Sunday, October 30, 2011

Haustfríið liðið.

Það er ekki langur tími að vera í fríi í 2 vikur. Allavega ekki þegar þær eru svona útplanaðar og allt svo skemmtilegt. Allt gekk svo vel og ég naut tímans verulega.
Flugið til Oslo var eins og að drekka vatn. Á heimleiðinni var smá rugg, en aldrei neitt að ráði. Lestarferðin heim gekk vel. Fyrir utan að ég missti af lestinni, sem ég átti að taka í Wolfsburg. En ekkert mál að bíða í besta veðri. Hér biðu mín ein 14-16 stig. Og í dag var líka sól um tíma.

En best að byrja á byrjuninni.
Margrét kom að taka á móti mér á flugstöðinni. Við tókum lest til Lier-stöðvarinnr, og þar beið gamli bíllinn, sem hún má nota þegar hann er laus. Það var æðislegt að sjá hvað Margrét er farin að kunna á allt þarna og ekki í vandræðum með að tala og spyrja á norsku.
Heima í húsinu " á hólnum" (-tók sko mynd til að sýna ykkur hversu langt uppi frá veginum það stendur--kemur seinna-)-var tekið vel á móti mér.
Litlu dömurnar brostu og brostu og bræddu mig alveg. Og það bræddi mömmuna að þær skyldu vera hrifnar af mér og ég af þeim. Ég var kvödd með þeim orðum að ég mætti koma aftur. Æðislegt.
Joni tók mér líka vel eftir að ég var búin að syngja fyrir hann flesta söngvana úr Dýrunum í Hálsaskógi :) " En til" sagði hann og vildi ekki að ég hætti :)
Þau Dani og Jan eru rosalega indæl. Margréti líður vel hjá þeim og þetta gengur allt vel.

Daginn eftir fór fjölskyldan í Hytte í tæpa viku. Við Margrét nutum þess að hafa húsið út af fyrir okkur. Elduðum mat, sem hún hefur ekki haft lengi. Kjötbollur, rauðkál, núðlubakstur--. Hituðum dönsk rúndstykki og borðuðum bollur með kardemommubragði! Ég var forfallin í mysuostinum og jarðarberjamarmelaðinu með heilum berjum í--æðislegt.
Við steiktum líka eplalummur handa fjölskyldunni og okkur, sem vakti lukku.

Við byrjuðum á að fara í mjög hressandi göngu upp mikla hæð. Lögðum bílnum á útsýnissvæði. Vorum í 2 tíma að labba. Þarna uppi er skíðasvæði og skotaðstaða fyrir göngu/ plús skot--hvað sem það nú heitir á íslensku.
Eins löbbuðum við um nágrennið. Upp og niður strætóslóðina og maður verður sko vel þreyttur að kjaga upp brekkurnar :)

Margrét ók til Drammen í flotta innkaupamiðstöð. Þar hittum við Ernu Svövu, sem gleymdi svo að skila kveðju til foreldranna. Og Guðrún Björg gleymdi líka að ég var búin að skrifa henni á Facebook að ég kæmi svo Sigga varð hissa þegar ég hringdi og var bara komin aftur til Norge.
Margrét er ekki í vandræðum að aka þetta. Hún verður örugglega jafn góður bílstjóri og Arnhildur.

Tókum líka strætó til Sylling, sem er við vatnið þar sem voðaverkin voru framin í sumar. það sést ekki til eyjunnar frá þessum stað. Bærinn er lítill og sætur. Fann hús, sem ég vildi gjarnan eiga. Þarna er mikið um jarðarberjarækt. Og í Lier er mikil eplarækt. Safinn er guðdómlega góður!!!!

Einn daginn var farið með lest til Oslo. Farið í þennan fræga garð með styttunum. Sátum á bekk í sól og borðuðum nestið. Þvílkt indælis líf. Löbbuðum um innbæinn. Karl Johans götuna, frægustu götu Oslo ef ég skil rétt. Löbbuðum niður að höfninni, sem er falleg. Og tókum svo strætó út í bláinn--vorum með dagskort og skiftum bara um vagna.

Eins var tekin lest til Asker. það er bærinn, sem Hildur býr í. Hildur var eitthvað slöpp og með verki vegna lyfja við krabbameininu, aukaverkanir, og við fórum því ekki til hennar fyrstu dagana.
Asker lítill og sætur bær, eins og svo margir þarna.

Á afmælinu mínu fékk ég þessa fínu könnu frá Margréti-með Múminmömmu!!!! Mín fyrsta Múminkanna. Það er sko til ýmislegt í þessu munstri. Bakkar, skæri, hnífapör, skálar, bollar,--pottur og ég veit ekki hvað. Og það hljóp sko á snærið hjá Margréti þegar við svo gistum á fimmtudaginn hjá Hildi. Þá gaf Hildur henni fyrsta Múminbollann sinn :) Hildur er svo indæl og svo góð við Margréti. Það var óborganlegt að þau skyldu vera þarna akkurat fyrstu dagana þegar Margrét var að venjast þessu.
Svo fékk ég Múminkort frá Arnhildi og KD--gott í tilvonandi safnið:)
Nú, en áfram með afmælið. Við skæpuðum við Klaus og fórum svo eftir hádegið til Hildar á vinnustofuna hennar. Hún er á Forneby, sem var víst flugvöllur áður fyrr. Verið að byggja og byggja-brjálæðislega mikið. Þar eru þau Ásgeir búin að kaupa íbúð rétt hjá vinnustofunni. Og fá hana í sumar. En eru búin að selja húsið og þurfa að fara út fyrir 1.2. Svo nóg er að gera á næstunni hjá þeim.
Það var listasýning í tvær vikur, sem ótal listamenn tóku þatt í. Hildur var með í fyrsta sinn. það komu yfir 300 manns til hennar og vinkonu hennar, sem er með stofu með henni.
Við hittum Huldu, dóttur hennar. Og hún tók okkur með í risa verslunarmiðstö í Sandvika. Þar hittum við svo Hans Óttar, konu og dóttur. Fengum okkur öll kaffi/gos/kökur á smá kaffistað.
Sem sé góður afmælisdagur með góðu fólki.-----

Jæja. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Seinni hlutinn kemur svo fljótlega. Margrét búin að skrifa á ensku og ég sé um íslenskuna.--Bless og hafið það gott.

6 comments:

Anonymous said...

fyrst að kommenta !! <3
Margrét

Anonymous said...

Jæja, þetta hefur aldeilis verið skemmtilegt allt saman og svo var ég að frétta að þið ætlið að vera í noregi um jólin. Það er aldeilis gaman. Nú átt þú að fara að þýða íslenskar bækur á þýsku og dönsku, það er verið að kalla alvarlega eftir þýðendum. Þeir sem eru að þýða eru fáir og eru að drukkna í vinnu. Í fúlustu alvöru, þetta er alveg kjörið fyrir þig, þú hefur bæði dönskuna og þýskuna og þörfin er mjög mikil. Næstu jól vil ég sjá þig hafa þýtt að minnsta kosti eina bók á dönsku og eina á þýsku. Koma svo !!! Kv affí

Anonymous said...

Hæ hæ. Ég hugsaði það sama þegar ég heyrði sjónvarpað af bókamessunni að það væri vöntun á þýðendum sem þýddu úr íslensku á þýsku...ég tek því undir áskorun Affíar!

Frábært hvað fríið heppnaðist vel og það væri aldeilis spennandi hjá ykkur hjónum að skreppa til Norge yfir jólin.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Gaman að lesa ferðasöguna. Var mjög hrifin af Noregi í september.

Anonymous said...

úbbs.... gleymdi að kvitta undir :)
Kv. Þorgerður

Anonymous said...

kvitti kvitt og ástarkveðjur frá eldri dótturinni og barnabarninu :D
p.s. væri alveg til í að þýða bækur sko, hefur langað það lengi ;)