Sunday, November 27, 2011

Aðventan.

Þá er fyrsti sunnudagur í aðventu að fara að renna sitt skeið. Hér er ekki beint jólalegt. Of hlýtt og í dag er hvasst, og af og til smá rigning. Við ströndina spáð fárviðri. Já, og gott að búa hérna þegar svona veður ganga yfir. Margrét kvartar í Norge að enginn snjór sé kominn enn. Það voru ein 10 stig. Ekki eins og í fyrra þegar snjórinn kom í lok okt. og hvarf ekki fyrr en undir vorið.
Ég hef verið að setja upp jólaljósin. Þrífa og pússa glugga áður en ég set upp stjörnurnar og bogana. Strauja gluggatjöldin og þvo stofugluggatjöldin. Ná í dót á háaloftið og svona fram eftir götunum.
Var svo að bera út blaðið fyrir söfnuðinn. Og hugsa um köttinn.

Á fimmtudaginn fór ég á söngæfingu í Gospelkórnum. Það er sami stjórnandi, Renate, og í kirkjukórnum, sem ég var í. Í þesssum kór er mun yngri konur og ég kannast við nokkrar. Er að reyna að syngja alt, því röddin í mér er svo ryðguð. Ég hugsa helst að þessir hnútar á skjalkirtlinum hafi einhver áhrif á raddböndin. En kannski er það bara bull. Ekki gekk mér of vel að læra röddina þar sem til vinstri var ein ekki örugg, og til hægri ein, sem saöng af og til sópran :) Svo ég sagði kórstjóranum að hún skyldi sko fá að koma heim til mín úr því hún vildi endilega fá mig í kórinn og kenna mér þetta hérna :) En nú kemst ég ekki næsta skiftið því það er 1.des., og við förum til Ramonu, sem á afmæli. 28 ára. Sennilega koma Daniela og foreldrarnir hingað og við svo saman á einum bíl.

Á fö. vaknaði ég með þvílíka verki í maganum, vinstri síðu til að vera nákvæm eins og ég er nú :) Komst varla niður stigann og hringdi í Frau Kühle. Hún kom og heimtaði að fara með mig til læknis. Þó að verkirnir væru horfnir. Læknirinn taldi þetta í ristlinum og lét mig fá belgi til að taka ef ég fengi svona aftur. Við keyptum okkur svo rúndstykki og fengum okkur morgunmat með kaffi frá Starbucks, sem ég splæsti á mig. Það kostar nú bara 4.50 evrur og betri kaffisortir eru á 4 evrur á tilboði. Ekki það að nóg er að borga fleiri hundruð krónur fyrir hálf kíló af kaffi.

Klaus fór til tannlæknis, sem ekki hefur gerst í 20 ár. Hann fer svo oftar á næstunni til að láta skifta um fyllingar. Ég fór líka nýlega og bíð eftir reikningnum. Þó maður sé að borga slatta á mánuði þá þarf að borga fyrir ansi margt aukalega. En við ráðum við þetta og engin ástæða til að kvarta.

Margrét fór á fyrsta jólamarkaðinn í gær með fjölskyldunni og tveimur vinkonum Dani. Gaman auðvitað og nú bíður hún eftir því að Norsararnir fari loks að skreyta! Ekki komin ljós upp að ráði. Kannski Þjóðverjar séu bara meira jólafólk en Norsararnir, hehe.
Sendi henni svo pakka um helgina með jólanammi svo hún fái pakka ein sog hinir. Bíð enn eftir pöntun frá H&M. Er fúl út í þá, því ég ætla að senda KD sumt af þessu og farið að liggja á.

Margrét var sko ekki sátt við það að ég skyldi setja græna ljósakransinn, sem ég fékk einu sinni frá Affí og fjölskyldu í litla gluggann í stofunni. Hann var alltaf í stóra glugganum, til hægri. En nú setti ég jólasveinagluggatjöldin á nýju gardínustöngina og hún er svo hátt uppi að það er mikið pláss milli efri og neðri gardínunnar. Og kransinn sómir sér vel. Já, það þýðir sko ekkert að fara bara að heiman og ætla svo að kvarta, ó nei, nei.

Í dag er ég eitthvað svo syfjuð. Kannski bara rokið, sem fer í mann. Er núna að fara í gegn um blaðalistann minn og henda pöntunarlistum, sem ég fæ í tonnatali.
Best að halda áfram við það. Bið ykkur öll vel að lifa.
Gleðilega aðventu.

5 comments:

Anonymous said...

Hér var loks verið að grafa aðventukransinn upp úr kjallaranum, kertin að vísu ekki komin í hann, en búið að kveikja á aðventuljósinu frá mömmu og pabba og furðulegt nokk, þá virkuðu allar perurnar svo nú ljómar allt í stofunni.VÖ búin að vera hér um helgina, dásamlegt að hafa hann aðeins, hann kom á föstudag, beint í laufabrauðmatinn hjá mömmu. Svo var eldaður kalkunn hér í gær og reynt að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni útskriftarinnar sem ekkert hefur verið haldið upp á. M og p komu í eplapæ í gærkvöldi. Við vö lögðumst á eitt við baksturinn og útkoman var æðisleg. Í dag var bara vinnudagur hjá mér, yfirferðir og leiðbeiningar varðandi ritgerðir, sat við frá því í morgun fram að kvöldmat. Mamma og pabbi komu færandi hendi með nýsteiktar kleinur sem hurfu á 10 mín. ofan í gráðugt liðið. Aldís var svo að keyra VÖ á völlinn núna. Gott að það er stutt til jóla svo við getum öll hist aftur. Jaja, nóg í bili, verð að koma mér snemma í háttinn því ég verð að mæta extra snemma í skólann í tiltekt sem ég varð að sleppa á föstudaginn því ég fór beint í laufabrauðið eftir kennslu. Aðventuknús á ykkur Klaus elsku áslaug mín. Þín sys affí

Anonymous said...

kvitt kvitt frá Margréti <3

Anonymous said...

kvitt kvitt :) það var mjög gaman í laufabrauðsgerð og amma eldaði góða fiskisúpu. Ég er búin að hengja upp jólakúlu með ljósi í stofugluggann og strumpasúkkulaðidagatal uppá vegg, og gott að fá snjó :D
lots of love Arnhildur

Anonymous said...

Hér er yndislegt vetrarveður í dag, það hefði ekki verið ónýtt að geta boðið Margréti í smá vetrar-jólaferð í bæinn í dag...vona nú að jólaandinn fari að færast yfir allt í hverfinu hennar.
Takk fyrir kveðjuna í gestabókina, þú minntist þar á döðlunammið. Uppskriftin er ekkert leyndarmál, sjálf rakst ég á hana einhvers staðar og hripaði niður:
400-500 gr. steinlausar döðlur
4 msk smjör
2-3 msk púðursykur
c.a. 2 bollar rice crispies
200 gr. dökkt súkkulaði
nokkrir molar af hvítu súkkulaði, ef maður vill gera svona "effekta" í súkkulaðið!

1. Döðlur, smjör og púðursykur hitað upp við vægan hita, verður að hálfgerðri karamellu.
2. Tekið af hitanum og crispinu hrært saman við.
3. Ég hellti blöndunni ofan í smjörpappírsklætt eldfast mót, þrýsta aðeins en ekki fletja um of því þá verða molarnir svo flatir. Látið kólna, ég setti inn í ísskáp.
4. Tekið úr ísskápnum þegar þetta er orðið vel kælt og þá er maður búinn að bræða dökka súkkulaðið yfir vatnsbaði. Súkkulaðinu hellt og dreift yfir döðlugumsið og látið kólna og þá skorið í bita.
Svo má bræða örlítið hvítt súkkulaði og blanda aðeins dökka súkkulaðinu (með gaffli t.d.) áður en þetta er svo kælt.
Mjög gott, ekki of sætt...fínt til að hita upp fyrir jólin ;)
Kv. Svanhildur

Anonymous said...

Takk elsku Svanhildur--þetta verður prófað! Áslaug.