Í morgun skrapp ég til læknis í Gifhorn. Mætt fyrir 9. Síðan settist ég utan við kaffihús og beið eftir liðinu, sem vinnur við grunnskólann hérna. Það var nefnilega skemmtiferð á vegum skólans, sem hófst í miðbænum í Gifhorn. 25 kennarar og annað starfslið mætt. Fengum leiðsögn um nokkur elstu húsin og sögu bæjarins. Frétti t.d. að íbúarnir væru yfir 40 þús., sem ég vissi ekki. Leiðsögukonan var ekki sérlega spennandi og mér varð hugsað til þess að etv. gæti ég farið á einhver námskeið og gerst leiðsögumaður á þessu svæði. Hver veit.
Við fórum svo aðeins lengra, hver á sínum bíl og lögðum við veitingastað við ána, sem er rétt hjá Myllusafninu. Þarna fengum við típiskan þýskan hádegismat. Steiktar kartöflur, kjör úr súr og grænmeti. Var bara ágætt. Því næst var farið á bát, sem sigldi með okkur að Myllusafninu. Falleg leið og veðrið var fínt. Lítil sól, en þægilegt að vera úti bara léttklæddur. Við höfðum svo 3 tíma í safninu. Sum okkar settumst straks við borð úti og fengum okkur kaffi. Auðvitað var ég í þeim hópi:) Röltum um, og ég fór í eina stærstu mylluna og þaðan er frábært útsýni. Keypti sykurköku og brauð, sem er bakað í sérstöku bökunarhúsi þarna. Og svo vorum við sótt og aftur siglt að veitingastaðnum þar sem bílarnir biðu.
Þetta var bara verulega ánægjulegur dagur og afslappað og fínt.
Svo kom ég við hjá kisa og gaf honum mat. Heim og bjó til te handa Klaus mínum, sem fékk sér köku í kvöldmatinn.
Var að lesa hjá Kristinu Einars að hún og Maddý færu til Stokkholms í sept. Það er sko svindl! Geta þær ekki beðið til 14.okt og við Margrét hitt þær:) eða bara farið til Oslo. Æ, ég veit að Norge er dýrt, en ergilegt samt. Væri svo gaman að hitta þær. Frá Margréti er þetta löng dagsferð. Við verðum bara að plana betri ferð og með fleirum næst.
Hafið það sem best. Vona að þið séuð ekki að frjósa á Norðurlandinu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
já þú varst búin að segja mér frá öllu sem stóð í blogginu. en ég las það samt :)
love u <3
Margrét
Post a Comment