Tuesday, September 6, 2011

Girðingin máluð.

Það er kominn einhver kraftur í mig og ég er bara óstöðvandi í bili. Mikið vona ég nú að þetta ástand haldist sem lengst:) Susanne mágkona kom nýlega í heimsókn. Við röltum um garðinn og hún stakk upp á ýmsum beytingum. Henni þykir best að vinnan sé sem minnst og það er dágott. Hún útskírði líka hvernig ég ætti að sauma brauðkörfu og kenndi mér að fitja upp:) Og eftir að hún fór tók ég til að pæla í breytingum í garðinum. Ákvað að fórna runna, sem mér líkar ekki, og klippti niður í ekki neitt. Klaus fékk svo að grafa ræturnar upp um helgina:) Við hliðina er jasminrunni, sem líka var klipptur niður í ekki neitt-eða þannig. En hann vex hratt næsta sumar. Nú var ég búin að búa til autt svæði framan við girðinguna. Hún er bæði græn og litlaus. Ekkert eftir af rauða litnum. Stóð til að mála fyirr nokkrum árum og málningin stóð í geymslunni í allavega 2 eða 3 ár. Og þar sem rigningin hætti við að koma í gær skellti ég mér í málningarvinnu.
Í ermalausum bol og druslu buxunum, og stígvélum! Uppgötvaði eftirá að ég var öll orðin flekkótt af slettum og þurfti í bað með gott skrúbb til að ná þessu af mér. Í dag for ég nú í langarma skyrtu.
Þetta eru um 12 "plankar, spil ?", og ég er búin með 3 og 1/2 utaná við stéttina eftir tvo daga. Plús 2 innaná við akurinn. Og er sprungin:)

Það er gott að vinna og verða þreyttur og eiga þá skilið að fá gott frí á eftir, ekki satt.
Verst að ég þyrfti að ryksuga og þurka af, en nenni því bara alls ekki, hehehe. En slepp víst ekki við að fara í það bráðum.

Veðrið er hið besta. Við sleppum oftast við vondu veðrin. Hér var hvorki hellidemba né þrumuveður um helgina. Við grilluðum í kvöldmatinn á laugardaginn og sátum úti fram á kvöld. Náttúrlega eftir alla vinnuna við að koma rótunum uppúr og slá garðinn og raka og svo framvegis.
Nú bíður stór hrúga af greinum til að fara í söxunarvélina.

Á laugardaginn fór ég með Reginu, (býr hér rétt hjá, við þekkjumst úr kirkjukórnum), á markað ekki langt frá. Hún hélt að það væri haustmarkaður á leiðinni til Celle, sem reyndist vitlaust. En við fundum lítinn markað, sem var skemmtilegur. Keypti þar brauð úr steinofni, og hunang. Og fann bláber og keypti 4 kg. Á enn eftir að frysta eitthvað af því. Kem engu í verk nema útivinnunni. Við fengum okkur kaffi og köku og þetta var hin finasta ferð.

Á fim. fór ég í hjóltúr með Frau Kühle, syni hennar og barnabarni. Þetta voru um 15 km. Skruppum til Leiferde, sem er þorpið sem 5. og 6. bekkur í menntaskólanum eru. Fórum á stað þar sem tekið er á móti dýrum, sem eru lasin eða hafa verið skilin eftir á víðavangi. Fullt af uglum, broddgöltum, skjaldbökum, og fuglum. Var mjög gaman.

Svo ég er bara dugleg að vera á ferðinni. Skrapp í gær til Gifhorn að kaupa skrúfborvél. Og keypti slatta af haustblómum í leiðinni. Í morgun var ég i samtalsmeðferðinni, og kom við í búð.

Það er hið besta hljóð í Margréti. Skírnin gekk vel. Hún spilaði á píanó þó að presturinn gleymdi henni nú og hún spilaði þá bæði lögin í lokin í stað þess að byrjað væri með spiliríi. Svo sungu þau Jan, -pabbinn. Hún gisti sem áður segir hjá Stefáni Erni tvær nætur. -Nú og svo byrjaði norskunámskeiðið. Henni líkar það vel. En það fer rosalegur tími í ferðirnar og þetta er ansi seint um kvöldið. En þetta eru nú bara 6 vikur og hún þarf örugglega ekki á fleiri því hún getur líka lært af disk og svo af því að tala við hjónin.
Í dag fór hún til Oslo og hitti íslenska stelpu, sem þekkir Ástu. Fék SMS um að þetta hafi verið fínt. Vonandi að þær nái vel saman.

Á morgun ætla ég til BS að hitta Danielu, frænku Klaus. Fer eftir vinnu. Við ætlum að kíkja í Ikea. Og kannski ég komist í klippingu. Svo er ég á kattavaktinni á fim. til laugardags.

Jæja. Þetta er nú að verða dágott. Vona að allir séu hressir og frískir. Hvolpurinn að koma til Þórdísar og mikill spenningur þar á bæ.

Hafið það sem best. Saknaðarkveðjur til allra-- ykkar Áslaug í stuði :)------------

2 comments:

Anonymous said...

Alltaf gott að vera í stuði - ég er hlynt því :) Kv. Malla

Anonymous said...

frábært að vera í stuði.
lovjú Margrét