Tuesday, January 31, 2012

Kuldi og sól.

Það voru ein 8 stig frost í morgun, og örugglega meira í nótt. En þar sem sólin skín er þetta hið besta verður. Þó að það sé skelfilega kalt. Við Klaus erum að fara til Hannover. Klaus leist ekki á að vera þar allt of lengi í þessum kulda. Við stefnum á lestina korter fyrir fjögur og erum þá komin í miðbæinn korter yfir 4. Ætlum að hitta Ramonu, sem kemur rétt fyrir 6.
Ég nenni ekki að byrja á einhverju áður en við leggjum í hann og ákvað að blogga smá.

Við Klaus erum í löngu helgarfríi. En sælan er búin á morgun. Það var einkunnagjöf á fö. Ég vann ein í gæslunni. Ekki margir krakkar. Svo var ekið til Edemissen þar sem Brigitte Rodloff hélt uppá að vera hætt kennslu eftir 44 ár. Var bara ágætt og fínar súpur og kökur.

Frau Kühle var í burtu í 4 daga og ég að passa köttinn. Klaus ók mér nokkur skifti því hann fór að snjóa á fö. Og ég ekki sú besta í hálku. En þetta reyndist svo allt í lagi og ég gat ekið ein. Höfum verið að dunda við smá tiltekt. Ég tók fataskápinn minn í gegn. Alltaf gaman að finna föt, sem maður er næstum búinn að gleyma, hehe. Og eitthvað hefur Klaus kíkt á pappíra og hent. En gengur hægt :) Svo tók ég flestar bækurnar úr Ikeaskápnum niðri í stofu. Er að sortera og ath hvort ég geti ekki losað mig við einhverjar, sem ekki eru svo spennandi.
Kláraði að strauja. Ekki neinn smá stafli. Já, svona ganga dagarnir.

Þorgerður er farin að spá í sumafríið, og þau eru að hugsa um að koma hingað. En allt á henni "Huldu" samt enn með það. Það væri æðislegt. Ég var að vona að Malla kæmi, en þau ætla að hafa það náðugt með börnin á sólarströnd, sem ég skil nú vel. Samt synd að fá þau ekki.
Hvað annars verði með okkar sumarfri er líka á Huldu--auminginn hvað hún þarf að bera ! :) En allar líkur að við verðum í Norge frá 19.7 til byrjun ágúst.
Og svo er það spurningin með næsta vetur hjá Margréti.

Ég er ekki alveg nógu ánægð í kórnum. Það er svo ansi leiðinlegt að syngja altinn. Maður hefur það á tilfiningunni að maður taki ekki þátt í því að syngja lagið. Sé utanvelta. Og svo eru þær í altinu nú ekki vel lagvissar :) En ætla samt ekki að gefast upp. Anita, sem á strák í gæslunni hjá mér, og er líka í altinu, bauð mér í tesopa á undan næstu æfingu. Kannski maður komist í meira samband við einhverjar konur. Og svo verð ég með Tupperkvöld á afmæli Sigynar, þann 17.2. En hverjir komi er ekki enn ljóst. Enn sem komið er erum við bara 4 alls :)

Margrét komin í kór. Og leist vel á . Vonandi að það haldist. Þessi kór er ekki svo langt í burtu. Og fólk á hennar aldri. Hún var eitthvað slöpp undanfarið enda allir lasnir í kring um hana. Ég held að Dani ætti að sjóða þvottinn af og til, t.d. tuskurnar, og nota sótthreinsandi á klósettið--þá væri ástandið kannski betra, eða ? Hvað segir hjúkkan :)
Um næstu helgi verður Margrét svo á skíðakeppni. Fer með 3 eða 4 þýskum stelpum. Held að Lilla, Jonni og Láki hefðu ekki neitt að á móti því að vera með henni.

Jæja, klukkutími í ferðina. Kannski maður fái sér eins og einn kaffibolla fyrst. Vona að þið séuð öll hress og kát. Mér skilst að vorið hafi komið í heimsókn til Íslands. Spurning hversu lengi það staldrar við.

4 comments:

Anonymous said...

vona að þið gerið eitthvað skemmtilegt í Hannover!
Margrét

Anonymous said...

Já Áslaug, við komum bara til ykkar í næsta fríi :) Stefnum á það!!
kv. Malla

Anonymous said...

Hér er ekkert farið að plana neitt fyrir sumarið, líklega reyni ég að fá einhverja vinnu, alla vega hluta af sumri þó ég nenni því svo alls ekki, en hvað gerir maður ekki þegar allt hækkar og hálvitar stjórna landinu. Fór í afmæli/myndlistaopnun hjá Jónasi Viðari vini mínum og samkennara í gærkvöldi. Hann varð 50 ára og opnaði málverkasýningu í Hofi í tilefni dagsins, bara mjög gaman. Var svo að puða í dag, skrapp í ræktina í rúman klukkutíma í hádeginu og gerði helling af bakæfingum auk þess að lyfta og hlaupa 1 og hálfa km. Er að reyna að fara minnst 3 í viku, það heldur bakinu á mér ótrúlega fínu. Annars allt við það vanalega. Ætla að kíkja á m og p á morgun, hef ekkert farið til þeirra þessa vikuna. Bið að heilsa og farið varlega í þessu vetrarríki ykkar. Hér er spáð 8 stiga hita á mánudag :) Saknaðarkv þín syn affí

Anonymous said...

Altröddin er rosalega vanmetin, það geta flestir gaulað sópran einhvern veginn, ekki allar sem ráða við að syngja röll. Láttu þér vel líka, systir. Þetta er bara gaman. Og þú getur líka boðið einhverjum í te til þín úr kórnum, ekki satt. Ertu búin að spá í sumarið?
BK Diddi