Þá er þessi merkilegi dagur, 29.2., runninn upp. Hér stóð í blöðum að konur vildu frekar láta taka barn með keisara en að eiga það á hættu að eignast barn á hlaupársdeginum. En varla getur það verið svo slæmt. Hér er ekki spennandi veður þennan ágæta dag, en vel hlýtt. Þoka að ergja okkur og af og til smá úði. Spáð svo bjartara og hlýrra. Lýtur út fyrir að vorið sé mætt, og blómin eru alla vega á þeirri skoðun. Það fer að verða algjör sprenging í beðunum með þessu áframhaldi.
Það var sól á sunnudaginn. Klaus settist í Strandkorb og fékk sólbruna á hálsinn og lit í andlitið :) Það var svalt í golunni, en æðislegt í stólnum. Við dunduðum okkur síðan við að taka til í vinnuherberginu. Ætluðum að setja upp rúllugardínu, sem búin að liggja lengi á háaloftinu, en þá er hún of breið. Lendir á hillu, sem er við hliðina á glugganum. Svo við kaupum okkur þá bara nýja gardínu. Búin að panta tvo sófa, og verið að spá í nýjan klefa fyrir sturtuna. Svo peningarnir virðast ætla að hverfa út í vind og veður á næstunni, hehe.
Á mánudaginn ók ég til Celle. Átti að mæta í myndatöku á krabbameinsstöðinni. Það fannst kalk í vinstra brjósti í sumar. Þessu, sem skorið var upp. Og þau vildu fylgjast með þessu. Allt i besta lagi og ég fegin :) Alltaf gott þegar svona er afstaðið og gott kemur út úr því. Á svo eftir að láta skoða hnútana á skjaldkirtlinum (þarf á tveggja ára fresti í skoðun ) og fara í hina árlegu krabbameinsskoðun.
Gat ekki stansað að ráði í Celle þar sem ég þurfti í vinnuna í hádeginu, og keypti bara rúndstykki og kom við hjá Frau Kühle, og fékk mér kaffisopa og við borðuðum eitt stykki af þessum frábæru skyr-súkkulaði rundstykkjum.
Mætti svo til Gifhorn að hitta Conni og taka síðustu hlutina fyrir Tuppergestina mína. Hún tók dóttur sína með, sem er erfið, og það var sorglegt að sjá hve mikill bardagi átti sér stað milli þeirra mæðgna. Stelpan er 12 og á við alls konar erfiðleika að stríða.
Skrapp svo í búðir og svo heim. Rigning--alltaf blautt síðan á sunnudaginn.
Í gærmorgun kom svo Conni til mín og ég er orðin sölukona hjá Tupper til reynslu í 6 vikur. Ætla nú ekki að leggja þetta fyrir mig þar sem ég er ekki típan til að pranga einhverju inn á fólk. En gaman að kíkja á þetta og hitta fólk. Fer með Conni á mánudaginn á fund og svo á einhverjar kynningar með henni. Þarf ekki að binda mig, ekki að kaupa "Start-tösku" og fæ 7 hluti gefna þó ég hætti og hafi ekkert haldið neina sölukynningu. Og Conni fær hitakönnu fyrir að fá mig sem sölukonu.
Susanne mágkona mætti svo í kaffi og tók Tupperdót þeirra mæðgna. Fór svo frá mér til Hannover til Ramonu. Hún er dugleg að vera á ferðinni. Fór með lest til Tante Marga, systur Körlu, í 6 klst lestarferð og til baka um kvöldið eftir 7 tíma heimsókn. Klaus segir að hún sé ekki eðlileg :) Enda er það ótrúlegt að þau séu skyld!!! Marga varð áttræð. Susanne mætti bara án þess að nokkur vissi á veitingastaðinn, og andlitið datt af þeim! Og Marga var voða glöð að sjá hana.
Kláraði hæl á sokk og er svo bara löt í dag. Reyndar búin að spjalla við Didda á skæpinu, sem er ekki leti ! Frau Kühle kom með mér eftir vinnu og við fengum okkur kaffi. Ég ætla til hennar á morgun að rutta til í kjallaranum. Henda tómum glösum og drasli. það verður sko fjör !!! Eins gott að vera ekki hrædd við köngulær því þær eru í kjallarum í hópum. Sem sé ekki starf fyrir Affí--hehe.
Margrét er líklega í Oslo í dag með Rakel. Þær ætluðu á skauta. Það var þrusu gott veður í gær og hún gat verið úti á stutterma bol að lesa á svölunum. Joni leitar núna mikið til hennar og hún átti endlega að ná í hann i leikskólann í gær, sem hún og gerði. Og átti líka að hátta hann.
Á laugardaginn eiga svo tvíburarnir afmæli, en þær eru með hlaupabóluna, og ekki verður mikið úr sundi eða öðrum skemmtilegheitum. Svo það verður þá bara haldið seinna .
Við gömlu hjónin erum að spá í að fara i frí til Mecklemburgerseenplatten--ef þetta er nú rétt skrifað--hehe. það eru fræg stöðuvötn í austur Þýskalandi. Ekki langt frá Austursjónum svokallaða. Klaus vill fara á hótel--aldeilis eitthvað nýtt! En reyndar eru ekki margir sumarbústaðir í framboði þarna sem líkjast þeim skandínavísku. Mest um íbúðir inni í prívathúsum. Kannski við drífum okkur þann 24. mars. Í viku. Sjáum til.
Þetta er þá orðið gott í bili. Hafið það sem best. Vona að þeir, sem lesi, kvitti líka. Frétti stundum af því að einhver lesi, en meldi sig ekki. Það er svo gaman að fá kveðjur. Þó hún sé bara örstutt.
Hjartans kveðjur til allra. Áslaug í þokunni.---
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Jæja, kominn 1. mars...alveg hreint ótrúlegt. Gaman að heyrast á Skype í gær, við gleymum voðalega oft að kveikja á því.
Gott að allt kom vel út í myndatökunni og vonandi að hinar skoðanirnar gangi vel líka.
Vonandi að vorið sé á næsta leyti hjá ykkur, hér er eitthvað í það held ég enda "bara" byrjun mars!
En ég gleymdi alveg að nefna það í gær að það er akkúrat ekkert mál að kaupa fyrir þig lopa í sokka og senda þér, þú segir bara til. Ég er alltaf á ferðinni í þessum garnbúðum hvort sem er!
Hafið það gott og mikið líst mér vel á að þið Klaus skellið ykkur í ferð í lok mars :)
Bestu kveðjur, Svanhildur
Já, sammála Svanhildi. Góð hugmynd að skella sér í smá ferð um páskana! :)
Margrét
Nei, nei, nei, þetta líst mér ekki á. Maður fer ekki bara svona og á staði sem maður hefur ekki komið á áður. Þetta er ekki nokkurt vit. Eða jú. Skil ekki af hverju þú og Klás hafið ekki verið dugleg að fara á alla þessa flottu staði sem eru örstutt frá ykkur, jafnvel styttra en að fara til Akureyrar. Hér er rok og rigning, en það er komin helgi og lífið er dásamlegt. Ætlum að hjálpa VÖ að flytja um helgina og Affí og Elli að ónefndri nöfnu minni eru á leiðinni suður, ef ég veit rétt. Svo var ég að fá boð þann 24. mars í 60 ára brúðkaupsveislu Stebba og Heiðu. Hlakka mikið til. Fékkst þú líka boð?
Er að fara niður í ræktina og sund með Eiríki. Segðu að ég sé duglegur.
Bk Diddi
Ja hérna,ekki líst mér á!Æða bara í frí og það á hótel og þú getur þá ekki tekið til eða eldað.Þú verðu að hafa með þér straujárnið svo þú getir straujað náttfötin ykkar freka er ekkert.Flott hjá ykkur og meira af svona.Er að rembast við að ná mér eftir ferlega dr.. pest sem ég þurfti endilega að fá meðan dæturnar voru hér,en það var samt gaman að hafa þær.Var að enda við að borða kjúklingab. en hef ekkert borðað almennilega í viku,en ég næ því nú fljótt upp ef að vanda lætur.Afslöppuð helgi framundan nema hjá Einari sem á að spila á morgun í Hofi með Big b.Eg reyni e.t.v ð fara og hlusta.Bestu kv.Magga móða.
Rífandi gangur hjá þér - líst vel á þig frænka. kv. Malla
Aðeins að stelast í vinnunni, hér er búið að vera brjálað að gera en loks smá rólegheit inn á milli í dag.
Lýst vel á vikufrí í austur-Þýskalandi :) góða skemmtun ef þið farið.
kv
Kristín E.
Post a Comment