Sunnudagur og rétt undir frostmarki. Hlýnandi a. m.k. í bili. En einhverjar hryllingsspár um "frostrigningu" Eftir að sjá hvort ég kemst á bílnum til Leiferde í menntaskólann eða hvort Frau Kühle skutli mér. Annars er ég voða huguð. Hef ekið undanfarið þó að það sé frost. Hmhm--það var nú líka ausið salti á göturnar og hvergi hált :) Maður ber svo inn steina og salt, og forstofan er alltaf glæsileg þegar pollarnir eftir stígvélin þorna.
Sést ekki til sólar í dag. Stillt og ágætt veður og ekki undan neinu að kvarta.
Klaus er að undirbúa sig fyrir stuttan fyrirlestur á þr. Svo er hann að athuga síðu á netinu. Hann fann nefnilega fínan sófa og stóla ,sem eru ódýrir, en líta vel út. Tekur 12 vikur að fá þá. Alltaf sama sagan. Svo það passar þá vel við ruslasöfnunina í maí. Þá taka þeir stóra hluti. Annars var ég alveg með það á hreinu að setja sófana gömlu út a veröndina og drekka þar kaffið mitt þegar hann fer að hlýna :)
Er búin að koma saumvélinni í gang. Gerði við tvo hluti á fim. Svo fór tíminn í að taka geymsluna niðri í gegn. Það var ekki hægt að ganga eftir gólfinu og allt í rusli eftir ferðalagið og jóladraslið, sem tekið var af efstu hillunni. Og er nú aftur komið á sinn stað. Hvers konar húsmóðir er þetta nú.
Ryksugan fór ekki í gagn, en Klaus er greinlega með töfrahendur því hún rauk í gang hjá honum með því sama.
Leila var hress og kát í enskunni hjá mér. Frétti að hún væri ekki ætteidd, heldur væri hjá fósturforldrum. Foreldrar hennar eru eiturlyfjaneitendur og hún var fyrsta árið sitt hjá ömmunni og svo ár á barnaheimili. Svo tóku þessi hjón hana til sin. Og eru henni virkilega góðir foreldrar. Já, margar sorglegar sögur í ýmsum fjölskyldum.
Leila segir að það sé miklu meira gaman að læra hjá mér en mömmunni! Svo ég er auðvitað ánægð með það. Svo getur verið að ég vinni með einni úr gæslunni, Klöru í 2.bekk, , og sjái um að hún geri heimaverkefnin. Hún er ættleitt, og hennar foreldrar eru með nokkur börn til viðbótar í gæslu. Klara á erfitt með að einbeita sér og alls konar erfiðleikar eru hjá henni. Varð fyrir áfalli sem barn. Að foreldrar skuli eignast börn, sem eru svo ekki í standi til að hugsa um það, vitandi að þau séu fíklar. Hvað er skaparinn að hugsa? Og hinir eignast ekki börn. En allt hefur þetta sinn tilgang og við verðum bara að taka þessu og gera okkar besta.
Allavega er ég hress með það að fólk skuli treysta mér fyrir börnunum sínum.
Gott hljóð í Margréti. Hún skrapp til Isabell á fö. Þær fóru út á ísinn á Oslofirðinum og það var náttúrlega mikið ævintýri. Enda er Margrét ekki vön að vera á Mývatni í frosti, hvað þá að upplifa álfadans og brennu á Stakhólstjörn. Já, í þá góðu gömlu---- :)
Í gær hitti hún Söru og þær fóru í verslunarmiðstöðina í Drammen. Hún m.a.s. fann eina Múminkönnu á tilboði og var ekki lengi að kaupa hana. Bara á 12 evrur í stað 20. En bara þessi eina tegund. Múminstrákurinn í svart hvítu. Og svo keypti hún sér pils og langerma bol.
Í dag var hún að vinna fyrripartinn og átti svo að fara með strák nágrannanna í sund. Dani ætlar líka og við erum spennt að heyra hvernig gekk. Hún á að fá aukalega borgað frá þessum foreldrum. Og kannski hún geti oftar passað fyrir þau ef allt gengur vel.
Svo var hún á söngæfingu á fö. Frétti líka að þessi kór sé einnig í hennar söfnuði og kannski hún kíki líka þangað. Ekki eins langt að fara. Loks er á dagskrá að kíkja til Drammen og fá upplýsingar um jóga. Sem sagt allt á fullu.
Jæja, þá eru þeir, sem ekki lesa enskuna búnir að fá helstu fréttir af henni.
Mig vantar svo lopa til að geta prjónað sokka. Frétti að hægt væri að panta lopa frá München. Þarf að kíkja á netið.
Slæ þá botninn í þetta að sinni. Óska ykkur góðrar viku og vona að veðrið verði skaplegt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Það gekk æðislega vel í dag með strákana í sundinu. Ofsa fjör :) Jibbi. Og svo var bara aftur sól í dag. Æðislegt!
Margrét
Hér er aftur byrjað að snjóa - með roki með því.... þetta fer alveg að verða gott er það ekki??? kv. Malla
HæHæ... dreif mig loks í að lesa blogg, hafði engan tíma til þess á Akureyri hehehe
Hér er snjór og snjór... aftur eftir vorveður í nokkra daga, þetta veður ætlar ekki að ákveða sig hvaða árstími er núna.
Farin að vinna, nóg að gera.
kv
Kristín E. á næturvakt
Post a Comment