Kominn mánudagur og úti er nokkuð hvasst og rigning. Svona dæmigert haustveður og mann langar mest að stinga sér ofan í rúmið. Næstu dagar eiga að vera svona líka. En við getum nú ekki kvartað eftir allt fína veðrið, sem við erum búin að fá. Og það að vetur og kuldi komi, er nú einu sinni náttúrulögmál. Ég drekk engiferdrykk og hef sítrónu og cyennepipar í honum. Tek 2 skeiðar af berjadrykk til að verða ekki lasin. Og vona að þetta hjálpi gegn kvillum og kvefi.
Um helgina gekk ég frá Dalíunum mínum. Gróf þær upp, og klippti allt af rótunum. Lét þær þorna smá á veröndinni. Og setti svo í kassa. Vonandi hættir að rigna á fö. og þá fer ég með þær til bóndans. Hann geymir þær í vetur. Nú, ef rignir þá er bara að fara í rigningunni.
Tók beðið framan við skúrinn í gegn. Plokkaði illgresi. Þeim fer nú að fækka skiftunum, sem maður þarf að gera það. Ekki búin að klára girðinguna því það var bara of hlýtt og gott veður, sem ég notaði í annað. En það hljóta að koma þurrir dagar og ef ekki, þá fer ég í þetta næsta vor.
Og þá fer maður að snúa sér að inniverkunum.
Geymslur, skápar, saumaskapur og já, það er víst að koma að því að kaupa verði jólagjafirnar og koma í póst um miðjan nóvember. Allt í einu er tíminn farinn að flýta sér, hehe.
Ég vona og bið að ég verði ekki lasin fyrir ferðina til Oslo. Það væri nú ergilegt. En treysti því að ég fái góða ferð og geti notið þess út í ystu æsar.
Hjónin verða í burtu í tæpa viku svo við Margrét erum einar í kortinu. Og í seinni vikunni förum við í 3 daga til Bergen. Svo er málverkasýning hjá Hildi, konu Ásgeirs. Og nóg að gera.
Margrét átti góða helgi núna. Fór á þýskt kvöld í einhverju safnaðarheimili, þar sem slatti af þýskum stelpum, mest Au Pair, voru. Þær fóru í spil, dönsuðu og spjölluðu.
Áður en það byrjaði fór hún að Holmenkollen með einni þýskri, sem hún hitti þarna í fyrsta sinn. Þeim kom vel saman. Hittu svo eina í viðbót og settust inn á McDon. Fóru svo saman á þennan hitting.
Hún gisti svo hjá Rakel, sem er fínt því það er svo langt fyrir Margréti að aka heim til Lier. Og þetta endaði ekki fyrr en um miðnætti.
Í kvöld er næst síðasti norsku kúrsinn. Endar á miðvikudaginn.
Ég hef verið að setja inn myndir á facebook. Er nefnilega að læra þetta. Og er næstum alveg búin að ná þessu. Það eru svo sem ekki merkilegar myndir. Sumar fyrir Margréti af heimabyggðinni. Og ýmsir kannast við hina og þessa staði, sem ég tek myndir af. Gaman að læra þetta og er vongóð að mér takist þetta, hehe.
Mér tókst að draga Klaus upp á háaloftið um helgina. Hann setti síðustu plöturnar í kring um gluggann. Nú er eftir að setja nokkrar skrúfur í plöturnar. Spasla og mála. Og þá hægt að setja gardínustöng og gardínu svo sólin hiti ekki allt upp í suðu á sumrin. Og eiginlega ætti nú að vera hægt að gista þarna uppi--er orðið sæmilega rúmgott eftir að ég henti slatta af drasli.
N+og er samt eftir :)
Frau Kühle þarf að lána syni sínum í Hannover bílinn og ég ætla að aðstoða hana í vikunni. Við þurfum báðar til Gifhorn á morgun eftir hádegið. Ég með tilvísanir og ná í lyfseðil. Og hún í banka. Svo fær hún bílinn meðan ég er í Lier. Skrapp í morgun til hennar og drakk morgunkaffi með henni. það er notalegt að geta farið eitthvert eins og heima. Gerði tvær tilraunir í dag að heimsækja konur, en hvorug heima. Fer þá bara aftur seinna. Og ekki var konan við, sem heldur joganámskeiðið, en hún fékk skilaboð um að hafa samband við mig.
Jæja, hann blæs og hvæsir en blæs ekki húsið um koll. Klaus kominn og ég ætla að hita te handa okkur í dimmunni og þýska haustinu.
Hafið það best í íslanska haust/vetrarveðrinu.-----
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Ég hlakka svo bara til að fá þig hingað til Norge. Svo er held ég líka betur veður hér ... allavega núna. Þótt það sé kalt þá er oft glampandi sól :) Deilig Norge :D
Lovjú Margrét
Hér snjóar, rignir og blæs til skiftis og ekkert voða huggulegt að vera úti. Ég er í aðeins minni vinnu núna í eina viku, þarf þá ekki að mæta kl hálf 9, en er samt alltaf um 3 klst. á dag,og allan föstudaginn. Í þessum skrifuðu orðum er byrjað að snjóa.... en frekar krapahríð en fallegur jólasnjór.Hitti Þórdísi og fj um helgina og Elli fór á tónleikana, en ég var allt of þreytt til að sitja í tvo tíma, ekki það besta fyrir bakið svo ég lá bara í leti heima og tók það rólega. Elli skemmti sér mjög vel og sagði að Ingó hefði verið frábær. Verst að hann skuli ekki geta unnið fasta vinnu við að spila, það er hans heimur og þar er hann að standa sig frábærlega. Annars allir þokkalega hressir, kvefið aðeins að minnka og öxlin betri. Fór í ræktina í gær og gerði helling af bakæfingum svo mér líður betur í dag, kannski smá strengir en það er bara eðlilegt. Jæja, best að fara að haska sér í vinnu. Kveðja í kotið mín kæra systir, þín Affí
Hér er rigningin líka mætt og er ansi köld og úr öllum áttum! Haustlægð eins og hún gerist leiðinlegust.
Það verður yndislegt hjá þér að heimsækja Margréti.
Mér varð hugsað til þín þegar ég horfði hér á Dalíur á svölunum hjá mér...hvort ég ætti kannski að taka "laukana" eða það bara með mér í sveitina og geyma þar í kaldri geymslu?
kvitt kvitt :) verður þú þá ekki á afmælinu þínu hjá Margréti? það er bara snilld og vona að þið eigið yndislegan tíma saman, love jú Arnhildur sem var að gera leirskálar í "skólanum" :D
Svanhildur --taktu laukana/ræturnar og settu í kalda dimma geymslu, ekki vökva eða neitt þannig. Gott að hrysta vel moldina af áður en þeir fari ofan í kassa. Trékassa eða pappa--sama. Og svo bara setja niður næsta vor þegar ekki er lengur frost í jörðu--gangi þér vel. Áslaug.
Takk Áslaug, held ég taki þá í svetina - kaldari staðir þar en hér heima!
Bestu kveðjur, Svanhildur
kvittikvitt
Kristín E. :o)
kvittikvitt
Kristín E. :o)
Hvað ertu alltaf að draga Klaus upp á loft?
Post a Comment