Í dag er bara letistuð á okkur gömlu hjónunum. Reyndar klippti ég græna rúnnann, sem er framan við eldhúsið. En það tók ekki langa stund. Svo sat ég lengi með kaffibollann minn úti á veröndinni, sem ég sópaði svo flott og lagaði til á, fyrir helgina. Klaus var sko ekki til í að setja síðasta stykkið í gluggann á háaloftinu og við settumst framan við imbann klukkan 4 og horfðum á krimma, sem við tókum upp nýlega. Já, svona fór með það. Bara leti og ekkert annað:)
Var líka svo dugleg í gær að mig verkjaði í puttana á eftir. Hreinsaði meðfram nokkrum beðum. Setti niður steina við nýtt beð og það er alltaf mikil vinna. Dúllarí og meira dúllerí.
Það var gaman að heyra að Sigurður Ágúst kom norður. Margrét skæpaði í gær við þau öll í Litluhlíðinni og það var gaman fyrir hana og ekki var mamma síður ánægð að sjá Margréti. Og nú er ég komin með skæpadressuna þeirra og get farið inná þetta við tækifæri.
Í dag ætlaði Margrét til Drammen að hitta nýju vinkonuna úr norskukúrsinum. Vonandi ekki í grenjandi rigningu--hehe. Það er víst að koma haust þarna og kalt orðið. Margrét ekki of hrifin af veðrinu. Og svo er annar mínus að ekki fæst súkkulaði á brauð, eða bollur eins og í Danmark:) Það er ansi margt, sem mælir með Danmark sem framtíðarlandinu--ó já, --og ekki síst að það sé komin ný stjórn, sem er vinstri sinnuð.
Við Klaus söxuðum síðastu hrúguna af greinunum á fö. Held að nágrannarnir hafi verið búnir að fá nóg eftir klukkustund og korter! Þetta er náttúrlega ekki lágvært tæki, hehe.
Við skiluðum tækinu svo áðan til Frau Kühle og verði meira klippt, þá fer það í söfnunina í nóv. Þá koma kallarnir og taka greinabúnt, sem sett eru á stéttina.
Var að sjóða engifer og ætla að setja sítrónu úti samkvæmt ráðleggingum Maddýjar. En brávantar cyannpipar. Er svo löt orðin að koma mér út í búð. Verð víst að fara á morgun :) Og svo verður þetta drukkið daglega--og allt verður gott:)
Svo er ég að prjóna ullarsokka og komst að því að ég er orðin gleymin. Þurfti að hringja í mömmu að fá aðstoð. Og svo er lopinn, sem ég keypti síðast, miklu þynnri en sá, sem ég átti og er byrjuð á. Svo ég verð þá að nota afganga af hinum. Redda því nú.
Er voða montin að vera farin að elda hollan morgunmat--hafragraut með frosnum bláberjum. Batnandi manni best að lifa,hehe.
Annars fátt í fréttum. Garðvinna og hitt og þetta og dútl og snúningar.
Reikna með að fara til Hannover á þriðjudaginn. Vantar efni til að klára bútasaumsteppi Margrétar, sem ég byrjaði á fyrir meira en 7 árum!!!
Fann nefnilega flotta búð þegar ég var þar síðast. Og í leiðinn ætla ég að hitta Ramonu.
Jæja, nú kíkir sólin fram og er að fara að kveðja í dag.
Hafið það gott. Bestu kveðjur----.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ hæ. Letidagar nauðsynlegir inn á milli, þó mér heyrist þið nú hafa gert ýmislegt.
Við komin heim eftir vel heppnaða ferð norður. Gaman að hitta fólkið, sérstaklega gaman að ná að halda Affí og Ella í "gíslingu" í Litluhlíð eiginlega alveg heilt kvöld! Og frábært að ná að tengja Margréti beint í spjall inn í stofu :) Gaman að þessu.
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
Já það var mjög skemmtilegt að hitta Sigurð Ágúst og Svanhildi, og þessa dásamlegu drengi þeirra. Mikið spjallað og gott að fá líf í Litluhlíðina. Ég er að hefja hollustu morgunmatinn okkar aftur sem er hafragrautur með rúsínum í, og svo er stefnan tekin á að minka kaffidrykkju og reyna að fara aftur í ræktina, sjá til hvað ég get gert án þess að setja bakið og öxlina í klessu. Hér er bara ´búið að vera dásamlegt veður, sól og logn þó ekki sé neitt voða heitt. Haustlitir farnir að sjást svo það er ekkert leiðinlegt að labba aðeins úti. Ég þarf líka að byrja aftur að sjóða engiferinn og búa til drykkinn góða, vonandi dugar hann á fótapirringinn :) Annars allt við það sama, Elli situr sveittur með ótal tölvur fyrir Pétur og Pál, og er að verða búin að fá nóg af þessum endalausu reddingum, þetta er gríðarleg vinna sem menn virðast ekki átta sig á. Annað að snúast aðeins fyrir ættingja, tala nú ekki um fyrir Láka Palla sem slengdi stærsta hangiketslæri ´sem ég hef séð hér inn í skúr fyrir síðustu jól, ekki slæm borgun það :) Nú ætlar Elli að fara að taka bílskúrinn aðeins í gegn, eitthvað að laga klæðningu á veggjum og endurhanna rafmagnslagnir og þ.h. Já hann vill vera að dunda þessi elska. ´Jæja nóg af bulli frá mér í bili, kveðja í kotið frá mér og mínum, þín sys affí
oj hafragrautur :) hehe
Margrét
Post a Comment