Í dag kom fyrsti snjórinn, sem var reyndar mest slydda. það er smá snjólag úti núna en ekki frost. Spáð hlýnandi aftur fyrir jólin. Svo líklega verða þýsku börnin ekki svo glöð. Í hádeginu þegar hann fór að "snjóa" ef svo mætti kalla, hópuðust börnin í gæslunni út að glugganum og voru yfir sig hrifin. Börn í öllum löndum virðast elska snjó.
Margrét er búin að komast að því að snjórinn þar er líka klaki og hálka. Það er um frostmark og þyðnar og frýs . Með tilheyrandi hálku. Og þessir blessaðir "nískupúkar", þjóðverjar fram í fingurgóma, --sem sé foreldrarnir, sem hún vinnur hjá, keyptu ný dekk, en ekki með nöglum. Og auðvitað runnu þau svo stjórnlaust niður brekku,-- ekkert slys varð þó. Og eins komu þau bílnum ekki upp brekkuna og í stæðið. En svo var komið með salt og færðin skánaði.
Annars er hún hin hressasta. Er að spá í framtíðina. Langar núna mikið í nám, sem kallast Skandinavien Studdies, þið getið gúglað þetta-. Er allt um Skandinaviu. Málin, menninguna og fólkið. Helst vildi hún fara í skóla í Skotlandi, Edinborg. Hann mun vera einn af 20 bestu skólum í heimi :) Sko mína--með metnað! Íbúar evrópusambandsins þurfa ekki að borga skólagjöld. Sækja má um styrk til stjórnarinnar. Svo þetta er allt voða spennandi og eftir að sjá hvað kemur út úr þessu.
Dani og Jan voru svo að spyrja hana hvort hún gæti hugsað sér að vera hálft ár til viðbótar. Þau eru í beyglum með barnapössun eftir að Margrét fer. Jan er ekki kominn með nýja vinnu. Nú, og svo langar Margréti að vera um tíma á Íslandi. Svo það er um margt að hugsa. Hún var komin með plan að fara í ferðalög um Noreg í sumar meðan fjölskyldan er í fríi í Þýskalandi í júlí, hitta þau og kveðja svo í lok júlí, koma svo í ágúst til okkar og fara svo til Íslands í september. Vinna eða etv. fara í nám. Og svo í háskóla 2013. Tja, hvað finnst ykkur að hún ætti að gera? Bíða með námið--drífa í því--vinna heima????
Hér er bara rigning og rok og ekki baun jólalegt. En ég fór loks að baka smá. Bakaði súkkulaðibitakökur. Í gær piparkökur með dyggilegri aðstoð Anitu, sem er með mér í Gospelkórnum. Hún kom með 3 ára dóttur sína, en strákurinn var hjá vini sínum. Hann er í gæslunni og þannig kynntumst við. Það var dálítið spaugilegt að fylgjast með Anítu við piparkökugerðina. Stelpan stakk formunum hér og þar og færði svo formin til, og kökurnar voru klesstar og sumar hauslausar/ afturendalausar. En það fannst Anitu ekki gera neitt til :) Ekki alveg minn stíll, hehe. Sonia kom líka, og þegar við vorum hálfnaðar fóru stelpurnar inn í stofu þar sem Playmóið var enn á stofuborðina. Og við konurnar drukkum te og kláruðum svo að baka, og seinni helmingurinn var nú betri, hehe.
Klaus er nú kominn í jólafrí. Ég á eftir 4 daga. Diana í gæslunni var lasin í gær og dag, og ég ein með 1.bekk í hádeginu. Skólastjórinn var lasin í meira en viku. Hér er mikið um kvef og gubbupest. Ég er með kvef. Rennur nattúrlega mest úr nefinu á mér á nóttunni svo maður er sífellt að vakna:) Hósta illa, og fékk mér hóstasaft. Og nefsprey. Og drekk engiferte.
Stóri bíllnn fór í skoðun í gær. Það þurfti að fá nýtt batterí og svo settu þeir nýjar vinnukonur--jibbíjei! Hef ekki séð almennilega út í marga mánuði, en þetta pirrar manninn minn ekki svo mikið. Reikningur upp á 430 evrur þar. Var bíllaus í gær því Klaus fór á litla rauð. Svo skutlaði Frau Kühle mér að ná í bílinn fyrir hádegi í morgun. það var ekki hundi út sigandi.
Já, ekki allt ódýrt í Germany þó að dýrara sé allt heima. En t.d. var ég að fá hækkun á sjúkrasamlagsgreiðslurnar mínar. Borga mánaðarlega 330 evrur. Sem er nú aldeilis góð summa yfir árið.
Hringdi stutt í Arnhildi í gær og það var bara gott hljóð í henni. Gat ekki talað lengi út af fundi. Skæpaði við Margréti í dag, sem er alltaf að berjast við kvef. Gengur hægt að losna við það til fulls. Kannski hana vanti kjöt! Hehe.
Það kom hingað pakki frá Möllu minni í dag. Hjartans þakkir!
Margrét var æðislega ánægð með pakka frá Svanhildi og Sigurði, - aðventupakka til að gleðja hana með aðventusmákökum og jólatei. Föndri ,sem fallegu frændur hennar gerðu. Hún var svo ánægð að hún hringdi staks í Svanhildi. Þeim kemur mjög vel saman.
Vildi svo óska að Svanhildur hefði stóra íbúð og gæti leygt Margréti um tíma næsta ár ef hún fengi vinnu á Íslandi. Það myndi örugglega ganga vel. Og Margrét gæti verið innan um börn,-hvílik dásemd :) Eins sendi Lilla henni kort og í því var voða sætt jólaskraut, sem Margrét kunni vel að meta.
Eiginlega ætlaði ég í fyrramálið til Leiferde og vinna um tíma á jólamarkaði foreldrfélagsins. Bara að gamni til að vera aftur með gömlu stjórninni. En með þetta kvef og í þessu veðri nenni ég þvi nú ekki. Svo það er á dagskrá á morgun að liggja lengi í bælinu! Á að mæta í kirkju að syngja á sunnudaginn og veit heldur ekki hvort ég fer. Kalt í kirkjunni og ég þarf að vera mætt klukkan 9. Mikilvægast að vera frísk fyrir jólin og hress í ferðinni löngu.
Við erum svo boðin í hádegismat hjá Susanne mágkonu á sunnudaginn. Hún á afmæli á mánudaginn-eins og Arnaldur Kári. Ætlum þá með gjafirnar í leiðinni.
Jæja--hann var að hvessa um stund, en aftur er rólegra. Í suður og mið Þýskalandi var fárveður og allt í ósköpum. En lítið um slys miðað við hvað gekk á.
Eftir að sjá hvort við fáum rok í nótt.
Hugurinn svo heima í sveit á morgun. Hefði gjarnan viljað vera við útförina, en ekki auðvelt svona langt í burtu með sínar skyldur og verkefni. Og já, meðan ég man-- ég vil útför í kyrrþey, og ekki kaffi!!!!!! Bara þið nánustu eigið að syngja og vera með mér. Ég er ekki í þvi að fá sem mesta athygli. Þarf svo ekki heldur neina ræðu.
Hafið það sem best--og munið að það skiftir ekki mestu máli að allt sé hreint og flott. Það að eiga tíma með fjölskyldunni er mest um vert. Og miklu meira gaman að gera konfekt saman í góðum félagsskap og baka smákökur en að taka til.--Affí- !!!! hlustaðu nú á stóru systur! Og henni er BANNAÐ að taka til hjá mömmu i Litluhlið--mamma hefur sinn "skítastaðal" eins og Magga skólasystir segir, og Affí sinn og þeir passa sko ekkert saman. Og hana nú :) <3 .
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
ég sagði aldrei að við hefðum runnið niður brekku :) komumst bara ekki upp :D hihi
jólaknús til allra sem lesa frá Margréti í Noregi !!
Hér snjóaði aðeins í nótt en ekki alveg vitað með framhaldið þar sem á að fara að hlýna...en æ það er nú oft lítið að maka spána og því bara að bíða og sjá.
Vona að Arnhildur lagist fljótt, þótti alveg ferlegt að heyra af þessu hjá henni. Sendi bestu batakveðjur.
Ég verð bara að fara að vinna í að koma okkur í stærri íbúð fyrir haustið...nema ég sagði við Margréti að ef við yrðum svo heppin til að fá hana til okkar myndum við örugglega ekki hleypa henni til Edinborgar!!!!! Og það var sönn ánægja að geta endurgoldið greiðann frá því um árið þegar þú sendir okkur skötuhjúum smákökur til Danmerkur á okkar fyrstu jólum ein í útlandinu!
Hafið það gott! Bestu kveðjur, Svanhildur
Bestu kveðjur til ykkar allra, það verður öðruvísi að eiga jól í Danmörku en yndisleg tilbreyting og frábært að Margrét komist til ykkar :o)
Ég væri svo til í að eiga pláss fyrir þína Margréti, kannski vinn ég í Lottóinu og þá er hún velkomin til okkar hvenær sem er... reyndar velkomin í sófann hvenær sem er, það er mjög vinsælt að gista þar en ekki gott að eiga heima þar hehehe
Jólakveðjur úr Kópavoginum
kv
Kristín E.
Fer lítið fyrir konfektgerð, smákökubakstri og tiltekt hjá mér. Legið veik í bælinu undanfarna daga, en jólin koma nú samt á endanum veit ég. Líst vel á Edinborg fyrir Margréti, líst síst á að hún verði 1/ ár í viðbót í Noregi, gott fyrir hana að færa sig um set og sjá eitthvað nýtt. Auðvitað verður hún að finna það út sjálf hvað hún vill helst gera og gaman hversu vel þessi Noregsdvöl hefur heppnast.
Verður heldur betur spennandi fyrir ykkur að vera á Jótlandi um jólin. Hafið það gott saman.
Kvefkveðjur úr Fjallalind...
Komin í jólafrí og gvööööð hvað það er búið að vera gaman að taka til í dag, henda gömlum fötum, fara í gegnum skóladótið,lagaði meira að segja til í fataskápnum okkar Ella, en ekkert gert nema þurrka af og skúra. Pússa stofuna á morgun og hlusta á jólalög á meðan, skreppa í bæinn og kaupa síðustu jólagjarfirnar og svo Litlahlíð annað kvöld í upphenginar. Tökum Magnús vin Aldísar með, hann er svo hávaxinn að hann verður flottur í að troða kúlum í loftið. Ætli hann fái ekki taugaáfall hahaha. Konfekt á miðvikud, e.t.v súkkulaðibitakökur.Svo bara skreyta á þorlák,gæti ekki verið flottara plan. Spurning hvort það gengur eftir hehe. Margrét á ekkert að bíða með að fara í nám, það verður bara erfiðara fyrir hana, best að fara meðan lærdómsrútinan er virk. jæja, besta að stelast í mon shery og slappa af fram að svefni. Kv affí sys
Bara rétt skriðinn í jólafríið og ég er hræddur um að það þurfi eitthvað að gera við mig eins og stóra bílinn, örugglega skipta um batterí og sjálfsagt veitir ekki af nýjum vinnukonum svo maður sjái eitthvað skýrt. Kláraði vinnuna fyrir skólann rúmlega 10 í gærkvöld og orkan bara ekki meiri. En nú er komið jólafrí og þá er brautin bein, ekki satt?
kvitt kvitt, betra seint en aldrei híhí, ástarkveðjur Arnhildur
Á ekkert að blogga á nýju ári frænka?
Post a Comment