Kominn fimmtudagur. Hellidemda rétt áðan. Dökkur í lfti og spáð rigningu í allan dag. Eiginlega ætlaði ég til BS í dag, eða öllu heldur hélt ég að ég þyrfti að fara. Fékk nefnilega nýja festi á úrið í gær í BS og er heim kom gat ég ekki með nokkru móti opnað hana. Klaus reyndi líka og ég varð að sofa með úrið. Setja gúmmihanska yfir það í sturtunni. Nú, en Ines, sem vinnur með mér í gæslunni, fór að skoða þetta og viti menn--hún fann annað lok undir, sem er vel fast, en með lagni má losa það og festin opnaðist!
Svo ég tek allt til baka um vitlausa konu hjá Karstadt, og er bara sjálf vitlaus, hahaha.
Sleppi því að aka til BS í dag þar sem veðrið er svona og fer bara í næstu viku í rólegheitum.
Ég hitti Danielu í gær í BS. Við renndum til Ikea. Fengum okkur pylsu og röltum um. Fann reyndar lítið af því, sem ég ætlaði að kaupa. En keypti tvo myndaramma. Er með svo flotta mynd af Margréti á píanóinu og ætla að setja mynd af Arnhildi og KD líka þar.
Svo bauð ég Danielu í kaffi og köku hjá Möwenpick. Sátum lengi og spjölluðum þar. Á eftir kíkti ég smá í búðir, en ekki var neitt verslað.
Í morgun dreif ég mig að athuga um tíma í jóga. Konan var ekki við, en ég skildi eftir símanúmerið mitt og hún hefur svo samband. Fékk líka tíma hjá augnlækninum. Þessir blossar hætta bara ekki, og þó þeir séu bara í myrkr, vil ég vita hvort þetta sé eðlilegt.
Og svo fór ég í heimsókn til Christine, sem er fyrrverandi nágranni Angie, vinkonu minnar frá Kanada. Hún var svo glöð að sjá mig og sagði að Angie hefði örugglega ýtt við mér. Það er nefnilega dánardagur Angie í dag. Hún dó fyrir 7 árum. Og Christine átti 62ja ára afmæli í gær. Já, stundum er eins og ýtt sé við manni, ekki satt.
Nú neyðist ég til að fara að ryksuga og laga til. Hér eru stórir hnoðrar undir rúmmum og ryk um allt. Spáð er svo þrusuveðri á morgun og um helgina og jafnvel upp í 26 stig. Þetta er nú bilað veður og á Íslandi kominn hörkuvetur í september. Ætli þið fáið ekki vorveður í október í staðinn. Hver veit.
Hjartans kveðjur til allra nær og fjær.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
kvitt kvitt :) hehe er að fara að drífa mig til Drammen að hitta stelpuna frá Estlandi. Heyrumst öruglega í kvöld. lovjú Margrét
Skólinn byrjaður á fullu og ég er hálf sprungin eftir fyrstu vikuna, mikið að gera en allt gengur vel. Góður hópur sem ég er að kenna. Var að klára tiltekt í skólanum og er komin í frí. Þá bíður eftir mér frekar skítugt heimili hehe, hér þarf líka að ryksuga og skúra, tala nú ekki um allan þvottinn eftir vikuna. Elli tók að sér keyrslu á flutningabíl fyrir kunningja sinn, þetta er stór sendiferðabíll, og hann fór suður á þriðjudag með fullan bíl af dóti sem hann þurfti síðan að keyra út og suður í Reykjavík, og svo aftur heim á miðvd. með dót til baka með tilheyrandi útkeyrslu hér í bænum. Hann fer aftur næsta þriðjudag í aðra ferð, ja ef ekki allt verður komið á bólakaf í snjó. Hann er að þessu bara að gamni, gat þá í leiðinni farið með rúmið hans VÖ og tekið hitt sem var fyrir sunnan til baka. Ég keypti rúm á sínum tíma þegar hann byrjaði í HÍ, rúm sem er minna en það sem hann átti hér heima. ALdís ekkert voða ánægð að fá nú minna rúm til að sofa í hehe, en það er nú alveg nógu stórt samt, er 1.20 á breidd. Hef ekkert komist í berjamó og er farin að örvænta,hér er skítkalt og snjór niður í byggð. Kannski nær maður smá um helgina ef hann hangir þurr. Jaja, best að fara í tiltekt. Kveðja í kotið, þín sys affí
áslaug vitlausaaaa haha :D
en ja vorfeður í oktober hljómar vel!
sakna þin elsku frænka :D
kv.guðny
vorveður* haha
kv guddaaa
já mamma,endilega drífðu þig í jóga-það er svo gott fyrir mann. Og gott að þú ert dugleg að hitta fólk (og lækna híhí). ástarkveðjur þín Arnhildur
æðislegt veður hérna sunnan megin, erum heldur betur búin að notfæra okkur það. Fórum í sund og grill í gær, hjólaferð, bjórgarð og ís í dag :) Voða ljúft. Á þriðjudaginn byrjar skólin hjá börnunum og á fimmtudaginn er ég að fara með vinnunni heim til Íslands :) kem síðan aftur á mánudaginn. Voða spennandi!
Kærar kveðjur, Aldís B.
knús til þín systir. Hér er bongóblíða sól og yndislegt. ég var að spá í berjamó í kvöld vona að þetta sé ekki allt orðið ónýtt því ég hefði viljað frysta fyrir veturinn og nota í búst. allir bara hressir og Tumi í stuði þessi elska og ekki annað hægt en elska hann því hann er svo blíður og góður kv þórdís
Skítakuldi hér, en á eitthvaðað lagast í vikunni. Nóg að gera hjá öllum, Elli að fara aftur suður á morgun og Aldís á fullu að þrykkja á bolina. Er að reyna að prjóna eitthvað þó öxlin sé ekkert voða góð, en tek mér bara góðar pásur og horfi á sjónvarpið meðan ég prjóna. Annars allt við það sama. Gaman að sjá myndirnar af garðinum, aldeilis orðið flott hjá ykkur. Knús á Klaus, þín sys Affí
Post a Comment