Mér er stórlega létt. Það er næstum allt komið í póstinn og verður nú vonandi allt heilt og óskemmt þegar það kemur til landsins. Sem tekur örugglega 3-4 vikur. Þetta var engin smá törn að venju. Hver kassi 10 kg, og alls fóru 3 í póstinn í dag. Og ég er 105 evrum fátækari, hehe. Svo þó ég reyni nú að senda hverjum eitthvað nammi og slíkt, þá er takmarkað hvað ég get komið. En vonandi verða menn sáttir samt sem áður.
Hér er þoka flesta daga. En stundum koma sólargeislar inn á milli. Í dag var lengi bjart. Frekar kalt, en ekki frost síðustu nótt. Þetta er svona upp og niður.
Við fórum út með gæsluhópinn i dag. Þau eru svo að föndra en við tökum þessu með hléum og rólegheitum. Diana er lasin. Slæm í baki. Ekki gott að vera bara tvær með næstum 70 börn.
Klaus fór til Heidelberg í gær og kom rétt fyrir miðnætti til baka. Vel þreyttur. Var með fyrirlestur, sem honum fannst ekki ganga of vel. Hann fór í nýju flauelsbuxurnar, sem hann keypti sér um helgina, ! Sko minn. Og hann keypti m.a.s. nýja bláa peysu.
Svo ég varð nú að gera honum greiða og pantaði háhæla rauða skó, sem hann vill endilega að ég gangi í. Þeir eru flottir, en það er svartur litur framan á tánum á báðum. Þarf að skoða þetta betur.
Og hann kláraði að gera skattaskýrsluna, sem á að klára í maílok! Og í gær fór ég með hana í póstkassann í Gifhorn hjá skattinum.
Ætlaði reyndar í fyrradag. En bíllinn minn fór ekki í gang um hádegið. Svo tókst það eftir vinnu. Ég með hann á verkstæði og þar kom í ljós að Verteilerfinger--eitthvað, sem tekur á móti rafmagninu og sendir í 4 áttir, var hreinlega brunnið í sundur. Og kannski hefði bílinn stoppað á miðri leið einhvers staðar--þó að Klaus telji að hann hefði þá ekki farið í gang. En ég er allavega viss um að ég var með verndarengil. Fékk bílinn í gær, og kostaði þetta 250 evrur, þvi líka var skift um loftsíu, olíu og kertin.
Verslaði gjafir og matvæli í Gifhorn. Keypti mér eina himberjatertu, frosna, og fékk mér sko fullt af rjóma útá! Má vel við þvi, þar sem ég þyngist ekki um gramm, sama hvað ég borða.
Er svo að prjóna leista og komst að því að ég fæ verki í úlliðina-, pirrandi-ef ég geri það of lengi. Loks þegar ég er komin í gang með prjónana er þetta svona. En er samt ekki að gefast upp, ó nei.
Annars er næsta mál á dagskrá að koma húsinu í lag. Hér er allt á kafi í jólapappír, kössum, ryki og drasli. Og svo að koma upp seríum og ljósum um helgina.
Næsta verkefni er svo pakki til Norge. Og að klára jólagjafir til Þýskalandsliðsins. Eins gott að ég fékk sko tvöfalt kaup í des---haha. 500 evrur, hvorki meira né minna!
Margrét er hress, og var i gær hjá Rakel, sem átti afmæli. Gisti svo hjá Isabell, einni þýskri au pair stelpu. Ætti að vera núna að vinna þegar þetta er pikkað klukkan 5 á miðvikudegi :)
Hún er búin að ná góðu sambandi við Jonatan, sem hún er mjög ánægð með. Þau fóru ein á leikvöll um helgina og gekk það vel. Það er ekki enn kominn vetur, sem er breyting frá síðustu tveimur árum. Þá var allt á kafi í snjó í lok október.
Það er heldur betur ergilegt með íbúðina, sem Diddi var að skoða. Kallinn hækkaði leyguna og þau sleppu þessu þá. Vonandi að þau finni eitthvað sem fyrst. Vona að fj--kallinn fái einhverja leiðinda leygjendur--hehe.
Ég er að spá í að fara í Gospell kórinn, sem Renate, kórstjóri gamla kirkjukórsins, stjórnar. Hún er reyndar frekar litlaus, og ekki fjör á æfingum. En ég sá mynd í safnaðarblaðinu í dag, og líst vel á liðið. Þekki nokkrar hressar þar. Þá er ég upptekin á fimmtudagskvöldum, frá hálf átta til níu.
Fer svo í fyrramálið í jóga því ég get farið má., þr. og fim. Og mátti sko ekkert vera að því að fara fyrr en kassarnir væru tilbúnir.
Jæja. Kannski ég geri salat handa okkur Klaus í kvöldmatinn. Og svo legg ég lappirnar upp og geri ekki meira í dag. Saknaðarkveðjur frá Áslaugu pakkakonu. - hehe.--
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Bestu kveðjur á verkstæði jólasveinsins í Meinersen! Hér er einmitt pakkinn til ykkar næstum tilbúinn og fer í póst strax eftir helgina og ætti þá að ná til ykkar í tíma. Hafið það gott, Svanhildur
dugleg mamma! ég er frekar ánægð með það að ég þurfi ekki að senda svona stóra pakka. þarf samt að fara að klára að ganga frá pakkanum til systur og systurdóttir minnar :D hehe
klem frá Norge !!
Post a Comment