Og enn skín sólin eins og svo oft hér á haustin. Ég tók mig til og þvoði gluggana í stofunni í gær og pússaði þá að innan í morgun. Ekki ljótt að horfa út núna um hreina glugga á síðdegissólina.
Hafði ekki mkinn tíma í morgun því ég þurfti til Celle. Lér mæla taugarnar. Það var sett eitthvað drasl á hausinn á mér, og svo fékk ég rafmagnsstuð hér og þar í fæturna. Ekki beint notalegt, en tók fljótt af. Allt í lagi þó að þær séu eitthvað hægari en áður. Maður er jú orðinn eldri, ó já. Þannig er það nú. Læknirinn sagði mér að borða mikið af dökkum berjum, ávöxtum og grænmeti til að aðstoða taugaendana og ég lét svo plata mig til að kaupa töflur til að heilsan yrði bara fullkomin, hahaha. Sjáum til hvað gerist með inntöku þeirra.
Kom svo við hjá Sabina Sass, mömmu Birthe. Hún var á leið út úr dyrunum. En við mæltum okkur mót næsta miðvikudag. Og þá ættum við að geta spjallað mikið:)
Kíkti svo í bæinn og keypti slatta af brauði í uppáhaldsbakaríinu okkar. Rúsínubrauð og fléttu með muldum sykri. Og stansaði í þorpi, sem er með svona bændaverslun. Þar fást krukkur með ýmsu góðu í . Svo ég hef nóg í matinn í næstu viku.
Margrét er komin til Rakelar. Þeim ætti ekki að leiðast. Stefnt er í bíó á morgun. Harry Potter. Vonandi að fjórða tilraunin takist. Það var fjör í ungbarnasundinu á fimmtudaginn. Nú var stelpunum díft á kaf og það gekk rosa vel og mikið fjör.
Amman frá Þýskalandi er í heimsókn og sambýliskona hennar með henni. Í gær átti að vera spilakvöld, sem dóttri mín / dætur kunna vel að meta.
Ég fékk sorglega frétt frá Dísu vinkonu um að pabbi Hildar í Oslo væri látinn. Hann var kominn með krabba. Svo Hildur, sem er nýbúin að klára síðustu lyfjameðferðina, þarf heim í lok mánaðarins. Jarðarförin þann 30.9. Já, stundum gerast hlutirnar skjótt.
Var að tala við pabba í símanum. Þau gömlu á leið til Húsavíkur og ætla að gista þar í tvær nætur. Mér líst nú vel á það.
Það eru komnar nýjar myndir hjá Svanhildi. Voða sorglet að enginn nennir að kvitta fyrir sig. Það er manni svo miklis virði að vera ekki að þessu bara fyrir sjálfan sig.
Og hjá Möggu Töggu er líka nýtt blogg.
Spáð er 21 stigs hita á morgun. Svo ekki fer Klaus á háaloftið að klára gluggann, hehe. En við ætlum að fara að læra á nýju/gömlu myndavélina, sem pabbi gaf okkur. Búin að redda filmum. Og svo gæti verið að ég kæmi honum í girðingarmálningu. En líklega förum við frekar í hjóltúr.
Hafið það gott og góða og rólega og fjölskylduvæna helgi--
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Sæl systir. Mér tekst ekki að kvitta hjá Svanhildi hvernig sem ég reyni en skoða reglulega allar fínu myndirnar hennar og ekkert slor handavinnan hennar.Hér rignir eins og hellt sé úr fötu, ég er að reyna að manna mig upp í að labba í bæinn og fara í ræktina, þá í fyrsta skipti í nærri fjórar vikur. Hef ekki þorað út af bakinu og öxlinni en kannski finn ég einhverja leið til að gera æfingarnar varlega :) VÖ búinn að vera með slæma flensu, mikinn hita með tilheyrandi óþægindum. Ingó fór til hans og keypti eitthvað af mat fyrir hann. Finnst ferlegt að geta ekki verið hjá honum og vita af honum svona einum. En í gærkvöldi var hann aðeins hressari. ég hringi í hann upp úr hádegi í dag og kanna málið. M. og p. farin til húsavíkur, það ætti bara að vera gaman og góð tilbreyting þar sem þau hitta aaaaaaldrei neinn ( segir pabbi hehe). Hér sefur liðið ennþá, Aldís bakaði helling af bollum og skinkuhornum í gær, og við gúffuðum í okkur þangað til okkur var orðið illt. Hafdís og Sibbi litu við í gærkvöldi og eru á leið í bústað í Fnjóskadal og sögðu að okkur væri óhætt að líta við en ég veit ekki hvað við gerum. Jæja nóg í bili. Kveðja til Klaus, þín sys Affí.
Ég veit þið skoðið öll reglulega, en eruð náttúrlega svo feimin nema Áslaug! Æ, grín.
Voðalega eruð þið öflugar systur. Varð hugsað til Arnhildar því þeir feðgar ætla að skreppa á Strumpana í bíó í dag.
Vona að VÖ fari að jafna sig af flensunni, alveg ferlegt. Ég hef beðið hann bróður ykkar að bjóða honum til okkar ansi oft en held ég verði núna sjálf bara að taka upp símann. En hann veit vonandi að hann þarf ekki að hika við að hringja til okkar ef eitthvað er.
Vona að Arnhildur sé að ná sér, hefði verið gaman að hitta hana fyrir norðan um daginn en það verður bara næst.
Bestu kveðjur úr rigningunni hér, Svanhildur
Affí-þú átt að fara inn á gestabókina til að kommentara myndirnar.--gerir þú það?
Já, slæmt með Valdemar. Skil þig sko vel að vilja vera hjá honum þegar hann er lasinn.
Svanhildur-alveg rétt hjá þér-þú skalt bara bjóða honum og ég veit að Affí verður þér þakklát og Valdemar auðvitað lika:)
Takk báðar fyrir að kvitta.
Áslaug
Gott að sjá að það vanti bara grænmeti í taugarnar hjá þér systir. Hér er allt mjög fínt, Friðrik A var að koma heim úr stórskemmtilegri ferð til Kalmar í Svíþjóð og greinilega margt skemmtilegt sem þau sáu og gerðu. Svo náttúrulega kynntist hann nýja bekknum sínum mjög vel. Kannski minnki þá fókusinn á MR en ég vona samt að hann haldi áfram sambandi við krakka sem hann kynntist þar líka. Það á ekki að vera annað hvort eða. Gamla bíó opnað með viðhöfn í gær, Eiríkur H var í dyravörslu og ýmsu fleiru í eina 7 klst. FAF og Ásta fá vinnu þar líka, Ásta var í gær. Svo var þetta líka fína leikrit sýnt, bara bráðskemmtilegt. Svo er fimmtugsafmæli á eftir, en ég ætla ekki að tala um verkefnin sem ég ætlaði að fara yfir í dag - en Arsenal vann 3-0
Bestu kveðjur diddi
kvitt kvitt :D Arnhildur
jæja þá er loksins komið komment frá mér líka. ég er samt löngu búin að lesa bloggið :)
Margrét
kvittikvitt hér líka :)
Sammála grænmetiskommentinu hans Didda híhí!
Heyrði í mömmu áðan , ánægð með Svíþjóðarferðina. Hildur vinnur og vinnur fyrir Asíuferðinni, Dagur stundar fótboltann og aðeins kominn í dansinn líka, Helga Margrét ekki komin með dansherra. Búið að ákveða fermingardaginn hennar, 27. maí sem er hvítasunnudagur. Færðum þetta til svo Hildur verði nú með okkur þennan dag. Nú getur familían tekið þennan dag frá takk!! Helga tekur þátt í fermingarundirbúningnum af fullum krafti, unglingastarfinu í skólanum o.s.frv. Við Gilli siglum þetta svo með þeim, keyptum okkur enn eitt árið árskort í Borgarleikhúsið og sáum fyrstu sýninguna með Hildi í gærkvöldi.
Bestu kveðjur frá okkur í Fjallalindinni :)
kvitt kvitt-ástarkveðjur Arnhildur
og svo kvitt kvitt einu sinni enn bara af því það er svooo gaman :D lots of love Arnhildur
Post a Comment