Þetta blogg kemur núna á eftir hugleiðingum gærdagsins. Búin að velta þessu fram og aftur og tók loks þá ákvörðun að taka ekki þessa vinnu. Og er eiginlega stolt af því að geta ákveðið það. Því alltaf finnst mér að ég verði að fórna mér. Fái ég vinnu, sé það skylda mín að taka henni, þéna meiri peninga, sýna þakklæti fyrir traustið, sem fólk sýnir mér með því að bjóða mér vinnuna. En ég bara þarf núna tíma fyrir mig-þrátt fyrir að ég sé oft einmanna á morgnana. Ég er búin að fá tíma hjá sálfræðingi í Gifhorn á mið.morguninn. Og fer til geðlæknis um miðjan sept. Það er miklu erfiðara að fá tíma sé ég bundin á morgnana. Og mér finnst mikilvægast að komast í gott form andlega.
Svo er þetta ekki vinna sem ég færi í glöð og ánægð. Það hljómar sem leiðinlegur dagur að vera inni í bekk með dreng, sem þarf að aðstoða án þess að á mann reyni. Bara að vera til staðar-ef hann þurfi á manni að halda. Ég veit að t.d. Maddý hefur unnið svona vinnu, en held að hún hafi líka gert meira með stelpunni og meira verið af henni krafist, sem gefur manni jú líka mikið til baka. Held að tíminn verði ansi lengi að líða og mér sé farið að finnast tilveran erfið þegar nálgast kaffi þessa tvo daga, sem hann er til fjögur. Og er það þá þess virði að leggja þetta á sig? Að kviða fyrir næsta degi og rífa sig upp með litilli gleði. Og verst að þurfa að aka þessa leið í skólahverfið, sem ég ek svo ógjarnan. Það er líka ansi mikil breyting að hafa unnið 5 tíma á viku og vera svo að spá í meira en 30 plús svo jóga og líkamsrækt og fleira.
Það sem ég vil núna, er að finna gleði í tilverunni. Vera laus til að geta skroppið heim, til Köben eða hvert sem er án þess að vera rígbundin. Finna mér verkefni, sem eru skapandi og gefa mér eitthvað. Saumaskapur og handavinna og jóga og líkamsrætkt. Held að ég ætli bara að vera eigingjörn og hugsa bara um sjálfa mig. Og sjá hvernig ég kemst af ein með sjálfri mér og mínum tónstundum.
Veit að ýmsir muni segja að auðvitað ætti ég að reyna þetta, að þetta sé uppgjöf. En mér finnst líka sterkur hlutur að taka ákvörðun, sem er ekki sú, sem allir reikna með. Eða finnst rétt.
Svo allt í allt er ég ánægð með ákvörðunina og svo er bara að sjá hvað lífið ætlar sér með mig.
Núna ætla ég út í garð með Klaus mínum að slá og raka. Svo eitthvað að taka til. Kláraði slatta af þvotti í gær og hver veit nema ég taki einhverja glugga i gegn.
Og svo er á dagskrá að læra á skannarann og skanna inn filmur og myndir.
Hafið það nú sem best og góða helgi þið öll.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Loksins, loksins. Þvílíkt bull í þér systir að halda að þú eigir að taka svona vinnu bara af því að þér var boðin hún. Þú tekur vinnu ef hún hentar þér og þig langar til. Þetta er ekki uppgjöf - eina uppgjöfin í þessu máli (eða tilraun til uppgjafar) er að halda að þetta sé uppgjöf. Er mjög sáttur við þig fyrir þessa ákvörðun og mér finnst hún mikil framför. Vinnutilboðið var aftur á móti mikil viðurkenning fyrir þig og þú átt að njóta hennar. Ég sagði um daginn að mér finndist þú ættir að skoða að fara á námskeið, t.d. í tengslum við tölvur, kannski myndvinnslu eða slíkt. Njóttu þess bara að vera til og trúðu á sjálfa þig, þú hefur efni á því. BK Diddi
Nú er ég hjartanlega sammála Didda.Þú finnur eitthvað skemmtilegt að gera,fjarnám t.d.frá Íslandi og þar geta Diddi og Annette komið þér af stað og gefið uppl.Það er svo margt sem þú getur bara byrja og þá verður létt að fara á fætur(jafnvel þó menn séu af Haganesættinni)Malla og össi eru hér á leið í brúðkaup í Aðaldal.Ég er í Áddustuði,sem sagt að taka í gegn hjá okkur og þá hugsa ég stanslaust til þín!!!Lilla og co eru í Mývó.Allir biðja að heilsa.Magga móða.
mér fynnst þetta æði :) miklu frekar að þú finnir þér eitthvað að gera sem þér fynnst virkilega skemmtilegt. og hættu nú þessu bulli að kalla þig eigingjarna! :D það er ekki eigingirni að hugsa stundum um sjálfan sig og hvað mann langar að gera með lífið sitt.
þú ert hvort sem er bestust!
ég elska þig, mamma
Margrét
Góð og vel úthugsuð ákvörðun frænka :o) ekki spurning.... las blogg Margrétar áðan en ég ekki kommentað þar á leiðindatölvunum í vinnunni minni :S
Ætti að reyna að hvíla mig smá, er á næturvakt og kl orðin 4 og búið að vera brjálað að gera :S
Bið að heilsa Klaus
kv
Kristín E.
nákvæmlega hættu að lifa lífinu fyrir aðra og farðu að lifa því fyrir þig sjálfa. Love you og vona að þú verðir glöð og kát kveðja Þórdís
Mér finnst að þú eigir að fórna þér fyrir eitthvert leiðinlegt start sem kemur í veg fyrir að þér líði vel og getir gert eitthvað ánægjulegt með lífið.... NOT !! Fín ákvörðun hjá þér systir góð, það hlýtur að vera eitthvað í vatninu hjá þér núna... :) Já við Elli erum komin heim, búin að hafa það gott, hitta Didda og fj, og ferðast heilmikið. Kveðja í kotið- Þín sys, affí
Post a Comment