Ekki hægt að láta líða lengri tíma milli blogga:) Þó að þið hafið ekki verið svo mörg, sem nenntu að kvitta/ eða kannski lesa undanfarið. Líklega hafa íslendingar annað að gera í sumarblíðunni en að liggja í tölvum. Eftir því sem myndir Didda frá Álftavatni sýna er algjör himinsæla hjá ykkur.
Hér er líka besta veður. Þó nokkur vindur og um 23 stig. Sól í mest allan dag. Það er að segja eftir að hann létti til fyrir hádegið.
Ágætt að morguninn var ekki of heitur því ég skrönglaðist upp á háaloftið og bar drasl fram og aftur :) Nú er komið svo mikið pláss að hægt er að klára að setja plötur utan um gluggann og engin afsökun lengur hjá Klaus. Þetta er dútlvinna, en ekki erfiði og hann bara nennir þessu ekki.
En hann setti hjól Margrétar á snaga í skúrnum þar sem það verður ekki notað á næstunni. Og klippti tvær stórar greinar af Ahorninu við veginn. Og Frau Kühle ætlar að lána okkur vél til að mylja niður greinar. Svo ekki skortir verkefnin.
Við fórum líka í hressilegan göngutúr í 45 mín. Var vel heitt á eftir:)
Við vorum búin að spá í að aka til stöðuvatna, sem eru í austur Þýskalandi. En vorum að komast að því að það tekur 3 og hálfan tíma bara aðra leiðina. Svo það væri skynsamlegra að fara þetta og gista í leiðinni. Ekkert gaman að geta ekki stoppað neitt. Svo við rennum líklega styttri leið á morgun. Klaus er í fríi næstu 3 daga. Kannski við kíkjum til Hildesheim eða hver veit hvað við finnum út.
Við erum í stöðugu sambandi við Margréti á skæpinu. Það er þvílíkur munur að geta séð hana og heyrt og við hlökkum til hvers samtals. Eitthvað vesen á skæpinu hjá Arnhildi, og hún fer vonandi að laga það þvi mig langar líka að sjá hana. Og eins gæti hún talað við systur sína.
Arnhildur hringdi í gær og var hin hressasta. Fer að byrja á endurmenntunarnámskeiði. Byrjar um miðjan ágúst. Þessi fyrsti hluti er fram í jan. Tíminn hinn besti. Frá tíu til tvö. Og fer fram í Glerárgötu. Svo ekki þarf neinn bílinn-nema þá í vonsku veðri:)
Í gær boraði Klaus gat í vegginn á tréskúrnum og setti vatnsslönguna og rafmagnsleiðsluna í gegn. Pumpan okkar er í skúrnum og ergilegt þegar maður þurfti að opna dyrnar og fara með draslið inn þar. Núna fer þetta að verða svaka flott:) Svo var slegið og rakað.
Var að skæpa við Didda fyrir utan símtal við þau gömlu og Arnhildi og skæp við Margréti. Svo maður er bara í hinu besta sambandi.
Eitthvað byrjaði ég svo á að strauja í dag, en staflinn er enn hár:)
Var að taka í gegn 2 skápa og eina skúffu á fö. Maður tekur eitthvað fyrir á hverjum degi.
Við ókum með fullan bíl af gömlum fatnaði á fö. og ýmis konar drasli, sem enginn kemur til að nota. Gaf þetta í búð, korters akstur héðan, sem kallast nágrannahjálpin. Gott að losna við það. Klaus kom með mér og skottið var vel fullt. Á leiðinni heim keyptum við bláber, og höfum verið að borða þau á hverju kvöldi síðan.
Og svo er stefnt á að læra að sauma og prjóna. Kannski ég verði bara eins góð og Maddý í lokin, hehe. Nei, varla en vona að ég finni einhvern, sem getur leiðbeint mér.
Nú og svo er alltaf nóg að gera í garðinum. Verkefnin sem áður segir næg, en mig vantar góðan félagsskap. Og ef einhver á pening fyrir flugi--þá er hér nóg pláss!!!! Vill ekki einhver koma í heimsókn. Vitleysa hjá Didda að vera að þessari Jóhannesarborgs ferð í lok okt. Bara að fljúga til Oslo fyrst og svo til okkar. Miklu,miklu betra, eða hvað finnst ykkur.
Affí líklega komin til Didda og veit ég að illa muni nú fara um hana þar:) Maður ætti að skella sér í östutta heimsókn og taka eina ferð í pottinn og fá kaffi hjá Sigyn í leiðinni.
Jæja. Það er fátt í fréttum og best að hætta að sinni. Hafið það sem best. Ástar og saknaðarkveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
gaman að sjá að þú haldir áfram að blogga bestasta mamma :)
elska þig <3
Margrét
Gaman að sjá hér tvær ólesnar færslur eftir nokkra daga frá tölvu.
Nóg að gera hjá ykkur og mér líst vel á að þið Klaus farið í smá ferðalag.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Ég er dugleg að lesa bloggið þitt - alltaf jafn gaman :) kv. Malla
Post a Comment