Thursday, November 3, 2011

Alltaf verið að breyta plönunum--við erum sko góð!

Langur titill, hehe. Já, við vorum í gærkvöldi sveitt yfir tölvunni að planleggja jólafríið. Það kom í ljós að frekar erfitt er að finna Hytte í Norge. En samt fundum við nokkrar. Datt svo í hug að ódýrara er það nú í Svíþjóð. Og eftir leit þar datt okkur í hug að kannski við ættum að kíkja á nýjar slóðir í Danmark. Og í bili erum við að spá í nyrst á Jótlandi. Þar höfum við ekki verið. Þá myndi Margrét taka lest til Gautaborgar, og svo ferju yfir til Jótlands. Við spörum ferjur til Svíþjóðar og Danmerkur því við ækjum norður án þess að fara yfir brýr. ( 2 ferjur eru ca 300 evrur ) Og ekki er eins dýrt að lifa í Danmark. Svo þá væri best að senda jólapakkana til okkar til Meinersen þar sem við höfum nóg pláss í bílnum. Og Margrét hefur nóg með sig og sinn farangur.
Stefni bara á næstu ferð í vor til hennar.
Hef verið að spá í að Arnhildi kæmi til okkar í sumarbústaðinn. En þetta væri hundleiðinlegt fyrir KD. Og nú verður hún hjá mömmu sinni þessi jól. En miklu frekar væri að þær kæmu í vor og þá til Norge og svo til okkar. Við erum með allt opið í þessu sambandi.

Nú, en síðasta um ferðina.
Fékk Múminbolla frá Margréti í afmælisgjöf. Og Hildur gaf mér æðislegan trefil úr kembdri ull. Eftir Lovísu Aðalsteinsdóttur ef einhver skyldi nú kannast við hana. Stuttur, þunnur og með hvítu í. Mjög hlýr.
Keypti mér náttbuxur. Allar buxur að detta niður um mig. Tvo einlita boli, með frekar breiðum böndum-ekki spaghetti :) Kjól frá Noa Noa. Náttúrlega á tilboði. Hehe. Olífugrænan með smá munstri. Og hettupeysu frá H&M, sem ég hef verið að leita að hérna í réttri stærð. Fann loks þarna úti. Hún er fóðruð innan eins og KD fékk í fyrra.
Svo keypti ég bleika nælu til styrktar baráttu gegn krabbameini. Og síðast en ekki síst --stígvél frá Ilse Jakobsen--segi ekki einu sinni verðið :) Svona dökkbrún, reimuð að framan með hvítum reimum og með mjúku fóðri.
Gaf Margréti líka svona stígvél. Hildur á alveg eins. Hún fór með okkur í risa verslun og þar fundust þessi stígvél á tilboði. Svo við erum búnar að stofna stígvélaklubb hehe.
Þetta var nú meira en nóg, ekki satt.-----

Á fö. fer ég í bútasauminn i Gifhorn. Er spennt hvað ég get og kann, og tekst að læra :) Langur tími, eða 15.30 til 21.30 og aftur laugardagsmorguninn, frá hálf tíu minnir mig.
Fór til Hannover í gær og keypti búta. Langar að gera teppi með einföldum bútum og ekki miklu veseni. En þarf fyrst að klára það gamla.

Fór líka að kaupa jólagjafir. Búin mað Alex, Úlf og slatta handa Arnhildi, og sitt hvað fleira Settist inn á kaffihús--sem enginn trúir. Það var notalegt að fá muffins og kaffi á 3.30 evrur eftir að hafa borgað 115-150 norskar krónur í Norge hehe. Fann líka jólakort í pökkum og nú þarf að fara að panta myndir og sitt hvað þannig.
Kom við í ensku búðinni, sem ég fann í haust. þar er sko æðislegt kex, súkkulaði, sírópið okkar gamla í grænu baukunum , og dósamatur. Eitthvað lenti í töskunni.
Úti er besta veður þó að sólin skíni ekki í bili. Um 10 stig í morgun. Held ég verði að neyða mig í að strauja því ekki eru eftir margar skyrtur á manninn minn. Og staflinn ansi stór.

Hafið það sem best. Meira fljótlega.

5 comments:

Anonymous said...

Meinti auðvitað að við færum yfir brýr og ekki með ferjum--hehe. Áslaug.

Anonymous said...

ég er loksins á undan systur minni að kommenta :D Og það gleður mitt hjarta að móðir mín sé búin að versla eitthvað handa sjálfri sér...og mér líka híhí! já góð ný plön og bara á meðan þið komið ykkur burt úr Germaníu og nær Margréti þá verður þetta örugglega æðislegt allt saman :D
ástarkveðjur Arnhildur

Anonymous said...

vá ertu bara búin að blogga aftur? á að keppa við mig :)
Margrét

Anonymous said...

Elsku frænka.Gaman að heyra hvað ferðin þín var skemmtileg.Og þúsund þakkir fyrir mig.Þetta var nú alveg óþarfi,þú sérð þetta þegar þú kemur næst.Ferðin okkar Kristínar var dásemd,afslöppuð nema við gengum okkur upp að hnjám.Og takk fyrir kortið,ótrúlegt að þú skyldir fara upp með lestinni sem Láka syndist að þú stjórnaðir.Allt við það sama hér ég prjóna og prjóna eins og enginn sé morgundagurinn,tek til á milli og ætla að byrja snemma að baka fyrir jólin.Það verður samt örugglega ekki á næstu árum sem é bíð eftir jólunum.Undirbúningur næstu utanl.ferðar er byrjaður en k.kórinn fer til Finnlands og st.Pétursb.í vor,fjáröflun í gangi og nóg að gera.þú hefur frétt af afm.Lillu en það var gaman og myndir teknar sem þú færð að sjá.Við biðjum að heilsa og heyrumst.Magga móða.

Anonymous said...

Hér rignir og er kolsvart úti, heldur vil ég smá snjó en þessa rigningu og ísingu á morgnana, en svona er þetta bara, alla vega snjór á suðurlandi. Hér var samt grillað í rigningunni í gær, frábært nautakjöt með alles og mikið borðað, fengum tvo kunningja ella hingað sem lögðu til í matinn líka og svo var bara spjallað fram eftir kvöldi. Dagurinn í dag hreinn letidagur þó mín bíði búnki af ritgerðum að fara yfir. Gott að vita um breytt plön í sambandi við jól, sendum þá á ykkur pakkana til þýskalands. Fáum svo nánari fréttir af danmerkurplönum. ekki meira í bili, kveðja í kotið- þín sys affí