God dag alle sammen. Er það ekki norska? Margrét segir jú þannig að þetta hlýtur að vera rétt.
Við erum í stuði saman í góða veðrinu í Noregi. Báðar ánægðar að vera í fríi. Margrét sérstaklega fegin að þurfa ekki að ganga vel um allt. Fínt þegar fólkið er í hytte og við getum verið afslappaðar ... og gengið um eins og við viljum. Samt er mamma (sem sagt Áslaug) frekar pirrandi með það að þurfa að taka til helst í öllum skápum og þrífa öll gólf og þrífa ískápinn bara í leiðinni ... En Margrét bannar henni það.
Á mánudaginn skuppum við til Drammen í innkaupaferð til Gullskogen senter. Margrét snillingur keyrði eins og herforingi. Drap bara einu sinni á bilnum við rautt ljós :) Það var farið í ýmsar búðir og líka á kaffihús sem við fengum okkur góðar og gómsætar tertur. Og kaffi og heitt kakó. Keyptum nokkrar jólagjafir og svo fékk Margrét "föðurlandið" og hún veit enþá ekki hvað það er ... oh ok síðar nærbuxur. Hún fékk semsagt síðan nærbol og leggings úr þunnri norski ull. Veturinn er sko á leiðinni maður !! Ó og svo segir mamma að við ættum að skrifa að við hittum Ernu Svöfu. Við semsagt hittum Örnu Svöfu. Hún vinnur nefnilega í Gullskogen senterinu.
Í gær fórum við svo til Úschlú- það er sko Oslo borið fram á norsku. Keyrðum á bílnum til Lier stasjon og tókum svo lestina. Löbbuðum upp og niður Karl Johans götuna. Svo tókum við sporvagn til Vigelandsparken. Settumst þar niður og átum nestið okkar í glampandi haustsól. Svo var bara labbað um og tekið myndir af þessum glæsilegu styttum. Best er nátturlega öskrandi og grátandi strákurinn! En mamma fann svo styttu af ljúfum dreng :) Svo löbbuðum við að höfninni í Úschlú og ætluðum eiginlega að taka ferju út í eyjarnar en þá var þetta bara ekki hægt sko. Því að síðasta ferjan hefði ekki skilað okkur til baka og svo var þetta líka eitthvað skrítið á þessari höfn því það var enginn að vinna þarna. Þannig að við settumst bara í strætó og rúntuðum eitthver og við vitum eiginlega ekki hvert því við tókum bara fyrsta strætó. Allavega vorum við einhvers staðar langt uppi. Og ferlega gaman. Síðan fórum við með neðanjarðarlest til baka í sentrumið. Og tókum svo bara lest heim.
Í dag er enn einn yndislegi dagurinn. Margrét er að hoppa út í dyr til að taka myndir af sólarlaginu eftir glampandi sól í dag. Tókum strætó til Sylling (þorp hérna rétt hjá) og löbbuðum þar um. Fengum okkur svo nammi og vorum alsælar. Þegar við komum heim fengum við okkur sænska snúða og fórum í spil með teningum sem við vitum ekki hvað heitir. Margrét lærði að þvo ullarpeysu í höndunum. Hún er alveg að verða fullkomin húsmóðir.
Jæja, vona að þið hafið skemmt ykkur vel við að lesa þetta hressa blogg okkar. Við vorum að blogga til skiptis. Vonum að við fáum mörg góð komment út á þetta.
Ha det bra! (Og þetta er sko norska!)
Margrét og Áslauuuuuuuuuug
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gangi þér vel Margrét mín að halda mömmu frá því að þrífa híhí, ástarkveðjur ykkar Arnhildur :D
Post a Comment