Wednesday, September 21, 2011

Yndislegt haustveður.

Hér hefur verið ótrúlega milt og gott veður í lengri tíma. Það er því ekki furða að mig langi frekar út í garð en að taka til inni. Reyndar tók ég á honum stóra mínum og ryksugaði og lagaði til uppi eftir helgina. Og ryksugaði líka niðri. Setti hreint á rúmið. Þvoði þvott og var bara voða dugleg.
En mestur tíminn fer í útivinnu. Veturinn kemur víst nógu fljótt.
Í gær málaði ég í 3 klukkutíma. Er líka næstum komin út á enda. Svo er eftir girðingin við akurinn. Og hér og þar á hliðinni, sem snýr inn í garðinn. Það er því ekki neitt að fara að klárast þetta málningarverkefni.
Í morgun setti ég niður Erikur og Silfurkamb. Það blasir nú við framan við veröndina. Og meðan ekki er snjór gleður þetta augað.
Í dag tók ég svo illgresið á stéttinnni fram við húsið. Maður er skyldugur að halda stéttinni hreinni. Sópa og moka snjó og hreinsa illgresið. Það er alltaf mikið verk þar sem þetta illgresi situr vanalega vel fast. Var reyndar búin að vinna náttúruspjöll með því að hella ediki á það, og það drap slatta svo auðveldara var að ná þessu upp, hehe. En auðvitað er þetta stranglega bannað :)

Ég er búin að taka fram bútana mína, sem ég saumaði hjá Angie. það eru meira en 8 ár frá því ég gerði þá. Og sumir minni , aðrir stærri,--ekki nógu gott. Held ég verði að gera tvö teppi úr þessu og gera bútana alveg jafn stóra. Mér vex þetta svo í augum. Vildi hafa Maddý eða Diddu Jó hérna. En mér víst ekki boðið upp á það, ó nei. Maddý bara að fara til Svíþjóðar í staðinn fyrir að koma til mín. Og hérna er allt svo ódýrt--þær Kristín hefðu sko betur komið hingað. Og hvað ég hefði nú stjanað við þær, ó já.
Vill virkilega enginn koma til að láta stjana við sig--hehehe?
Það eru víst að verða 10 ár frá því Heljarslóðarorustan mætti til okkar. Vildi að þau væri að koma aftur!

Af Margréti allt gott að frétta. Lærir núna norsku á fullu. Búin að kynnast stelpu, sem henni líkar vel við á námskeiðinu og var með henni í Drammen í gær.
Um helgina fer hún og gistir hjá Rakel, sem býr nálægt Oslo. Svo ef Þorgerður hefur einhvern tíma er ekki langt að fara að hitta hana.
Sorglegt að frétta svona seint að hún væri á leiðinni til Oslo. Annars hefðu þær getað planað að hittast þegar Þorgerður fór í innkaupaferðina í gær. Það tekst þá bara næst.

Það gengur vel með sokkinn, sem ég er að prjóna. Hér og þar smá mistök, en allt í lagi :) Jimmi frændi myndi líklega setja út á prjónaskapinn, en sem ullarsokkur i gúmmistígvél ætti þetta að duga. Og svo er bara að halda áfram. Handa mínum þremur afkomendum og ef mamma fer ekki í að prjóna á Didda þá verð ég líklega að gera það eins og í gamla daga--hehe.

Á sunnudaginn eru 2 mánuðir frá því við fórum frá Norge. Tíminn hefur ekki verið fljótur að líða en maður verður bara að finna sér nóg að gera. Og þau eru mörg verkefnin, sem eru á dagskrá.
Hver veit nema eitthvað verði gert, sem kemur Margréti á óvart þegar hún kemur heim.
Vonandi kem ég Klaus á háaloftið um þessa helgi :) Get þá klárað sjálf það sem eftir er kringum gluggann. Spasla, mála og setja upp gardínustöng og stytta gluggatjöld, sem ég á tilbúin.
Er að leita að skápum fyrir eldhúsið. Vil taka niður hilluna ofan við eldhúsborðið. Setja skápa, sem eru eins og þeir, sem Affí er með. Og hélt að þeir væru frá Ikea og er búin að leita og leita. En þá kom í ljós að auðvitað eru þau ekki með slíkt drasl--hehe--heldur danska skápa. Svo ég verð líklega að fara í eldhúsinnréttingaverslun:)
Og last but not least- eftir er að fara í gegn um óteljandi slidesmyndir og skanna og sortera.

Þá fer ég að slá botninn í þetta og býð ykkur góða nótt. Sakna ykkar allra.

4 comments:

Anonymous said...

Mikið hrikalega ansk... ertu dugleg !! 'Eg er ekki einu sinni búin að klippa runnana fyrir veturinn svo líklega verður það ekki gert þetta haustið. Grillið óþrifið og bíllinn skítugur. Jedúdamía ! Hef svo sem nóg að gera í skólanum, og er að dunda við prjónaskapinn inn á milli þegar öxlin er til friðs. Náði þó að taka hressilega til í húsinu um helgina. VÖ komin með flensu, var með um 40 stiga hita, en nokkuð hress þrátt fyrir það. Ég sagði honum að hafa samband við ættingjana ef hann þarf á hjálp að halda, og ég vona að hann hiki ekki við það. ég heyri svo í honum aftur í kvöld að kanna málin. Sakna þess að sjá hann ekki nema örfáa daga á ári, verst hvað það er dýrt að keyra í dag, annars skrippi maður helmingi oftar suður. Margrét hress sýnist manni, mér finnst nú tíminn líða rosalega hratt, hún varla farin út og þegar liðnir 2 mánuðir. Komin jól áður en maður veit af. Jæja, nóg í bili, kveðja í kotið mín kæra systir. Kveðja affí systir.

Anonymous said...

mér fynnst tíminn líka líða hratt eins og Affí segir :) lovjú Margrét

Anonymous said...

Hæ hæ

Takk fyrir kveðjuna, það má alltaf treysta á dyggan lesanda eins og þig!
Aldeilis haustkraftur í þér og vonandi að þið fáið falleg haustveður áfram. Við höfum reynt að fara út að hjóla og leika hér síðustu daga í notalegu veðri en nú gæti farið að rigna og blása...fjör!

Góða helgi, hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Þorgerður said...

Já við Margrét náðum ekki að hittast, hún var í bíóinu þegar ég var laus og svo var ég farin úr bænum þegar hún hafði samband, en svona er þetta. Tíminn fór aðallega í ráðstefnuna, og svo var ég með vinnufélaga mínum allan tímann. Dró hana í kvöldverð til Margrétar Unnar æskuvinkonu minnar sem ég hef aldrei heimsótt, hún búin að búa erlendis í 16 ár. En ræddi við Margréti í síma og heyrði að það liggur vel á henni og henni líkar vel, enda var ég að spá í að flytja til Noregs eftir ferðina :) Ansi dýrt að lifa þarna, amk á íslenskum launum - 1 pizza á 6000, kaffi á 700 osfrv....