Wednesday, October 5, 2011

Kominn október.

Hef ekki bloggað í meira en 2 vikur. Það var þvílíkt sumarveður að við vorum sem allra mest í garðinum. Ég hef aldrei upplifað svona veður a þessum tíma. Sat lengi úti á laugardaginn og fékk meiri lit en í allt sumar:) En nú er þessum sumarauka lokið og kólnandi veður framundan. En við erum þakklát fyrir það, sem við fengum. Ekki er nú veðrið heima sérlega gott. Sá á Facebook að snjóað hefði fyrir norðan. Meira veðrið þar.

Við Klaus höfum verið dugleg að labba og hjóla. Farið í nokkrar styttri ferðir hér í nágrenninu. Svo var gengið frá ýmsu í garðinum. Sett röð af steinum ofan í grasið framan við kant svo auðveldara væri að slá grasið. Plantaði hellingi af blómlaukum. Og hef verið að berjast við illgresið á gangstéttinni. Það fer nú að minnka um þessi útistörf og þá tekur við annað við inni.

Við vorum í löngu helgarfríi síðast. Sameiningardagur Þýskalands á mánudaginn. Klaus vann við að setja myndir af tölvunni á flakkarann til að hafa þær á fleiri stöðum ef eitthvað kæmi uppá.
Við höfum ekki farið í bíltúr síðan við renndum til Harzfjallanna nýlega. það var fín ferð og gaman að koma þarna. Reyndar var allt fullt af bílum um allt og hvergi stæði. En við erum nú góð í að sitja í bil og aka og aka :)

Í gærkvöldi var síðasti fundurinn hjá mér í stjórninni í foreldrafélaginu. Svo er aðalfundur í byrjun nóvember og þá verður kosið í störf. Alltaf gaman að hitta liðið og ég verð örugglega dugleg að aðstoða þó ég sé að hætta.

Allt fínt að frétta af Margréti. Smá kvef að angra hana af og til. Hún ætti að vera núna á norskunámskeiðinu. Svo er bara eftir næsta vika. Þá ætlar hún að læra norsku bara heima og ætti ekki að vera í vandræðum með það. Hún var ánægð með dvölina hjá Rakel. Ætlar svo til Oslo á Teestube-sem er opið hús fyrir norska og þýska krakka /fullorðna. Gistir á eftir hjá Rakel. það var sko gott að þær kynntust.
Mamma Dani og sambýliskona hennar voru í tvær vikur hjá þeim. Flugu heim á sunnudaginn. svo nú þarf Margrét ekki að bíða í tröppunum eftir að komast á klósettið--hehe :)
Og það styttist heldur betur í mína ferð. 15.10 fer að renna upp. Jibbí.----

Arnhildur hefur verið dugleg að hafa samband. Og kvitta á blogg og Facebook. Sem er mér mikils virði. Vildi helst hafa þessar báðar dætur mínar hja mér, en mikilvægast er að þeim líði vel.
Nú, og svo er Þórdís að fara norður og búin að lofa að koma á skæpið og láta mömmu og pabba tala við mig, og líka við Margréti. Og þá mætti nú Arnhildur vera með í því. Sé Didda oft á skæpinu. En á eftir að hafa samband við S.'A. og tala við hann og þessa gullmola hans.

Eiginlega ætlaði ég til BS í dag að láta klippa mig og lita. En var svo sein fyrir . Þurfti snemma í vinnuna til að taka til pappír og klippa í búta fyrir föndur. Og komst ekki í sturtu í morgun því ég dreif mig ti Frau Kühle að hjálpa henni að saxa greinar. Við vorum sko Frauen-Power-. Svo fór dagurinn í að strauja, klára ullarleistana, og blogga núna. Stefni á að fara á morgun. Finnst svo leiðinlegt að sitja á hárgreiðslustofu með lit í lengri tima, hehe. En það er orðið bráðnauðsynlegt:)

Annars fátt í fréttum og ég slæ botninn í þetta og vona að þið verðið dugleg að kvitta. Margir lenda í vandræðum að kvitta hjá Margréti en vonandi tekst það núna. Það er svo gaman að skrifa ekki bara fyrir sjálfan sig.
Bestu kveðjur til allra. Hafið það gott þrátt fyrir veður og annað, sem kann að vera lítið spennandi.:)

5 comments:

Anonymous said...

ú ég er fyrst að kommenta !!
Margrét

Anonymous said...

Hér er já kominn snjór, þó í augnablikinu rigni. Það á að koma smá hiti um helgina og svo aftur kaldara. Slabb og krap um allar götur. Elli fór til Rvikur á fund í morgun og ég ætlaði að keyra hann og Stebba Jó,þinn gamla skólabróður, á völlinn, en það var sko ekki fært á fólksbílnum svo þeir urðu að taka leigubíl. Ég fékk far með Þóri vini okkar en hann leit til allrar hamingju hér við í morgun í smá kaffi, var að skutla barnabarninu í skólann, og ég var með helling af bókum og tölvuna sem ég hefði þurft að labba með í skólann. Er að reyna að hlífa öxlinni eftir bestu getu. Langur dagur í dag því það var brjálað að gera, var að kenna á öllum hæðum, hljóp á milli og svo voru tveir fundir líka. Erum að fara í samstarf við leikhóp og tónlistaskólann sem verið var að skipuleggja. Aldís bara nokkuð hress og VÖ líka. Mamma kom í gær að sýna mér finu kápuna sem systkyni hennar gáfu henni í afmælisgjöf, ekkert smá falleg og klæðir hana svakalega vel. Ég ligg bara í leti í kvöld, gríp kannski í prjóna en ætla í bælið snemma. Jaja, nóg í bili. Kveðja þín sys affí

Anonymous said...

Áfram duglega mamma og meira Frauen Power :) held að bollaspádómur Maddý með það að burðast upp brekkuna og það sé bara að rætast híhí.
verst að hún sá ekki þetta endalausa kvef hjá mér, er að fá ný sýklalyf í dag og vonandi losna ég endanlega við þetta núna...vissi ekki að grannur kvenmannslíkami gæti framleitt svona mikið af gulbrúnu og grænu hori, og stanslaust nefrennsli með...hehehe!
ástarkveðjur frá Arnhildi "horuðu" :D

Anonymous said...

Notalegt að fá svona sumarauka en vonandi að það fari ekki að kólna allt of mikið hjá ykkur. Hér er sem betur fer ekki kominn eins mikill vetur og fyrir norðan, vona að hann staldri stutt við hjá þeim í þetta skiptið.

Við verðum að fara að muna að kveikja á skype.

Bestu kveðjur, Svanhildur...sem hlýtur þá að vera ein af gullmolunum...he he.

Þorgerður said...

Kvittikvitt - allt gott hér. Erum að passa Margréti litlu yfir helgina, Malla og Kristín í brúðkaupi í Aðaldal. Smá bakstur fyrir afmæli Dags á morgun, annars er stefnt að fjölskylduafmæli á 20 ára afmælisdegi Hildar um næstu helgi, og hún verður svo með partý um kvöldið. Við gömlu fáum okkur sennilegast eyrnatappa :)
Brjálað veður undanfarið, leiðinlegt þegar helgarnar fara í hvassviðri og inniveru í stað göngutúra í haustlitunum.
Mátt endilega setja bloggslóð Margrétar hér inn, gleymi þessu alltaf...
Hafið það gott öllsömul!