Wednesday, February 8, 2012

Dásemdar veður.

Á meðan þið á Íslandi lendið í roki hvað eftir annað er hér stilla og himneskt veður. Það er ekki eins kalt í dag. Ekki nema um 8 stiga frost í morgun. Og ekki þurfti að skafa neitt í morgun. Þurrt loftið. Það er líklega slatti af D vítamíni, sem fæst þessa dagana ef maður rekur nefið í sólina.
Hef labbað í vinnuna og Sonia verður mér svo samferða heim. Mikið spjallað á leiðinni til baka :)
Ég er afskaplega hress og kem bara ýmsu í framkvæmd. Var hjá sálfræðingnum á þr. og hún sagði mér að vera ekki að pæla og hugsa og velta hlutunum fyrir mér, heldur framkvæma!!! Byrja straks og ekki plana allt fyrir morgundaginn eða næstu viku eða hver veit hvað. Ég er ansi góð í plönum, sem ekki komast svo í framkvæmd. Og svo skammaði hún mig fyrir lista-ástina mína--hehe- ég er alltaf að gera lista---því ég sleppti því að þjálfa heilann og minnið. Eins og það gerði eitthvað til ef eitthvað gleymdist segir hún. Það er bara verst að ég er eins og gatasigti-en kannski ég geti í alvöru þjálfað minnið. Ætla að bæta mig. Hehe.

Kom svo í verk--já, dreif í því!!- að leggja undir mig herbergi Margrétar, sem er oftast undirlagt af Klaus með fartölvuna. En honum var sem sé sparkað út :) Nú er saumvélin komin á skrifborðið. Bútar og alls konar efni fallega samanbrotið í hillunum og hitt og þetta, sem gera þarf við er komið við hliðina á saumavélinni. Ætlaði svo að byrja áðan, en þá var spólan tóm!! hahaha. Og ég þarf að ná í bæklinginn- kann aldrei að spóla hana fulla. Best að hafa leiðbeiningarnar hjá sér.

Var reyndar að strauja 8 skyrtur í dag, setja hreint á rúmin, þvo öll gólfin uppi og hengja út þvott. Og horfði svo á "gamalmenna"þáttinn klukkan 4 á stöð 3. Alls konar efni og m.a. oft föndur og um mat og blóm. Þess vegna held ég út að horfa á þetta. Í dag var skreytt fyrir Valentínusardaginn. Sett blóm í svona blómarör (kallað hér orkideu-rör) ullarfilti vafið í nokkra hringi utan um rörið, og festa svo með títiprjóni. (Ullarfiltið var á rúllu, og þetta var svo eins og upprúllaður trefill. Og svo klippt af.) Þá stóð þetta eins og blómapottur--voða flott. Auðvelt og sætt.

Við Klaus vorum að skæpa við Margréti. Hún fer á morgun í Co Op búð, sem er líklega svona álíka og Hagkaup. Hlakkar til að komast í stærra en Kiwi, sem er aðalverslunin þeirra. Mér fannst frábært þegar ég var að lesa Jo Nesbö þegar hann skrifar um að hann færi í Kiwi--nú vissi ég loks hvað það væri. Svo hafði Sara samband og þær ætla að fara á fö. í Gullskogen-verslunarmiðstöðina í Drammen (þar sem Erna Svava vinnur ) og svo er jú kóræfing á fö.kvöldið. Svo það er bara fínt framundan.

Svo ætla ég loksins að fara að prófa nýjar uppskriftir. Var loks að skrifa upp af blogginu mínu döðlunammið hennar Svanhildar, sem ég kom aldrei í verk að gera fyrir jólin. Og er með uppskriftir frá Þórdísi af nýja heilsublogginu. Og síðast en ekki síst verð ég að prófa eitthvað af þessum geðveiku kökum úr bókunum frá þeim dætrum mínum. Allt í lagi með kökur og nammi ef það er í hófi og hollt er borðað á móti.

Frau Kühle fer enn og aftur á morgun til að pakka , og kemur á sunnudaginn. það er spáð snjó, og etv. verður Klaus minn að skutla mér til kisa. En í lok feb. verður húsið svo tæmt og þetta fer að taka enda. Maður fer ekki mikið í kuldanum, sem hefur verið fram að þessu, og einhvern veginn bíður maður eftir mars og vonar að þá verði hlýrra og ég komist í klippingu í BS. Og litun--hmhm.
Svo var verið að hringja í mig og biðja mig að hjálpa í menntaskólanum á mán kemur. Þá er kynning fyrir grunnskólanemendur í útibúinu í Leiferde eftir hádegið. Foreldrafélagið er með kaffisölu. Og 3 úr stjórninni eru komnar i 40 stunda vinnu á viku, sem ekki var áður. Og vantar aðstoð. Auðvitað mæti ég og hef bara gaman af.
Í fyrramálið fer ég í síðasta tímann í jóga. Svo kemur Leila til mín í enskukennslu klukkan 3. Voða indæl stelpa úr 6. bekk. Og svo er söngæfing hálf átta.

Þá bið ég ykkur vel að lifa og vona að veðrið verði nú skaplegt á næstunni hjá ykkur.

4 comments:

Anonymous said...

Þú sagðir mér ekki að þú skildir fara að hjálpa menntaskólanum. Kúl. Kannski að þú fáir að sjá nokkra af gömlu kennurunum mínum :) Bið allavega að heilsa ef þú hittir einhvern.
Love you
Margrét

Anonymous said...

Alltaf nóg að gera hjá þér! Og mikið er þetta rétt sem sálfræðingurinn sagði þér...einhvern veginn svo sjálfsagt en reynist oft erfitt að fara eftir engu að síður! Verður gaman hjá þér að prófa nýjar uppskriftir, ég á hér líka uppskrift af rosalega góðri döðlu/súkkulaðiköku sem er jú hollari en flestar...þó að mér finnist alltaf skrítið að tala um hollar kökur!!! Ha ha. Góða helgi. Kv. Svanhildur

Áslaug said...

Svanhildur--það væri ekki slæmt að fá þá uppskrift líka ! Bestu kveðjur og pældu í uppskriftabók í jólagjöf :) . Áslaug.

Anonymous said...

H'er eru bara bakaðar skúffukökur hehe. Hér er smám saman svellið að hverfa, vonandi verður það farið fyrir næsta snjóakast hehe. Þórdís hér núna, fór í litluhlíð í hádeginu og var að koma heim eftir kaffi og spjall. Annars allt sæmilegt. Kveðja í kotið, þín sys affí