Þá er sumarið komið aftur til okkar. Eftir nokkrar vikur, sem voru allt of kaldar miðað við árstíma, er von á 27 stigum á morgun og enn hærra hitastigi í suðurhlutanum. Næstu dagar eiga að vera hlýir og fullt af þrumum og eldingum. Tja, gæti nú alveg sleppt því að lenda í slíku. Er búin að plana ferðir til Hildegard og Hannelore, til Hannover og til BS. Verð að sjá til hvað úr þessari spá verður.
Margrét segir að fólk þar tali um að hann sé farinn að hausta. Ekki sé lengur mikill hiti þó sólin skíni. Ég væri alveg ánægð með 20 stig, þarf ekki meir:)
Skólinn byrjaður og allt gengið vel þessa tvo daga. Í dag var hátíð fyrir fyrstu bekkinga í skólanum. Lúkas hérna við hliðina á okkur byrjar líka. Hann fékk stórt trampolin í tilefni af fyrsta skóladeginum. Það er búið að vera fjör þar og mikið hoppað.
Sonja fer með mér heim eftir skólann. Hún er svo ein fram til hálf fjögur og hitar sér mat í örbylgjunni. Passar hundinn, sem er enn frekar óþægur og nagar blóm og skemmir. Svona að fá sér hund. Ekki allt jákvætt, en henni þykur auðvitað voða vænt un hann og er alsæl þrátt fyrir allt nag:)
Við Klaus fengum lánaða greina-tætivél hjá Frau Kühle. Fórum með þrekhjólið hans Klaus til hennar. Við notum það ekki því okkur finnst stýrið svo lágt. Margrét var dugleg á því í sumar.
Sonur hennar er þar í 2 vikur og barnabarn. Fjör á þeim bæ. Ég skrepp stundum þangað.
T.d. bæði á fim. og fö.morguninn.
Við Klaus tættum svo allar greinar, sem við áttum í stórri hrúgu og ég setti svo mulninginn aftan við girðinguna á illgresið á akrinum. Svo lét ég Klaus grafa upp runna, sem vex allt of hratt. Var þurr og hálf dauður að innan og laufið bara yst. Svo hann bara fékk að fara, veslingurinn:) Nú get ég dundað mér við að velja falleg blóm í staðinn í beðið.
Í dag hjóluðum við í klukkutíma og tíu mín. Fórum í gegn um nokkur þorp í blíðunni. Fullt af fólki á hjólum um allt. Svo setti ég rækjur í deigi, tilbúið, í ofninn og hafði svo kokteilsósu með. Mér veitir ekki af að fitna smá aftur:) Er komin niður fyrir 69 kg. Og var jú alltaf um 75-77. Hætt að passa í buxurnar mínar, hehehe.
Það er rólegt á facebook um helgina. Ekki mikið að lesa. Líklega eru allir á hátíðunum á Akureyri og í Reykjavík. Allir að skemmta sér áður en veturinn kemur fyrir alvöru og skólarnir byrja.
Ég vona að þið séuð öll hress og njótið helgarinnar. Bestu kveðjur úr sumri og sól.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Bara nóg að gera :)kvitt kvitt
þín Arnhildur
Þá erum við komin heim eftir fína helgi í borg óttans. Mikill mannfjöldi en allt gekk mjög vel og mikið um að vera í borginni, og þetta árið voru viðburðir út um allt, bæði tónleikar og ýmislegt annað, svo mannfjöldinn dreifðist víða svo þetta var mjög ánægjulegt. Hittum gamla skólabræður og vini Ella sem voru með okkur fram til loka hátíðarinnar, hittum Ingó og þórdísi, og ýmsa auðvitað aðra. Við gistum hjá VÖ, hann er bara hress og líkar mjög vel í vinnunni. SVo var auðvitað farið til tengdó og Guggu og Helga, til Helga vinar Ella og svo bara verið með VÖ þess á milli. Komum heim upp úr kl eitt í nótt, engin umferð svo við vorum fljót á leiðinni, stundum gott að fara bara seint af stað á svona umferðardögum. AD byrjuð í skólanum en verður að vinna talsvert fram að mánaðamótum, vona að hún nái að skipulegga skóla og vinnu svo árekstrar verði ekki miklir, hún varð að taka vinnuna til loka ág. en svo verður hún bara að vinna af og til með skólanum í vetur. Er með hálfgerða sjóriðu eftir ferðalagið, en ætla nú samt að fara og laga til og reyna að fara að byrja kennsluundirbúning þó ég nenni því bara alls ekki. Hér rignir, allt blautt svo ekki hægt að slá garðinn sem er frekar óhirðulegur hehe. Engin ber komin á rifsið, en kannski kemur smá sumarauki, hver veit. Skrepp svo til M og P i dag, vona að allir séu hressir þar. Nóg í bili, kveðja þín sys affí :)
Þú verður að passa þig kona! Þú mátt nú ekki verða jafn þung og ég :) Farðu nú að setja aftur meira sykur út í kaffið og drekktu svona einn bolla af rjóma á hverjum degi!
En þið eruð dugleg í garðinum. Það verður yndislegt að koma aftur eftir ár og sjá allar tilbreytingarnar :)
Lovjú Margrét
Gaman að heyra frá ykkur og hvað þið eruð dugleg að hjóla.Fyrsti skóladagurinn er liðinn og gekk bara vel.Það verður meira fjör á morgun en þá koma fyrstubekkjarbörnin í vistun.En þetta gengur alltaf allt.Erum að fara í Norró í pönnsur (sem mamma þín bakaði)í tilefni af afmæli Láka.Þau voru að koma úr sveitinni.Kveðjur Magga móða.
Jibbííí- það er hætt að rigna svo nú get ég slegið garðinn. Sól að brjótast fram úr skýjunum og gola til að þurrka rennblautt grasið. Alltaf gaman að vinna í garðinum. Skrappp til m og p í gær, pabbi er enn slappur en vonandi fer þetta nú að lagast. Aldís er búin að vera á pensilíni eða einhverju álíka til að losna við kvef sem hún er búin að hafa í allt sumar og endaði í hálsbólgu. Ég er sjálf með endalaust nefkvef og inn á milli aum í hálsinum, augun búin að vera þrútin síðustu daga en þetta hlýtur að lagast þegar ég kemst í garðinn að vinna smá :) Gott hljóð í Margréti, hef verið að reyna að skrifa smá hjá henni af og til, ímynda mér að það sé svo skemmtilegt að fá línu frá mér af og til hehe. Annars allt þokkalegt hér, þreif bílinn að innan í gær milli rigningaskúra, og lagaði til í bílskúrnum. Þarf svo að fara að hella mér í frágang í skólanum, gera stofurnar klárar og taka til kennsludót. Nenni þessu varla en það verður svosem áægtt þegar vetrarrútinan kemst aftur á. Kveðja í bili, þín sys Affí.
Fimmtudagur og styttist í vinnu hjá mér. Ætti í runa að dru... mér í skólann og byrja á frágangi, en fann svo flotta uppskrift að stuttu ponsjói/sjali, að mig langar bara að vera heima og prjóna þó það sé ekki mjög gott fyrir öxlina að prjóna mikið. Fór með rabbarbaragraut til m og p í gær, tók allan rabbarbarann upp í gær og skar og sultaði. þetta voru engin ósköp, en nóg í fimm krukkur og stóra skál af graut. Svo sló ég garðinn, náði að raka allt saman áður en það byrjaði að rigna aftur, hreinsaði stéttir og beð svo nú er þetta orðið skítsæmilegt.Er enn með nefkvef og smá þrútin augu, en þetta hlýtur að fara að lagast.Aldís verður í vinnu í allan dag, það er busadagur í VMA svo það er ekki hefðbundinn skóli, og svo vinnur hún e.h. á morgun líka. Hún á enn eftir að fá að vita hversu mikla vinnu hún fær með skólanum í vetur en heldur að það verði talsvert. Já veturinn nálgast. Vona að þú hafir það gott, kveðja í kotið- þín sys affí
Post a Comment