Þá er ég komin með sálfræðing í göngugötunni í Gifhorn!!! Frau Witt, nokkuð þýsk, frekar þurr en þegar hún brosir er það fallegt bros. Fór í morgun klukkan 9 og var í mínar 50 mín. Fer svo aftur næsta fimmtudag. Það er svo eftir að sjá hvað kemur út úr þessu. Allavega klárt að ekki sé hægt að leysa hnútana í hvelli:) Hún sagði að eftir að ég væri búin að tala við hana í 50 mín væri ég bara búin að tala um fjölskylduna. Hvaða væntingar allir hefðu til mín og hvað tillit ég þyrfti að taka til hvers. Ég hefði ekki talað neitt um mig.
Hún segir að ég verði að læra að samþykkja sjálfa mig og finna út hvað ég vilji. Og þetta virðist vera svo samantvinnuð mál að ekki verði hægt að leysa nema á mjög löngum tíma. Allt upp í 2 ár-kannski 5 ár. Ekki átti ég nú von á því að ég væri svona mikið vandamál:) En kannski við vinnum þetta nú á styttri tíma og ég verði mjög samvinnuþýð. Ætla að gera mitt besta.
Ég er búin að vera á þunglyndislyfjum í nokrar vikur og þau verka vel.
En það er klárt að maður verður að finna sér eitthvað að gera því annars bara pælir maður og pælir og verður sorgmæddur.
Var að lesa þessa tilvitnun " A busy day is a happy day" og það er svo mikið til í því.
Og í þeim anda fer ég að finna mér einhver verkefni og dunda mér áfram.
Á morgun byrjar skólann og ég er þá önnun kafin einhvern tíma á hverjum degi. Svo ætla ég til BS í næstu viku til Heilpraktiker og kannski ég drífi mig í klippingu--löngu kominn tími til:)
Etv. hefur Daniela tíma. Hún er víst í fríi í næstu viku. Og svo ætla ég til Hannover þr. 23.8, að hitta Ramonu þegar hún er búin að vinna.
Í dag var "stórt rusl" tekið. Við settum gamla gólfteppið undan stofuborðinu út, og líka gamla bílateppi Margrétar, sem var farið að verða lélegt að neðan. Gúmmíið að losna. Hitt og þetta fór og með hverju drasli, sem hverfur, lifnar yfir manni.
Sólin komin fram og ágætlega hlýtt. Búin að gefa kisa og vökva fyrir Frau Kühle.
Margrét á farands fæti í dag að hitta nýja stelpu. Spennandi og alltaf nóg að frétta frá henni.
Hafið það öll sem best. Og biðjið Almættið fyrir mig um skjótari bata og lausn mála en tveggja ára ferli, hehehe.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ég er svo stolt af þér!!!að vera komin með sálfræðing og byrjuð að vinna í sjálfri sér er ekkert það auðveldasta sko :) Ég byrja á mánudaginn í starfsdraslinu og verð flesta daga þar frá 10-14, og þau ætla að troða mér í líkamsrækt og á fjármálanámskeið og ýmislegt. ástar og saknaðarkveðjur þín Arnhildur <3
Góðar fréttir - mér heyrist vera heilmikið vit í þessum sálfræðingi;) kv. Malla í afmælisundirbúningi
Gott hjá þér að fá sálfræðing, virðist nokkuð gáfuleg :) Um að gera að fara í líkamsrækt, ekkert sem hrekur þunglindi betur í burtu, enda vísindalega sannað !! Nei, í alvöru þá er andlega líðanin allt önnur eftir smá átök, skokk, eða æfingar af einhverju tagi,- allra meina bót ! Fór og tók kökuna úr búðinni, elli heimtaði að ég bakaði í tilefni dagsins. Keypti kökubotna á tilboði ( er að verða svo þýsk í hugsun í kreppunni...) og svo á að moka á þetta jarðaberjum og jukki af öllu tagi. AD að vinna fram eftir kvöldi, verður svo í fríi fram á þriðjudag frá vinnunni og við skellum okkur suður. Hún fær stundaskrá á morgun svo þetta er allt að skella á. Gott að heyra hressan tón í Margréti. jæja best að fara að baka :) Kv þín sys affí
Gott að þú ert að gera eitthvað fyrir þig en ég á nú ekki von á að þín vandamál endist í spjall hjá sála í mörg ár,hvað þá með alla hina? Þú þarft líka að styrkja þig líkamlega hvernig sem þú ferð að því.Ég get nú reyndar lítið sagt sem hef ekki nennt að byrja á Bjargi enn, vona að það komi nú samt.Reyni að labba og borða minna.Fyrstu vinnuviku lokið börnin koma svo á mánud.Ég verð áfram með Eydísi eins og í fyrra,nú í 3.b, og svo líka í 2.b.Þetta verður vonandi bara fínt.Er öll í tilt.er að klára saumah.eftri margra daga törn en allt að verða voða fínt.Heyrumst.Magga móða.
Post a Comment