Wednesday, January 18, 2012

Fyrsta blogg ársins 2012.

Já það kom að því. Einhvern veginn hefur maður verið svo upptekinn við allt og ekkert að ekki hefur verið næði til að pikka almennilegt blogg. En þar sem ég er í samkeppni við nýja bloggið hennar Þórdísar, Hildar og svo Möggu í Norge verð ég að standa mig svo lesendurnir hætti ekki að fylgjast með mér.
Já, það var Danmarksferðin, sem helst stendur upp úr á undanförnum vikum. Þetta var afskaplega indæll tími. Dásamlegt að hafa Margréti hjá okkur. Spilað, púslað, saumað út,borðað, labbað um á ströndinni og kíkt í verslanir. Ekið um og lesið og sofið lengi.
Keyrslan tók 7 og1/2 tíma með stoppum. Vorum 8 tíma til baka. Það var dimmt þegar við komum að bústaðnum og eins gott að við vorum með garminn. Húsið lítið og sætt, og allt, sem við þurftum til staðar. Nina var búin að segja okkur að búðirnar væru lokaðar á aðfangadag, en minni búðirnar voru opnar og sjoppurnar á bensínstöðvunum alltaf líka. Við hefðum ekki þurft að vera með neinar áhyggjur.
Sóttum svo Margréti, sem tók lest til Gautaborgar og ferju til Frederikshavn. Auðvitað fagnaðarfundir. Algjör hetja að ferðast svona ein, og það í fyrsta sinn með ferju í þetta langan tíma.--
Frederikshavn er sæt borg. Ekki stór, en hefur upp á ágætar búðir og hina fínustu göngugötu að bjóða. Ekki nema korters akstur frá bústaðnum.
Svo fundum við framtíðarbústað Affíar og Ella. Það er Elling! Þar voru svo sætar götuljósaskreytingar með hjörtum í miðjunni.--Akkurat eitthvað, sem Elli filar. :)

Hvar voru Maddý, Þorgerður og fjölskyldur--einhvers staðar nálægt Álaborg--hvar?

Á aðfangadag var búinn til möndulgrautur. Elduð svínasteik, og skorpan var frábær eftir að ég setti yfirhita á um tíma með hressilegum hita . Margét fékk möndluna og púsl frá Wasgi.
Við skreyttum smá og vorum búin að kaupa gervitré, sem Affí var svo snjöll að stinga uppá. Og það var svo fallegt með einlitri seríu, rauðum kúlum og svo seinna um kvöldið bættust fallegu hekluðu stjörnurnar frá Svanhildi við.
Það var fullt af pökkum, enda fær Klaus fullt af dóti, sem er svo sem ekki endilega jólagjafir--en til að hafa pakkana fleiri :). Sokka, nærskyrtur, nærbuxur, peysu og buxur til afslöppunar, hinar svokölluðu slúmmbúmm-buxur.
Þó ekki sé liðinn nema stuttur tími er ég farin að gleyma hvað ég fékk--gömul og gleymin.
En--dætur mínar virðast halda að ég elski að borða kökur! Arnhildur gaf mér uppskriftir um súkkulaðigúmmelaði og bollakökubók. Margrét kökubók með uppskriftum frá einhverjum þekktum og auðvitað ætla ég að fara að fara að prófa slatta af þessum gómsætu uppskriftum.
Klaus fékk góða gjöf frá Arnhildi-bókamerki með segli. Margrét fékk hinar einu sönnu jólabrækur og jólasokka frá Assesories--get ekki munað hvernig það er skrifað. Ég líka bókamerki og Klaus dagatal. Margrét DVD og lítið Wasgi púsl --man ekki meir frá Arnhildi--jú, skartgripi frá KD í boxi.-

Þórdís sendi alls konar ilm frá USA. OG Klaus fékk bindi, sem hann var ánægður með. Elskan hún Guðný bjó til þessa líka flottu uppskriftabók handa mér--skrifaði, límdi og ljósritaði uppskriftir. Þótt svo vænt um það. Affí prjónaði þessa geðveikustu vettlinga sem um getur. Og þeir voru notaðir daglega í Danmark.
Margrét fékk líka kertastjaka frá Svanhildi og SÁ. Með Múminálfunum. Alsæl með það. Fékk skál og bolla frá ömmu og afa. Svo safnið smá stækkar.
Klaus fékk heilsukodda frá þeim gömlu. Svona horn. Ég mátti velja mér, og fékk líka bækur og konfekt. Og Lilla og Maddý sendu konfekt. Ássý dagatal. Bæði til Margrétar og mín. Og Maddý sendi nöfnu sinni kvæði Jónasar Hallgrímssonar, og hún stundi yfir orðalaginu--hvað þetta þýddi? Hehe. Það þarf nú líka að kenna alíslenskum unglingum merkingu kvæða.

Margrét gaf okkur DVD, og disk með Anne Brun, góðri norskri tónlistarkonu. Klaus gaf mér pappírsjólastjörnu eins og við áttum á Skútustöðum, nema stærri og þessi er rauð. Og hálsfesti. Tvær bækur eftir Jo Nesbö. Hann fékk lyklaveski fyrir bíllykla frá mér og eina bók.
Margrét fékk alls konar dót í búið :) Tupperdót, bökunarform, svo sápur, tvær peysur, innskó, hitamæli til að setja á húsið í Norge--hún veit aldrei hvað heitt er úti, hehe.
DVD og bækur. Hjónin gáfu henni sætan nissa stitjandi á steini. Og tvö pör af ullarsokkum og bolla. Svo nú á hún sinn eiginn hjá þeim.

Susanne og hennar lið gaf okkur Margréti litla brúsa undir kaffi-to go, bækur, Margréti tösku og ilmvatn. Svo líka konfekt. Ætli þessi upptalningu --aðalega fyrir mömmu--sé ekki hér með búinn???? Margrét -hverju gleymdi ég--:)

Á jóladag voru borðarir afgangar. Farið í göngutúr og keypt brenni--eða var það á aðfangadag? Hmhm. Dagarnir liðu við rólegheit. Við ókum til Álaborgar eitt skiftið. Veðrið var ekki skemmtilegt. En inn á milli komu sólardagar og þá var ekið um. Við Margrét renndum líka í þorpin í kring og Klaus varð eftir og las í bók. Margréti fannst dimmt í Danmark eftir að hafa verið í Norge með allar sveitagötur upplýstar !

Einn daginn ókum við til Skagen. Löbbuðum út að endanum á skaganum og vorum þá komin eins langt í norður og hægt er. Gaman að sjá að úrin okkar þriggja koma frá þessum bæ, Skagen.

Nina bauð okkur til sín í bústaðinn, en hann er ansi langt í burtu. Og þar sem veðrið var ekki spennandi slepptum við þvi. Hún hringdi svo og sagði að það hefði verið góð ákvörðun. Þau gætu ekki einu sinni farið í göngutúr. Það var þegar mesta rokið var á Vesturströndinni.
Við fengum líka frost og það var æðislega fallegt. En hann rigndi nú líka helling. Og eins og fjölskyldan frétti, sátum við föst þegar við ætluðum að skutla Margréti í ferjuna síðasta morguninn! Bíllinn bara gróf sig niður í blautan jarðveginn.
Hún tók leygubíl, missti af ferjunni, tók aðra eftir 3 tíma og þurfti ekki að borga nema 7 evrur á milli. Og það besta var að hún kynntist stelpu, sem hún talaði við alla leiðina, svo tíminn var ekki eins lengi að líðia. 8 tímar í ferju án sætis er nú strembið. Þær sátu um tíma á barnum og í veitingastaðnum, en ekki er ætlast til að setið sé þar nema verið sé að borða. Og svo fundu þær sér pláss undir stiga og lögðu sig þar og sváfu um tíma :)

Hinn elskulegasti bóndi dróg bíllinn svo upp og við Klaus komumst klakklaust heim í regni og hvassviðri. Já, ekki lengi að líða eitt jólafrí.

Gamlárskvöldi eyddum við í hið árlega spil við Klaus. Hann nennir aldrei að spila en Margrét fær hann til þess einu sinni á ári. Það var hamborgarahryggur í matinn. Og frosin rjómarönd úr búð. Mér fannst hún æði. Svo ókum við til Frederikshavn og lögðum við einhverja verslun og horfðum á alveg ótrúlegt magn af fallegum flugeldum. það var rosa gaman. Margrét náði slatta á myndband.

Þá er nú best að slá botninn í þetta að sinni og halda svo áfram fljótlega svo næsti kafli verði ekki svona langur :) Lifið heil!

9 comments:

Anonymous said...

jæja tilraun tvö....fyrsta hvarf út í vindinn ...
Svo skemmtilegt að lesa þessa lifandi lýsingu á dönsku jólunum...ég gæti alveg hugsað mér að vera í sumarhúsi um jólin. Ég hef verið á þessum slóðum nokkrum sinnum og siglt með ferjunni yfir til Noregs. Mig langar þó mest núna að fara aftur til Skals sem er rétt við Viborg en þar var ég fyrir tveimur árum að læra að sauma út og það var alveg frábært...ættum við ekki bara að skella okkur saman...hittast þar. :)
Kv. Inga M

Anonymous said...

Lýst vel á þetta Elling .. :) Væri sko til í að fara eitthvert út í sumar en ætli ég reyni ekki að vinna þetta sumarið, ekki veitir af þegar lánin hafa hækkað upp úr öllu valdi, eins og allt nema launin. En þá er bara að finna eitthvað skemmtilegt að gera. Hér er búið að vera nærri ófært vegna hálku, og einn daginn þurfti ég að labba eftir girðingum húsanna hér í götunni til að komast heim til mín ( flestir með ca 60 ca steyptan kant kringum lóðirnar en ekki hefðbundnar girðingar), en svo var borinn sandur á götuna svo þetta skánaði aðeins. M og p komu í fyrradag, og við vorum í heilmiklu basli að hjálpa þeim að komast hér inn í hús, þvílík var hálkan. Hef aldrei upplifað neitt þessu líkt hér . En svo snjóaði og frysti, en veit svo ekki á hverju er von næst :) Jæja, er á leið í skólann, var ekki í kennslu f. hádegi í dag, svo ég greip í prjóna og kæruleysi. Þarf að kanna þetta með vinnu í Danmörku, ja eða Skotlandi. Elli vill helst fara til Írlands :) Nóg í bili, knús á Klaus, þín sys affí

Þorgerður said...

Sama hér og hjá Affí, svo mikil hálka að maður fer ekki mikið um. Rignir og snjóar til skiptis, klakinn lætur sig ekkert. Tómlegra heima þegar Hildur er ekki, þær hafa það greinilega gott í Thailandi. Við vorum í bústað nálægt Álaborg, minnir að bærinn heiti Hals og er við ströndina. Keyrðum m.a. til Frederikshavn, Hirtshals ofl. Kann mjög vel við mig þarna á Jótlandi. Fékk Skagenúr frá bóndanum í fertugsgjöf, Hildur og Gilli eiga sitthvort líka :)
Bestu kveðjur til ykkar Klaus!

Anonymous said...

fyrsta brennið var keypt aðfangdag og ég fékk ekki Wasgij púsl í möndugjöd, heldur spilið "Quirkle" :)
gaman að þú sért aftur farin að blogga!
Margrét

Anonymous said...

Margrét -hverju gleymdi ég--:)er besta setningin :D og Margrét auðvitað með þetta á hreinu :D
kvitt kvitt Arnhildur

Anonymous said...

Skemmtileg lestning - gleymdir trjánum frá mér, en þú varst búin að þakka mér svo fallega fyrir þau áður að ég fékk tár í augun. Gleðilegt nýtt ár. kv. Malla

Anonymous said...

Vissi að ég myndi gleyma einhverju--og auðvitað einhverju, sem mér þætti verulega vænt um. Malla mín-- trén eru frábær og ekki gleymd! Takk takk :)
Ádda gamla gleymna----

Anonymous said...

Mjög glöð að þér likar bokin:)
Flottar gjafir sem þið fenguð nú.
Virðist hafa verið mjög kozy og næs hja ykkur! -guðny

Anonymous said...

Gaman að lesa, þetta hefur verið mjög ljúft og notalegt hjá ykkur. Eitthvað hefur okkur gengið illa að taka upp símtólið og heyra í þér eftir hátíðar, en takk fyrir okkur og gaman að ykkur leist eitthvað á snjókornin og ágætt að múmínálfarnir hittu í mark!

Bestu kveðjur, Svanhildur