Monday, February 6, 2012

Frostkveðjur.

Jæja elskurnar mínar. Hér er bara hörkuvetur. 18 stig nótt eftir nótt. Hlýrra á daginn og svo kólnar hann aftur. Meðan vindur er fylgjandi þessu er eins og kuldinn magnist um heilan helling. Við Klaus drifum okkur í göngutúr í gær og mér fannst 8 stigin vera nærri 80 --fraus svo á hökunni. En-maður er jú ekki vanur nokkru lengur. Allavega er ofboðslega fallegt úti.
Það er ekki svo hjá Margréti í Norge. Þar er dimmt og sést ekki í sólina. Veður til að detta niður í þunglyndi eða þá að sitja með spennandi bók allan daginn svo hann líði sem fyrst :)
Hún er búin að vera kvefuð lengi og oft, og er alveg búin að fá nóg af þvi. Eins og þið þekkið, sem fáið kvef aftur og aftur. Diddi núna heima með kvef, Arnhildur með í hálsinum- Arnaldur búinn að vera lasinn, Elli var lasinn ,---og svona mætt lengi telja þegar litið er til baka.
Klaus er enn hóstandi, þó fyrst og fremst á morgnana, en mér finnst að hann ætti kannski að láta kíkja á sig aftur. Bronkitis er ekkert spaug.

Nú, þrátt fyrir kvef dreif Margrét sig á skíðakeppnina og var þar bæði á laugardaginn og sunnudaginn. Það var æðisleg stemming og fjör. Rosalega kalt. Og ég dáist að liðinu að geta verið úti án mikillar hreyfingar í 4-5 klukkutíma. En þetta er svo hresst lið. Hún gisti laugardaginn hjá Isabell, sem býr nær Oslo. Þetta er annars löng ferð frá Lier. Þarf að reikna með 3 klst til Holmenkollen. Það er ótrúlegt. Já, það er vissulega aðeins of langt í alla hluti frá Lier. En allavega er Margrét komin í kór ekki svo langt í burtu og vonandi að hún fari að kynnast norskum krökkum, sem hafi tíma í vikunni og ekki bara um helgar. Og hún er að spá í jóga. það væri líka flott.

Ég komst í jólahreingerningarstuð í frostinu og sólinni. Leið eins og heima fyrir jólin í Mývatnssveit--haha. Búin að berja bækur, bera tekkolíu á mublur og þrífa og taka til af kappi. Samt ekki búin alveg með stofuna, en langt komið. Klaus heldur að ég sé klikkuð. Haha.
Annars bara rólegt hér. Ferðin til Hannover var ágæt. Rosalega kalt og við hefðum ekki haldist við miklu lengur en við gerðum. Hittum Ramonu og sátum á kaffihúsi á lestarstöðinni. Það var bara fínt.

Svo er það kötturinn allar helgar, og snúningar og hitt og þetta. Skrópði í jóganu á fim.,--var eitthvað SVO þreytt, --hmhm--löt-, og fer í síðasta tímann á næsta fim. En ætla að byrja á nýju námskeiði. Veit um eina, sem átti í miklum erfiðleikum út af syninum, sem er að hluta spastiskur. Hún fór að fá hjartatruflanir út af stressi og áhyggjum. Ekkert fannst að henni í skoðunum. Hún fór til jógakennarans, sem ég er hjá, og fékk einkatíma og lærði sérstakar æfingar fyrir hjartað. Og ekki hefur borið á nokkru síðan hún fór í jóga. Svo það getur svo sannarlega hjálpað. Í morgun gerði ég loksins aftur magaæfingarnar mínar og axlaræfingarnar. Ferlegt þegar maður dettur út úr þessu og kemur sér ekki í gang aftur.

Takk Diddi fyrir fögur orð um "alt"--að ekki geti allir sungið það--haha. Ég ætla þá að gerast metnaðarfull og reynast fínasti alt!!!! Já, yfirhöfuð takk fyrir kommentin. Alltaf svo ljúft að finna kveðju.
Á Facebook á mínum vegg er slóð frá ZDF með keppninni á Holmenkollen. Þar sést í Margréti-örstutt--en betra stutt en ekki :) Kann ekki að setja slóðina á bloggið, en kannski Margrét geti gert það fyrir mig svo Svanhildur geti kíkt á þetta.--

Jæja. Best að hætta að sinni. Eftir stutta stund er Margrét búin að vinna og við Klaus ætlum að kíkja á hana á skæpinu. Bið ykkur vel að lifa og hafið það öll sem allra best---- .

3 comments:

Anonymous said...

http://www.zdf.de/ZDFmediathek/hauptnavigation/startseite/#/beitrag/video/1560870/Massenstart-der-M%C3%A4nner-in-voller-L%C3%A4nge

Þetta er slóðin. Það er hægt að sjá mig á 14. mínútunni :)
Frostkveðjur líka frá mér til allra!!
Margrét

Anonymous said...

Hæ! Við Ástþór Örn búin að kíkja á videoið, frábært!! Hér er mikið rooooook og en meiri rigning. Úff...held ég myndi bara ferkar vilja frostið. Allt svo svart núna í myrkrinu þegar enginn er snjórinn. En æ, maður vill alltaf það sem er ekki, er það ekki?!?!

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Við Össi vorum að horfa á þetta - Margrét aldeilis hress og hoppar sér til hita :)