Tuesday, November 15, 2011

Endalaus dimma en ekki frost.

Jæja. Eftir að rúðurnar voru pikkfrosnar tvo morgna var ekki frost í morgun. Mikið var ég glöð. Ég þurfti því ekki að skafa. Nágrannarnir vorkenna mér svo mikið að standa þarna úti flesta morgna--hehe.--En mikilvægara var þó að ég gat ekið til Gifhorn án hræðslu við hálku :)
Þurfti í næst síðasta tímann hjá sálfræðingnum á þessu ári. Já, árið fer sko að líða.
Og svo var ég að leita að hlutum i H&M, sem eru uppseldir á netinu, en ofarlega á óskalistum.
Klaus er nú eiginlega búinn að kaupa sér sína jólagjöf :) Ný tölva er komin inn á skrifborð Margrétar og verið að setja í hana forrit og tengja og hvað það allt kallast.
Líklega hefur hann verið leiður á þessri konu, sem hangir sífellt í tölvunni. Ýmist með KD að fara í gegn um óskalistann eða skæp með Margréti, hehe.

Núna er hráslagalegt úti, og nú í nótt verður sennilega frost um tíma.

Í gær fór ég á kennarafund. Hef ekki farið lengi. Það er allt í uppnámi út af breytingum. Ný staða var auglýst og það kemur kona með 14 tíma á viku. Staðan var auglýst af því að við erum að fá smíðastofu og okkur vantar einhvern með pappíra upp á að geta unnið með sögunarvél. --En- við erum ekki komin með svona vél og munum ekki fa hana næstu árin--út af peningaleysi! Í staðinn þarf einn kennarinn að fara til næsta bæjar-því þá verðum við með 14 tíma of mikið. Og þann skóla vantar 14 kennarastundir. Af hverju hann var ekki bara látinn vera sem smíðakennari og þessi, sem kemur færi þangað, er nokkuð, sem venjulegur Íslendingur skilur ekki.
Og svo var skólastjórinn frekar óforskömmuð við einn kennarann, og hinir æstir út af því. Það er nú meira hvað hægt er að gera hlutina flókna.

Um helgin var ég að laga til. Bakaði svo skúffuköku og eplaköku fyrir kaffið á sunnudaginn. Þá komu Susanne, Gregor og dætur. Þau spjölluðu smá við Margréti á skæp. Var svo með "Hillurifiðbrauðíofni" í kvöldmatinn, sem hvarf ofan í liðið.
Stelpurnar færðu mér sápu, sturtusápu, skrúbbsápu og krem frá Lush. Susanne gef mér bók, klút og te. Ramona kom með nýja fartölvu og Klaus hjálpaði henni að koma henni í gang.

Klaus fór í vinnuna á mánudagsmorguninn eftir að hafa farið fyrst til læknisins um morguninn. Hann ath. með sónar hvort hann væri með Prostata-krabba (?íslenskt nafn-- meina þetta karlakrabbamein) og svo á hann að fara í ristilskoðun. Fyrirbyggjandi skoðun eins og brjóstaskoðun hjá konum. Ég meina--það eru ekki einkenni um neitt.

Ég fór á kertakvöld í gærkvöldi hjá Janine, sem býr í gamla húsi Söndru. Pantaði tvo pakka af ilmkertum. Þau eru hrikalega dýr, en lyktin er æðisleg. Svo var Tupper kvöld á fö. hjá Caro hérna á móti. Og þar gat ég líka verslað eitthvað-ef þið trúið. Er að reyna að hitta sem flesta, og stakk upp á því við Sabine, mömmu Enno, að við kíktum einhvern timann á kaffihús saman og tækjum Caro með.

Á morgun fer ég til BS til Heilpraktiker. Og svo er stefnan tekin í--náttúrlega H&M. Og í fleiri búðir. Og sko eins gott að hann fari ekki að koma með frost og hálku því ég verð til klukkan 7 að minnsta kosti :) En spáin er ágæt. Og á fimmtudaginn ætlum við Frau Kühle að fara til Hannover. Hún vill láta mig velja mér afmælisgjöf. Og við endum örugglega á kaffihúsi. Sýndi Susanne og dætrunum myndir frá Norge, og þeim fannst við hafa farið oft á kaffihús--haha.

Nóg að gera í vinnuni. Erum að láta þau mála blómapotta. Einn snýr á hvolf, annar ofan á og upp, og svo setur maður fuglafóður í þann efri. Í dag máluðu þau grunn og svo verðum málað í alls konar litum og af bestu getu og löngun :)
Maja og Sonia tóku mig með í hundagöngutúr í dag. það er gott að hreyfa sig og gaman að spjalla við Maju.
Er grútsyfjuð eftir að fara á fætur tvo morgna klukkan 7 :) Ætla að koma mér snmma í bælið í kvöld. Vona að flugið hjá pabba og mömmu gangi rosa vel. Hafið það öll sem best--og vil taka fram sérstaklega að ég þakka Þodísi fyrir kvittið!!! Það er nefnilega meira mál að lesa blogg og skoða myndir á bloggsíðum en að fara í Facebook hahaha-- (love you systir góð )
Vona að þið eigið yndislegt þriðjudagskvöld og indælan miðvikudag.

6 comments:

Anonymous said...

já við fórum oft á kaffihús :D gaman að þú skildir hafa farið með maju og soniu í göngutúr !!!
lovjú Margrét

Anonymous said...

Mamma og pabbi komin heim eftir góða ferð til Reykjavíkur. Ætla að hitta þau eftir vinnu í dag. Er með bunka af ritgerðum sem ég verð að fara´yfir um helgina svo lítið verður um afslöppun. Annars er allt í góðum gír, VÖ loks að hressast aðeins eftir að hafa fengið stóran pensilínskammt. Hér er áfram gott veður, hefði mátt vera svona gott í sumar.... :) Batakveðja til Klaus. Þín sys affí

Þorgerður said...

Prostata=blöðruhálskirtill. Flott að boðið sé upp á þessar forvarnarskoðanir hjá ykkur, ekki er það gert hér...
Brighton ferðin skemmtileg, yndisleg borg sem ég mæli eindregið með. Hafið það gott!!

Anonymous said...

Smá grín svona til að skemmta þér mín kæra systir....

Er búin að skrifa upp lista fyrir næstu læknisferð til Péturs Péturssonar heimilislæknis, svona til að gleyma ekki að segja frá einhverjum kvillum sem mér finnst ástæða til að hann skoði.

Fyrst skal nefna fjárans bakið,
finna hvað er ekki í lagi.
Minnast svo á magabrakið,
og mikla verki af ýmsu tagi.
Upplifi mig fjandi fúna,
er fótaköld og handaloppin.
að öðru leyti er ég núna
afar frísk og sátt með kroppinn.....

Híhí.. :) Kv affí

Anonymous said...

haha flott Affó. En hæ áslaug!! :D
má ég koma i kaffi til þín :(
kv.guðný

Anonymous said...

haha Affí*
kv.guðny