Wednesday, November 2, 2011

15 ár í Meinersen.

Ef ég man það rétt eru akkurat 15 ár frá því við fluttum til Meinersen. Já, tíminn flýgur frá manni. Ótrúlegt að eiga ekki eftir nema 4 ár í sextugsaldurinn, hehe. En þá er nota tímnn vel og njóta tilverunnar og vera þakklátur fyrir allt það góða, sem gerist.
Hér er tilveran komin á fullt í daglega stússinu. Veðrið er ótrúlegt. Sól dag eftir dag. Reyndar líka ský inn á milli. En meðan þið berjist við snjó og kulda skal ég ekki kvarta þó eitt og eitt ský sjáist á himninum.

En áfram með ferðasöguna , sem Margrét var líka búin að skrifa í tveimur bloggum á minni adressu. Svo sumt er endurtekning fyrir þá, sem nenna að lesa mikið :)
Sunnudaginn eftir afmælið mitt skruppum við til Drammen og heimsóttum Stefán Örn. Við hittum öll börnin, og sáum flest barnabörnin. Stefán Örn er ekki latur í viðhaldinu á húsinu. Þau eru búin að gera rosa mikið uppi í svefnherberginu og holinu framan við það. Og nú voru þau að bíða eftir apótekaraskáp í borðstofuna, sem kom ekki á tilsettum tíma. Og þá skellti hann sér bara í að mála veggina í stofunni! Sko minn. Sigga bakaði skonsur og vöfflur. Ég prófaði norsku aðferðina og setti sneiðar af mysuosti og sultu á þær! Er ótrúlega gott. Væri líklega eitthvað fyrir Úlf og aðra, sem eru vitlausir í mysuost.
Arna Sigga kom með mann og yngri strákinn. Með afgang af marenstertu. Hún á afmæli 19.10.-
Halldór kom með sín tvö. Það er búið að setja húsið á sölu. Hann býr þar þangað til það er selt. Þá fer hann í kjallarann til föreldrannna þangað til hann finnur sér eitthvað annað. Lisa fær íbúð rétt hjá foreldrum hennar. Og börnin verða sína vikuna til skiftis hjá henni og Halldóri. Ósköp sorglegt en ekki við þessu að gera. Eitthvað heyrist mér mamma Lísu vera með puttana í þessu. Henni líkaði ekki að Halldór sagði henni sína meiningu. Skiljanlegt að hann léti ekki bjóða sér allt, en hún mun t.d. hafa tekið púða,sem henni fannst ljótir, og hreinlega hent þeim! Svo það hefur líklega ekki verið átakalaust alltaf.
Erna Svava býr heima og vinnur í fataverslun. Og Sara Rut er enn í skóla.
Þetta eru allt æðislegir krakkar og gott að koma til þeirra.

Á mánudagsmorguninn hugsuðum við Margrét um tvíburana. Þá gat Dani sett í vél og skift á rúmunum. Mér líkar voða vel við hana og Jan er fyndinn og hress. Þau vildu ekki taka við neinni borgun frá mér. Sögðu að ég hefði hjálpað til. Auðvitað keypti ég líka í matinn. Sultu, morgunmat, kartöflur, wcpappír og álegg. Og á eftir að finna eitthvað til að senda Dani í næsta pakka. Hún elskar grænmetisálegg í dósum. Já, Margrét er mjög heppin með fjölskylduna.

Ég held að við höfum svo rennt til Drammen-já, við ætluðum að prenta út lestarmiðana til Bergen. En þá var tölvukerfið i lamasessi. Kíktum í búðir og settumst inn á DÝRT kaffihús. Ég var sko að halda upp á afmælið mitt ansi oft :) :) :) Fengum okkur æðislegar tertur, og nutum lífsins.
Keyptum nesti fyrir ferðina og bækur. Þarna eru oft goð tilboð. T.d. 3 bækur á verði fyrir 2.
Keypti Jo Nesbö, æði.
Svo var pakkað og farið að sofa því rútan til Drammen á stöðina fór snemma um morguninn. Á fætur fyir 6, púffff.
Lestarferðin var frábær. Hún leið hratt þrátt fyrir að hún tæki 6 klukkutíma. Prjónaði líka og kláraði hælinn á sokknum. Margrét tók slatta af myndum út um gluggana, sem er ekki auðvelt því annað hvort eru tré, eða göng!
Við fengum sól í Bergen klukkan 5, þegar við komum út um síðustu göngin. Skildum töskuna eftir í læstum skáp á stöðinni. Og röltum um bæinn. Mjög falleg borg og vildi gjarnan fara aftur seinna. þá með Arnhildi og KD og Klaus--já líka Margréti--gleymdi þér ekki :)
Margrét fékk mig til að taka á öllu mínu hugrekki og fara í lest upp á toppinn ofan við Bergen. Þetta er lest á teinum, sem dregin er eftir vírum. Ansi bratt og ekki fyrir lofthrædda. En ég tók reynar hálfa róandi--hehe-og allt gekk rosa vel. Uppi var þvílíkt útsýni. Fengum okkur svo ís, sem reyndist mesta skemmtun. Margrét bað um jarðarberjaís. Fékk vanilluís með dýfu af bleikum sykurstykkjum!!! Sem tók þvílíkan tíma að tyggja og á endanum hreinsaði hún helling af þessu og lét detta á jörðina. Við skemmtum okkur vel þvi ísinn lak niður og hún var orðin frosin á purttunum. Já, margt gleður mann :)

Farfuglaheimilið var ágætt. Enginn luxus, en allt til staðar. Morgunmaturinn ristað brauð og fullt af áleggi. Morgunkorn og hrökkbrauð. Ég fékk minn heittelskaða mysuost og kaffi :)
Daginn eftir var ekki eins mikil sól en fínt til um klukan 3 . Þá fór hann að rigna smá. Við löbbuðum um höfnina. Fundum þar jólahús. æði. Og handavinnubúð og féllum þar fyirr dúkum. Keyptum sinn hvor löberinn og byrjuðum á þeim í lestinni.
Settumst á kaffihús og skrifuðum póstkort. Fórum í menningarferð á listasafnið. Sáum æðileg verk eftir gamla meistara og ekki eins æðisleg eftir nútímalistamenn. Dahl var æði, Munch athyglisverður og Picasso eins og hann nú er. Vona að Marget setji inn nokkrar myndir, sem hún tók án flass í safninu.
Morgunn eftir var svo farið til baka. I grenjadi rigningu svo við fengum að upplifa Bergen í sinni vanalegu mynd. Við fórum hæst í 1222 metra yfir sjálfarmáli og þar var sko snjór. Hér og þar voru fjöllin alhvít. Ókum í gegnum bæ, sem heitir Arna og tókum auðvitað mynd af því :)

Í Drammen tókum við svo aðra lest og fórum beint til Asker. Þar sótti Hildur okkur og við gistum þar eina nótt. Ásgeir eldaði stekur, og þetta var hinn fínasti veilsumatur.
Þau eru búin að selja húsið. Fengu mjög gott verð fyrir það. Meira en 7 milljónir norskar. Fá svo ekki íbúðina fyrr en í sumar en þurfa út í febrúar. Svo það er pakkað í tvennu lagi, og vesen við þetta. Húisð er hreinlega æðilsegt enda fallega innréttað af Hildi. Vildi helst fá eldhúsinnréttinguna og setja upp hjá mér--en hef náttúrlega ekki pláss.:)
Daginn eftir ok Hildur okkur um hverfin. Sýndi okkur húsið, sem þau bjuggu í þegar við komum fyrir 19 árum með Arnhildi. Ég er svo búin að gleyma þeirri ferð. Hræðilegt. Sáum líka leikskólann, og fyrrverandi vinnustað Ásgeirs, og fórum að litilli höfn, sem er bara draumur. Hugsa sér að geta legið þarna á sumrin með börnin og vatnið er grunnt og umhverfið hreinlega æðislegt. Kíktum í sætar búiðir. Og fengum okkur fiskisúpu/ pizzu í hádegismat. Svo keypti Hildur vínarbrauð-handa okkur Ásgeiri- hehe , og við drukkum kaffi í fallega eldhúsinu. Ásgeir ók svo á mótorhjólinu norður fyrir Drammen og við á eftir í bílnum með Hildi. Þau voru að setja það í vetrargeymslu. Skutluðu okkur svo til Hammer fjölskyldunnar.

Og þá var komið að síðasta kvöldinu. Pakkað og gengið frá. Allt gekk vel á heimleiðinni og það var ekkert erfitt að kveðja í þetta sinn þar sem eg veit að Margréti líður vel og fókið er indælt. Svo er stefnt á hytte-jólafrí og nú þurfum við Klaus að setjast niður og velja eitthvað, sem er ekki lengst uppi á fjalli :)

Jæja, orðið gott í bili. Segi ykkur næst hvað ég keypti á mig í Norge.-- Bless, bless--og hafið það gott.

4 comments:

Anonymous said...

já það á eftir að verða hrikalega langt blogg ef að þú ætlar að skrifa um allt sem þú keyptir handa þér! ótrúlegt kona, hvað þú varst bara að hugsa um sjálfan þig ok keyptir þér gúmmistígvél, kjól úr NoaNoa og tvo boli ... :)
lovjú <3
Margrét

gudny said...

hljómar eins og æðislegur mæðgnatími!
en 15 ár!!! sæliir..
saknaþín frænka góð :)

Anonymous said...

Svo styttist í jólaferð til Norge, ekki slæmt það. Vona að þú hafir velt fyrir þér að gerast þýðandi !! Þú þarft að láta okkur vita hvaða bækur þig langar í í jólagjöf, aldrei að vita hvort maður geti ekki safnað smáaurum upp í verð á einni bók eða svo.. :) Hafðu það gott mín kæra og kveðja til Klaus. Þín sys affí

reta said...

world top news
so nice