Þá erum við búin að hafa þoku í 5 daga. En líklega þykir Akureyringum það ekki mikið eftir sumarið og haustið. Svo ég ætla ekki að kvarta neitt. Það er logn og um 5-7 stiga hiti. Spáð kólnandi og bjartara. Svo það kemur þá líklega að þvi að skafa þurfi rúðurnar á morgnana.
Af okkur bara gott að frétta. Klaus orðinn hress eftir slappleika. Búin að vera heima frá því á föstudaginn. Hann er með smá kvef. Finnur til í andlitinu hér og þar, en læknirinn telur að þetta sé mest út af því að hann fái meiri verki sé hann með kvef eða slíkt á annað borð út af því að gigtin sé til staðar í líkamanum. Og við skulum þá vona að það sé bara rétt og ekkert annað að.
'I dag var hann allavega framan við tölvuna og ekki bara framan við sjónvarpið :) Og pantaði sér fartölvu. Okkar er orðin ansi hæg en dugar nú samt vel. En þetta er hans svið og ekki skifti ég mér af svona kaupum.
Það er alltaf nóg að gera. Var um helgina á bútasaumsnámskeiði í Gifhorn. Það var mjög gaman og mest gaman að komast aftur í gang. Er loks farin að fatta hvernig maður mælir og líka hvernig sumir bútanna eru saumaðir saman. Í bili hef ég ekki tíma til að sauma meira því ég þarf að klára jóladagatal og kaupa gjólagjafirnar og pakka inn og setja í kassa ---og ---.
Svo koma Susanne og co á sunnudaginn í smá eftirá afmæliskaffi.
Já, á námskeiðinu vorum við 8. Kennarinn hress og mjög klár kona. Hún segist geta gefið mér einkatíma ef ég strandi og hver veit nema ég taki því eftir áramótin. Við vorum á föstudaginn frá 15.30 - 21.30. Og á laugardaginn frá 9.30 - 18.30. Það var pöntuð súpa fyrir liðið og við gátum keypt kaffi að vild. Þegar ég fór heim á laugardaginn kom ég við í Famila og verslaði í matinn. Gott að geta bara keypt Lasagne í pökkum og hent inni í ofn. Enginn tími til að elda, ó nei.
Tók svo til í húsinu á sunndaginn. Meðan Klaus er heima kemst maður ekki á fætur á morgnana. Vantar hann til að vekja mig klukkan 7. Svo ekki hefur orðið mikið úr tímanum á morgnana undanfarið. Rétt gert æfingar og tekið mig til fyrir vinnu. En kláraði þó að strauja 14 skyrtur einn morguninn.
I gærkvöldi var aðalfundur hjá foreldrafélaginu í menntaskólanum. Þar var ég í stjórn í 3 ár, og er núna hætt. Fékk flottan blómvönd og gjafabréf upp á 20 evrur í einni bókabúðinni hérna. Þetta er hresst lið, og ég mun örugglega halda áfram að hafa samband við þau. Við borðuðum á Localino, ítalska veitingastaðnum hérna við aðalgötuna þegar fundinum lauk.
Í dag bakaði ég kanilsnúða. Fór að versla í Müden í Lidl versluninni. 8 km héðan. Þar voru góð tilboð. Og gaf kettinum. Svo var ég að ganga frá pakka til Margrétar, sem vantaði snjóbuxur og ég fékk einar hér í Tchibo á góðu verði.
Annað kvöld er svo Tupperkvöld hjá nágrannkonu og á mánudaginn er kertakvöld hjá annarri! Það er alveg hægt að eyða peningum, hehe.
Já, við erum svo búin að panta og borga fyir sumarbústað á Jótlandi. Alveg lengst í norðrinu. Ofan við Álaborg. Adressen er Bugten 19, Bratten Strand, 9981 Jerup-- ef einhver hefur áhuga á að skoða þetta á Google.
Margrét kemu með lest til Gautborgar og tekur svo ferju í rúmlega 3 tíma til Fredrikshavn. Og vonandi verða ekki tafir hjá henni eða okkur og allt gengur upp. Skrítið að ætla að eyða jólum í sumarbústað, en líka spennandi. Er þegar byrjuð að skrifa niður lista yfir hvað taka þurfi með--sem er slatti :)
Það er fínt að frétta af Margréti. Hún er held ég mest ánægð með það að Rakel, íslenska vinkona hennar, verður fram á sumar. Var að spá í að hætta um áramótin. Hún flýgur reyndar heim um jólin, en kemur sem sé aftur. Þær ná rosa vel saman og eru afskaplega hressar. :)
Það er komið í ljós að Jonatan litli, sem Margrét passar, er með "selektiver Mutismus" Það merkir að hann vill ekki tala nema við sérstakar aðstæður. Hann t.d. talar ekki í leikskólanum. Foreldrarnir hafa miklar áhyggjur af þessu. Það er verið að vinna í þessu máli og mér skilst að ekki sé klárt hvað mikið og hvernig sé hægt að hjálpa honum með þetta. Kannski kannast Þorgerður við þetta ????
Þessa vikuna lánaði ég Frau Kühle bílinn minn. Hún lét son sinn fá bílinn, og hann skilar honum ekki eftur fyrr en hann er búinn að taka meiraprófið og klára verklega þjálfun. Hann er að fá vinnu við að fara með bíla á vagni, sem tengdur er aftan í bíl. T.d. eftir árekstur eða álíka. Það er mjög mikilvægt að hann klári þetta og fari í vinnu, sem honum bauðst 1.des. Þá ætti mamma hans að geta látið þau sjá um sig sjálf og ekki þurft að styrkja þau jafn mikið peningalega séð. Í morgun fór hún á bílnum mínum til mömmu sinnar og sagðist hafa ekið hægt og afspyrnu varlega.Enda myndi hún örugglega deyja ef hún skemmdi bílinn minn. Og núna er ég n.k. Gyðja í hennar huga og bara alveg einstök. Ekki slæmt ef fólk heldur það, hehehe.
Spjallaði við mömmu og pabba á skæpinu í gær hjá Didda. Verst að það er oftast slæmt samband þar. Gaman að sjá þau samt. Og flesta daga sé ég Margréti. Þetta skæp er meiri dásemdin.
Jæja. Hætt að sinni. Vona að þið hafið það öll gott. Saknaðarkveðjur-- ykkar hressa Áslaug .
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Ertu bara hress í þokunni? Hér er líka þoka dag eftir dag. Ég sé nú inn í dalinn í dag sem er mesta kraftaverk! :) En það er eins og normenn segja: Det finns ikke dårlig vær, bare dårlig klær! Veit ekki hvað ég er búin að heyra þetta oft :D knús þín hressa Margrét
Valdemar aftur kominn með hálsbólgu og fór til læknis, er ekki með hefðbundna streptokokka sagði læknirinn en gæti svosem verið einhver útgáfa sem er sjaldgæfari og sést ekki strax. Gæti líka verið með einkirnissótt, (eða kossasótt), en vonandi dugar bara pensilín og hann fékk einn skammt. 'Eg hringdi í þórdísi og bað þau að vera til taks ef hann þarf hjálp. Vona að hann nái sér fljótt. Ég fór nú bara að hugsa hvort ég væri með þessa einkirnissótt, er endalaust slöpp og með hálsbólgu sem er ekki líkt mér. Fékk svo í bakið en er öll að hressasts. Þetta lasarusarlið sem þú átt fyrir fjölskyldu ! Vildi alveg getað skroppið suður í nokkra daga en er budnin í vinnu. Ef VÖ hressist ekki þá reyni ég að skreppa til hans. Annars gengur lífið sinn vanagang, Elli stússast í bílnum og Aldís í skólanum. Hér er búið að vera gott veður, óvenju hlýtt svo maður nýtur þess meðan það er ekki hálka og slabb. Jæja, nóg í bili mín kæra. Verð í sambandi. Kv affí sys.
Las bloggið í gær í vinnunni en gat ekki kommentað... en það er víst verið að uppfæra Internet Explorer á Landspítalanum og þá kannski get ég farið að kommenta hehehe
kv
Kristín E.
hæhæ helgin var ekki mjög róleg hehe laufabrauðið skorið og steikt í gær og gekk allt vel en við orðin ansi þreytt í lokin. Maður er svona að nýta tímann meðan þau gömlu eru hér og reyna að vera með þeim eins og maður getur. Mamma gerði mömmukökur með mér (eða mest hún híhí) og svo eru við bara að hafa það gott. Það verður gaman að sjá myndir af bústaðnum og fá fréttir af öllu því. Pakki til þín fer vonandi af stað á morgun eða hinn knús til þín
Já, þetta kallast held ég valþögli, og þarf að meðhöndla m.a. hjá sálfræðingum.
Verður frábært hjá ykkur í bústaðnum um jólin, spennandi!
Post a Comment