svo ég fer ein. Þarf að fá lyfseðil, finna bútasaumsbúð og kaupa nokkur blóm til viðbótar.
Í gær var fundur hjá stjórninni í foreldrafélaginu. Við útbjuggum kort handa nýju menntaskólanemendunum, sem byrja jú í 5. bekk. Tökkuðum nammipoka á miða. Svo var spjallað og gaman að hitta liðið aftur.
Háaloftið er orðið býna fínt og hann Klaus minn, sem fer að verða keppinautur um hver sé duglegasti tengdasonurinn--hahahaha-- ætlar að byjra að vinna við að einangra þakgluggann um helgina. Svo ég get bara ekkert kvartað:)
Við fengum þetta fína kort frá Margréti minni í dag. Alltaf er nú mest gaman að fá gamaldags kort og bréf. Maður ætti að skrifa oftar.
Hún er hin hressasta eins og þið getið lesið á blogginu hennar. Sigga hans Stefáns Arnar er búin að hringja í hana. Hún fær að gista þar um þar næstu helgi. Þá á að skíra tvíburana og koma gestir, sem þurfa rúm Margrétar. Það ætti þá að vera fjör og Margrét fer þá í norska kirkju í fyrsta sinn.
Jæja. Vona að allir séu hressir og heilsan í lagi.
Saknaðarkveðjur og stórt knús frá Meinersen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Sakna þín líka bestasta mamma. Og það er nú oft sem ég hugsa: "Mikið væri nú gaman ef að mamma gæti séð þetta líka" En svo fer ég að spá: "Þú átt eftir að sjá þetta allt í október" :D Hlakka rosa til þess!
Elska þig
Margrét
Finnst frábært hjá ykkur að rækta hjónabandið ;) Haldið því áfram- kv. Malla frænka sem er að fara barnlaus norður í brúðkaup um helgina (sem sagt líka að rækta hjónabandið)
Mikið hafið þið átt góðan dag saman, hljómar allt svo vel. Eins og þú segir er skrítið að upplifa barnlausa daga (æ, þó að þið hafið nú ekki alveg verið með 5 ára hnátu!!) og yndislegt að þið skuluð njóta samveru frekar en að fara og gera sitt hvora hlutina, held að það gerist nú ansi víða þegar fuglar fara að flögra úr hreiðrum.
Og góða ferð norður Malla! "fara barnlaus"...hvað er það nú fyrir brauð?!?!?!
Bestu kveðjur, Svanhildur
barnlausir dagar hér ,,sunnanlands" líka! Lárus Máni og Sunna Bjarklind í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni og afa í Hannover og fljúga síðan í næstu viku til ömmu og afa á Íslandi! Skrítin tilfinning að vera barnlaus svona lengi, en maður er þá bara einmitt duglegur við margt sem annars vill sitja á hakanum ;) Erum t.d. að hugsa um að kíkja á hana Margréti Sóludóttur einhverja helgina.
Hafðu það gott frænka!
Kærar kveðjur,
Aldís B.
kvitt kvitt, p.s.það er ekki nóg að Klaus splæsi í nærföt þú verður að fara í þau líka og nota þau hahaha...
saknaðarkveðjur Arnhildur
Gaman að frétta frá þer frænka mín.Ég skrifaði þer svo gáfulegt bréf í gær en þá hrundi allt í tölvunni.Ég verð örugglega ekki eins gáfuleg í dag.Nú er sælufríinu að ljúka,námsk.í fyrramáli og svo vinna á þriðjudag.Ég hef verið að reyna að taka til síðan ég kom úr sveitinni,en það hefur verið erfitt vegna veðurs.En þetta tekst á endanum.Það var dásamlegt að hafa barnab.í sumar og kynnast litlu dömunum,þær eru rosa skemmtilegar eins og hin.Svo voru Möllubörn meira hjá okkur en venjul.vegna fólksfj.í Álftagerði.Það voru allir voða duglegi að vera í drullub.en þvottav.gekk meira en venjul.Gott að heyra frá nöfnu minni og vonandi gengur allt vel áfram.Vertu svo bara bjartsyn áfram,þú verður nú að láta bollaspádóminn standast.Heyrumst Magga móða.
Sæl systir. Gott að sjá að þið finnið ykkur eitthvað til dundurs, bæði utandyra og innan (á ekki bara við nýju nærfötin). Man reyndar ekkert eftir þessu Riddarahúsi - getur þú ekki sent mynd? Hér er allt við sama, gott veður og stillt, strákarnir á leiðinni suður, Sigyn að vinna og ég á að vera að laga til, en.... Einar Jóns (skólabróðir og Æsufrændi)og Ágústa gista í nótt, Vigdís Eva líka með Gumma sinn. Svo verður farið í veiðiferð í Dalasýslu á sunnudag og svona gengur þetta. Eiríkur í sama bekk og Laufey Þóra. Eintóm sæla (nema eitthvert vesen í frárennslina frá húsinu sem ég bíð eftir að lagi sig sjálft því annars þarf ég að gera eitthvað). Bestu kveðjur - Diddi
Post a Comment