Sunday, December 4, 2011

Annar í aðventu.

Annar sunnudagurinn í aðventu og ég ekki búin að fá kerti í aðventustjakann! þetta hefði nú ekki gerst ef Margrét og Arnhildur væru hér eins og í fyrra :) Það voru ekki til nein kerti hér í bænum, sem mér leist á. Gleymdi að kaupa þau í síðustu bæjarferðinni. Og ætli maður verði ekki að fara í stórbæinn Gifhorn að kaupa þau.
En ljósin í gluggunum loga fallega og eldhúsið er orðið hreint. Allavega allt, sem ekki er innan við skáphurðirnar :) Tek skápana betur seinna. Ofninn glansandi, flísar, hurðin, hillur og gluggi og svo framvegis.
Var að skrifa jólakort í dag. Orðin handlama. Bíð eftir að Klaus finni Stick (hvað sem það heitir á íslensku) til að setja myndir inná úr tölvunni svo ég geti látið gera myndir eftir þeim úti í búð.

Ekki hægt að hengja upp úti. Það var vel hvasst. Svo þvotturinn hangir inni í dag. En ekki rigning í dag. Nóg af henni í gær.
Í gær átti Frau Kühle afmæli. Var að stússast hitt og þetta fyrir hana. Sótti t.d. son hennar á lestarstöðina. Verslaði slatta á fö.daginn. Og hengdi upp seríur með henni og fleira. Bakaði líka skúffuköku og setti tvo strumpa á hana. Því hún elskar bláan lit. Það komu heilmargir og ég var þarna frá 3 til um hálf níu. Spjallaði við ýmsa og þetta var hin fínasta heimsókn.

Það styttist til jóla. Og skrítin eru þau að þessu sinni. Reikna nú ekki með að við setjum upp jólatré í sumarbústaðnum. Svo líka er allt lokað á aðfangadag í Danmark. Búið að vera svo síðustu árin segir Nina. Svo það verður smá stress að koma sér í búðir á Þorlák á leiðinn í bústaðinn og vonandi að við lendum ekki í umferðateppum og slíku. Reiknum með 8 tíma akstri. Svo kemur Margrét klukkan 7 um kvöldið. En þetta hlýtur að reddast og við gerum þetta eins notalegt og frekast er unnt. Tek líka slatta með, en vildi nú gjarnan fá ferska mólk og rjóma í Danmark.

Margrét er í fríi alla helgina. Fór i gær til Rakelar, gisti, og gistir þar í nótt aftur. Þær voru á skautum í Oslo í gær. Planið í dag var að hitta eina breska, sem var með Margréti á námskeiðinu. Og skreppa í jólaþorpið. Svo ég sé ekki mikið af henni um helgina á skæpinu, hehe. En lifi það af :)

Skrapp til BS í vikunni sem leið. Var að kaupa jólagjafir handa þýsku fjölskyldunni. Fékk allt, sem ég ætlaði að kaupa. Var á fullu og veðrið fínt. Svo komu Susanne, Gregor og Daniela 1.12. og við ókum öll saman upp úr klukkan 5 á bláa bílnum til Hannover að halda upp á afmæli Ramonu, 28 ára. Gaf henni gjafakort. Þær systur eru frekar "leiðinlegar" með að vilja bara slíkt,-svo óspennandi. Kvöldið var bara ágætt. Svo fór hann að rigna og við ókum heim í grenjandi rigningu. Ekki veitir af að fá smá vökva.

Er búin að fara í 3 jógatíma og einn, sem var kynningartími.. Líkar það vel. Þetta eru 10 tímar. Kannski ég fari aftur eftir áramótin. Og svo er ég búin að ákveða að vera i þessum Gospelkór. Fékk diska með alt-röddinni og verð nú að æfa mig hressilega. Hehe. Margrét að spá í norskan Gospelkór, og á eftir að fara á tónleika og athuga hvort þetta sé hresst fólk eða gamlingar :)

Klaus er að dunda við að gera umsókn um að fá barnabætur. Það er á mörkunum að Margrét þéni of mikið með fríiu húsnæði og mat. En við reynum þetta. 180 evrur á mánuði til viðbótar væri ekki slæmt. Fram að því að hún lauk menntaskólanum höfum við fengið það mánaðarlega. En við lifum þetta svo sem af :)
Skilyrði er að hún sæki einhvern skóla, og kannski þeir viðurkenni norskunámskeiðið.

Enn var ég að reyna að setja inn myndir í tölvuna. Og enn er ég ekki búin að læra þetta nógu vel. Trúi því samt að ég muni geta þetta fyrir rest:)

Það eru komnir pakkar frá Arnhildi,og Svanhildi og Sigurði. Voða gaman að taka á móti slíkum sendingum :) Takk takk.--
Hafið það öll sem best. Gleðilegan desember.

5 comments:

Anonymous said...

ég trúi því ekki að þú sért ekki búin að kveika á aðventukransinum !!
Margrét
:D

Anonymous said...

Nóg að gera hjá þér og frábært að heyra af jóganu og kórnum - mig hefur lengi langað í jóga en ekki komið mér af stað, Arnaldur Kári er í jóga á leikskólanum!
Gott að pakkinn skilaði sér fljótt og vel, ég tók ekki sénsinn á því að hann yrði 3 vikur á leiðinni eins og í fyrra!!!

Hafið það sem allra best, þú nærð vonandi að kveikja á þremur aðventukertum næsta sunnudag :)

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

hæ pakkinn frá þér kom í kvöld ég kem þessu á rétta staði ætla að reyna að kíkja á Didda og co í nýja húsinu um helgina og kem þessu þá á þá. Fer svo vonandi fljótt í Kópavoginn að hitta litla bróður. Við sendum okkar pakka með flugpósti í dag og hann ætti að koma vel áður en þið farið. Takk fyrir afmælisgjöfina þú ert best elska svona baðdót og ætla að eiga það ein og nota hehe... þetta er svo mikil dásemd. Stórt knús til þín reynum við skype um helgina kv þórdís

Kristín E. said...

Er að lesa bloggið heima núna, þannig að ég get kvittað :o)

Anonymous said...

Jóla hvað? Hér er bara verið að vinna á fullu við allt annað en jólaundirbúning, en aðventuljósið þó með kertum og seríur komnar á hús og í glugga. Skrepp til m og p á eftir, svo vonandi aðeins tími í búðaráp, verð víst að fara að kaupa jólagjafir eða eitthvað að huga að jólainnkaupum hehe. Annars allt gott,hláka þessa stundina og búið að vera kolbrjálað rok hér allt í kring um okkur þó hér sé nokkuð stillt. Víkurskarð lokað og fleiri vegir líka. Kaupa lítið gerfitré í þjóðverjalandi til að taka með, ekki spurning :) Kv affí sys.