Thursday, August 25, 2011

Sumarhiti.

Hann ætlar að kveðja með stæl þessi ágústmánuður. Það var mjög heitt í gær og í dag enn heitara. Það eina, sem bjargar, er að það eru ský hér og þar. En hitinn er kominn í ein 27 stig minnir mig.
Ég er búin að vera í léttasta sumarkjólnum og er samt heitt. Vildi svo gjarnan senda ykkur til Íslands eitthvað af þessum hita:)
Helstu fréttir eru annars þær að ég fór í krabbameinsskoðun og aftur fundust einhverjar breytingar, kalk eða slíkt. Aftur í vinstra brjósti. Ég fer á mánudaginn og tala við lækni í Celle. Fékk Klaus til að taka sér frí og koma með. Ég er samt nokkuð viss um að þetta verði ekki neitt slæmt. Í gær fór ég til Heilpraktiker í BS. Hún athugaði sérstaklega hvort ég væri með krabba og segir að ég sé frísk, enginn krabbi. Það eru náttúrlega ekki allir, sem trúa að svona skoðun, en ég ber mikið traust til þessara konu og kínverk lækningasaga er löng og merkileg. Svo ég ætla að bera traust til Guðs og trúa að þetta verði ekki neitt slæmt. Þá hefði nú Maddý laglega ruglast með bjarta bollann minn, hehehe.

Eftir tímann fór ég á Starbuckskaffihúsið og hitti Danielu frænku Klaus. Við sátum þar í 2 tíma og það var mjög ánægjulegt. Daginn áður fór ég til Hannover og hitti Ramonu. Við sátum líka á kaffihúsi í 2 tíma og um nóg var að spjalla. Ég fór snemma til Hannover og fann loks götu, sem er nokkuð þekkt. Heitir Lister Meile, og er bak við járnbrautarstöðina. Þar eru nokkrar verslanir, sem ekki finnast víða. Settist inn á franskt kaffihús, sem selur litlar sætar tertur og pæ. Og fékk mér sítrónupæ með mjúkum marens. Og kaffið var æði. Fann breska verslun, sem selur matvæli og drykki. Alls konar flott , sem maður þekkir frá Íslandi. T.d. eru þeir með bæði dökkan og ljósan púðursykur. Keypti 3 tegundir af engiferkexi. Það var nú æðislegt--eða svo fannst Valdemar Erni, hehe. Spurði á Facebook hvort ekki hefði verið til neitt almennilegt!

Á mánudaginn fór ég til Hildegard og Hannelore. Það var setið úti með kaffi og heimabakaðar kökur. Um nóg að spjalla og alltaf jafn notalegt að vera hjá þeim. Þær eru svo að fara til Berlin og eftir það til suður Þýskalands. Alltaf á ferðinni. Og erfitt að finna tíma, sem hægt er að heimsækja þær.

Það gengur allt vel í gæslunni. Erum bara úti með hópinn og allir að leika sér í frjálsum leik.
Á morgun á svo að koma rosalegt þrumuveður og snögg kólna. Og þá á sumarið að vera liðið. Mig langar nú ekki í meiri þrumur. Það öskraði hér í öllu og rafmagningu sló út á mánudagsmorguninn þegar eldingu sló niður hér nærri. Sumt sem sé betra á Íslandi, hahaha.

Finnst sorleg fréttin að Þórdís sé að fá sér hund. Sé hvað það er mikil vinna hjá þeim við hliðina og hvað á svo að gera við hann þegar farið er í ferðalög? Manja við hliðina er búin að kúka og pissa oft á gólfin og aumingja Sonia verður að þrífa það þegar hún kemur úr skólanum.
En séu allir sælir með þetta þá er það auðvitað gott og hollt að fá hund fyrir krakka.

Dætur mínar búnar að vera lasnar þessa vikuna og Margrét komst ekki á opið kvöld í Olso fyrir norska/þýska vini. Og fer ekki í bíó í kvöld. En í staðinn í næstu viku. Og vonandi er Arnhildur ekki að missa af miklu fyrstu dagana. Þær hljóta að fara að verða stálslegnar bráðum.

Jæja, er að fara út. Bið ykkur að hugsa til mín ef þið sendið bæn upp á við og biðjið þá um að allt fari á sem gæfulegastan veg. Það hlýtur að vera að minn tími fari að koma og ég fari að geta tekið á minum vandamálum og byrjað betra líf og verið sæl og rjóð!

10 comments:

Anonymous said...

Það er mjög ruglandi að þú skyldir hafa skrifað tvisvar "Sumarhiti" sem nafn á blogginu þínu :)
En við erum auðvitað bjartsýn!!! Eins og bollinn hennar Maddýar sagði.
Elska þig <3
Margrét

Anonymous said...

Ég trúi á heilagan anda...er það ekki? ég er mjög ánægð með þig hvað þú tekur þessu öllu saman vel og rólega-ástarkveðjur A.H.

Anonymous said...

Neibb þetta er ekkert slæmt - ég trúi því líka. Gangi þér vel frænka og vertu dugleg áfram að gera eitthvað fyrir sjálfa þig. Kv. Malla

Anonymous said...

Ég er búin að fá svona hnúta í handholið, varð skíthrædd en svo reyndist þetta bara vera einhvers konar stíflaður kirtill. Um að gera að láta skoðaþetta bara til að vera ekki með óþarfa áhyggjur út af engu. Hér er kvef búið að vera að bögga mannskapinn og smá magaskot í leiðinni, er að verða ansi pirruð á langvarandi smákvefi, er ekki vön að fá svoleiðis. VÖ fékk líka einhverja smá pest, en er allur að hressast. Hér var nokkuð gott veður í dag, rigndi nærri ekki neitt !! Mamma farin með Maddý og Einari í brúðkaup austur á land, pabbi heima því hann treysti sér ekki, er ekki enn orðinn almennilega góður. ég ætlaði til hans en var sjálf ekkert allt of hress en heyri í honum á eftir. Annars bara að komast haustskap í alla, enda jólin bara eftir tæpa fjóra mánuði..... Voru nöfnin sem ég stakk upp á fyrir hundinn hennar Þórdísar ekki góðar :) Held mest upp á nafnið Vesen, en held ég kalli hann bara Sorró. Farðu varlega með þig, kveðja til Klaus- þín sys Affí

Anonymous said...

Hundurinn við hliðina á ykkur er greinilega bara mjög illa upp alinn. Ég ætla að ala þennan hund vel upp og er strax byrjuð að skoða hundahlýðninámskeið og búin að lesa nokkrar "dog training" bækur. Þessi tegund er talin hlýðnasta tegundin og létt að kenna henni. Ef við förum í ferðalög þá er það ekkert það mikið vesen þar sem margir eru búin að bjóðast til að passa hann :)
-Ásta

Anonymous said...

Ásta mín-takk fyrir að kommenta hjá mér! Já, við vonum að ykkar hundur verði bara æðislegur og að krakkarnir hafi mjög gott af því að vera með hann--og þið stóra fólkið líka. Ég vorkenni bara alltaf hundum, sem búa í borg eftir að hafa átt hund í sveit, sem gat hlaupið um allt. En þið verðirð bara rosa dugleg að labba með hann, ekki satt. Allavega óska ég ykkur alls góðs með hann og njótið þess vel. Ykkar Ádda.

Anonymous said...

Takk fyrir það :) jú við ætlum að vera rosa dugleg að labba með hann og ætlum lika að fara með hann út á land og leyfa honum að vera smá frjáls.. eins og t.d. upp í bústað til Didda :)
-Ásta

Anonymous said...

já þetta verður bara æði og þjappar okkur bara öllum meira saman. Krakkarnir glaðir og sælir og hann er mesta krúsidúlla fáum hann vonandi um næstu helgi. Hann verður vel upp alinn og fullt af liði sem vill passa eins og bæði Andrea og Erna dóttir Héðins á Strönd til í að passa fyrir mig og svo líka vinkonur Ástu. Þetta verður bara gaman. Vona að þetta sé ekkert alvarlegt hjá þér og þú jafnir þig fljótt stórt knús til þín sakna þín mikið. Já vorum í afmæli Sólveigar Halldórs í gær voða gaman kveðja Þórdís

Anonymous said...

ja við viljum öll fara út með hann og verðum rosa dugleg með það.

en já væri allveg til í að þú sentir smá sumarkjolaveður hingar haha:-D

Anonymous said...

Jæja gott að allt er í lagi. Einhvern veginn þá gleymir maður hvað lífið er gott þegar allt er í lagi, maður þarf að vera glaðari með sig og sína þegar allt leikur í lindi. Hér er spáð góðu veðri næstu daga Jíbbí!! Kannski fáum við smá sumarauka, aldrei að vita. Ég var að vinna í skólanum í morgun, var mætt kl hálf níu og var til nærri tvö, við Soffía vorum í frágangi og tiltekt, og á morgun fer ég aftur að gera stofurnar klárar fyrir kennslu og ganga frá kennsluefni með Helga. Skólinn byrjar svo 7. Já allt að byrja hjá öllum, kannski bara ágætt að það fari að komast á einhver rútina aftur. Pabbi eitthvað slappur í maganum líka, held að hann ætti að draga úr rjómadrykkju, það er ekki það hollasta fyrir hann en það finnst honum nú vitlaus hugmynd.... En annars allt í góðu hér, kvefið aðeins að minnka hjá mér, Aldís þarf aftur á móti örugglega að fá annan skammt af lyfjum því hún er enn með hálsbólgu og slæman hósta. Vonandi kemst hún eitthvað frá í dag til að hitta á lækni, það er búið að vera mikið að gera hjá henni, bæði skóli og hellings vinna fram að mánaðamótum, svo ekki verið smuga að komast frá til að hitta á lækni en þetta breytist núna um mánaðamótin. Knús og kossar, þín sys Affí