Hæ hæ, þá sitjum við mæðgur hérna í herberginu hennar Margrétar. Úti er þoka og smá rigning. Fjölskyldann fór í gær í hytte og kemur ekki fyrr en á föstudeginum. Við njótum þess bara að hafa húsið út af fyrir okkur og elduðum okkur glæsilegar kjötbollur með rauðkáli. Margrét hefur ekki borðað rauðkál og kjötbollur síðan hun kom hingað.
Við skruppum svo í langan göngutúr í gær. Veðrið var æðislegt. Glampandi sól í tíu stiga hita. Löbbuðum lengst upp á fjall, næstum því spungnar. En Margrét var nú miklu betri þar sem hún er komin í æfingu með að labba upp þessar norsku brekkur. Löbbuðum svo eftir skíðabraut og fengum okkur nesti - samlokur með norsku Nutella. Vorum í tvo tíma.
Eftir það fórum við að versla í einu búðinni hér í Lier sem er opin á sunnudögum. Keptum semsagt þessar æðislegu bollur. Stefnt á að fara til Drammen í dag og kikja í Gullskogen Center sem er innkaupamiðstöðin í Drammen. Gott að eyða deginum inn þegar veðrið er svona leiðinlegt.
Ég hef það á tilfinningunni að ég sé í sumarbústað. Timburhús, allt til staðar, arinn ...
Tvíburarnir eru æðislegir. Búin að knúsa þær mikið. Þær tóku mér líka mjög vel sem þær geri ekki við alla :) Rosa stolt.
Biðjum að heilsa öllum
Áslaug og Margrét
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Frábært að heyra, njótið tímans saman!
Frábært, hafið það gott!
..kv. Svanhildur :)
Post a Comment