Monday, August 15, 2011

Skólar að byrja.

Nú er komið að því að skólarnir hefjist. Ekki eru þessar 6 vikur langar. Samt finnst mér að heil eilífið sé liðin frá skólalokum. Kannski af því að svo margt hefur gerst og margt orðið öðruvísi.
Ég fór í morgun klukkan 8 í skólann og lagaði til í herberginu, sem skápurinn minn stendur í. Ines, sem vinnur með mér, kom líka og við hentum drasli og tæmdum eina hillu svo hægt væri að þrífa þarna. Ekki lítur glæsilega út með gæsluna. Það verða örugglega 3 hópar, en Ines fær bara 3 daga í viku með sinn hóp, og honum verður þá skift á milli okkar Diana hina tvo dagana.
Ekki beint tilhlökkunarefni. Og svo er Diana á heilsuhæli og kemur ekki fyrr en um miðjan september. Svo við verðurm með tvo hópa í 4 vikur. Sem sé ekki hægt að vinna eitthvað af viti og bara um pössun að ræða. En það er bara þannig.

Nú á hann að hlýna -eins og svo oft þegar skólinn byrjar:) Allavega ekki rigning þessa vikuna.
Svo ég fer að setja í þvottavél. Við hjónakorn vorum dugleg um helgina. Tókum dralsið af borðinu framan við þakgluggann og löguðum til. Klaus sagaði af plötunum það sem stóð út af og nú vantar bara skrúfuborvél svo hægt sé að fara í að klára að klæða gluggann.
Síðan tók Klaus til í vinnuherberginu. Tók allt af skrifborðinu og setti mikilvæga pappíra, sem alltaf þurfa að liggja til taks, á skrifborð Margrétar. Ég get þá notað þetta stóra og fína skrifborð til að sauma og vinna við. Það er mikill munur.
Var að dunda við að þurka af ryk og þannig. Bakaði eplaköku og svo voru keyptar sænskar kjötbollur, með dönsku rauðkáli, þýsku brokkoli og þýskri kartöflumús. Eldað af íslenskri konu. Verulega alþjóðlegt:)
Við töluðum við Margréti eins og alltaf á kvöldin. Hún er mjög hress með ferðina til Olso í gær. Líkar vel við stelpuna, sem hún var að kynnast. Svo er hún komin með Facebook síðu með au-pair stelpum í Norge og vonandi fer hún að kynnast fleirum. Verst hvað hún er langt útí í sveit. Ef hún fer til Olso á kvöldin kemur hún verulega seint heim og þarf að labba í myrkri og bíða eftir stætó og svoleiðis. En kannski hún fari nú að nota bílinn meira.

Við horfðum svo á krimma, sem var ok. Sofnuðum snemma og svo var sem sé vinna í morgun. Líka hjá ykkur flestum, og hverdagslífið hefur náð okkur aftur.
Best að finna sér verkefni og gera eitthvað. Sakna ykkar og vona að allir séu hressir og kátir.

2 comments:

Anonymous said...

var krimmin "ok" ?? bíddu, þú hlýtur nú að hafa andvarpað og blótað eins og öll síðustu kvöldin!!
heheh koss og knús frá mér til ykkar beggja á brúðkaupsdeginum ykkar.
Margrét

Anonymous said...

Ertu enn að vinna í gæslunni? og hvar er bloggið hennar Margrétar? Hér rignir sem aldrei fyrr og þá er gott að liggja í leti og lesa bók og hugsa ekki um allt sem eftir á að gera :) Kveðja í kotið, þín sys affí