Eftir rigningu, hvassviðri, haglél og sól inn á milli í gær kom sólin fram í morgun eftir frostnótt. Spáin góð og kannski maður fari að geta gert eitthvað meira í garðinum. Það er ótrúlegt hversu oft hann hefur verið með leiðindaveður. Svona sjaldan höfum við aldrei verið úti með gæslukrakkana eins og á þessu skólaári. Núna eru þau reyndar inni til að klára páskaföndrið. Dúska, sem breytast í kjúklinga :) Ekki amalegt. Strákarnir mótmæltu hástöfum. Þetta væri leinlegt, en reyslan varð sú að þeim finnst þetta gaman og það er mikil keppni að verða fyrstur búinn.
Það eru bara eftir 2 vikur eftir í páskafríið há okkur. Sem stendur í 2 og 1/2 viku. Lúxus líf.
Í gær á kvennadeginum-og á afmæli Einars Janusar- fór ég til Gifhorn með 9 konum frá Meinersen. Ég fór með nokkrum þeirra í fyrra. Það var ekki eins mikið fjör og þá, og ég hitti enga, sem ég þekkti fyrir utan hópinn okkar. En samt ágætt og fínasta grænmetislasagne. Dansaði smá, en var ekki hrifin af tónlistinni. Og eins og alltaf-allt of hátt.
Fékk hrós fyirr nýju hárgreiðsluna. Og litinn, hehe. Fór jú til BS á þriðjudaginn og fékk mér syndsamlega dýra klippingu með litun og strípum. Og ekki nóg með það. Líka litun á augnhár og augnabrúnir. Er svo nýbúin að kaupa mér gollu og topp, sem ég fór í í gær. Og síðast en ekki síst kemst ég í teygjubuxur, kvartbuxur, með klauf, sem ég keypti fyrir mörgum árum á Torginu. Gott þegar eitthvað af kílóunum hverfur. :) Það eru 5 mánuðir frá því ég fór í klippingu síðast og kannski ég ætti bara ekkert að vera með samviskubit.
Hef verið að hjálpa Frau Kühle að rutta til í kjallaranum. Vildi svo óska að Affí systir hefði séð vefina og skítnn!!! Hún hefði fengið kast og flúið :) Það er hræðilegt hvað alltaf koma vefir, og Íslendingar halda að hér sé aldrei þrifið. En hún vinkona mín er svo sem ekki oft að standa í því, hehe. Þvottahúsið orðið tómt, þrifnar hillur og næst er búrið á dagskrá. Svo stakk mín bara af til mömmu sinnar og ég er aftur á kattavaktinni.
Mig langar að gera skurk í eldhúsinu mínu og mála það. Fá mér lokaðan skáp á veginn yfir borðinu. Leið á þessum opnu hillum, sem safna bara ryki. Búin að hóta Klaus að við förum í það um helgina að skipuleggja lit og skápa--hehe. Nóg að gera og vantar bara framtakið. Keypti svo gardínustangir til að setja í baðgluggana. Harmonikkugardínurnar eru orðnar myglaðar eftir allt vatnið, sem safnast á gluggana þegar Klaus er í sturtu, 90 gráða heitri í korter :) . Og hann er ekkert að þurka af glerinu straks--eða alls ekki .
Þetta er slá, sem er fest á klemmu, sem er stungið utan um trérammann. En nú vantar mig efni til að sauma gluggatjöldin. Svo það styttist í aðra ferð til BS.
Af Margréti er hið besta að frétta. Hún fer í dag i helgarferð með kórnum og hlakkar mikið til. Þau þurfa með biblínuna með sér og ég er spennt að heyra hvað hún þurfti að lesa mikið í henni-hehe. Hún er ekki búin að ákveða hvað verði um páskana. En Birthe vinkona hennar úr barnaskólanum kemur 31.maí og verður til 13. júní. Margrét er ekki í fríi svo lengi, en þær geta gert helling saman. Og mest spjallað ef ég þekki þær rétt. Birthe er fín stelpa.
Loks skæpaði ég við Sigurð Ágúst og Svanhildi og sá dúllufrændurnar mína. Sé Didda bara oft, og gat loks séð Arnhildi fyrir nokkru. En hennar tölva er ekki í góðu lagi, en fer vonandi fljótt í viðgerð. Svo hefur Þórdís kannski tíma einhvern daginn til að segja ferðasöguna.
Jæja. Mín biður stafli af skyrtum, sem strauja þarf. Mig langar sko ekki til þess að strauja þær fyrir fimmaura. En heimavinnandi húsmóðir á ekki annars kost en að gera heimilisstörfin. Svo það er best að hætta þessu dútli á tölvunni og fara að standa sig. Hvers slags húsmóðir er ég! Hér er aftur ryk um allt og ósamanbrotinn þvottur. Veit að svona er það ekki hjá ykkur.
Góða helgi og hafið það sem best.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ja ég held þú fengir nett áfall yfir rykinu hér hehe. Stefni á að halda matarboð annaðkvöld svo ég verð að vera dugleg :) Góða helgi og ekki vera með samviskubit - það er svooo leiðinlegt. Kv. Malla
Já það var frábært að sjá þig á Skype, nú förum við að verða duglegri að kveikja á skype-inu.
Algjörlega bannað að vera með eitthvað samviskubit yfir ferðinni á hárgreiðslustofuna eða nokkru öðru sem þú gerir fyrir þig sjálfa og þér líður vel af! Klippingin, liturinn og litunin og plokkunin kemur mjög vel út og þú lítur mjög vel út.
Hér er heilmikill vetur en eitthvað farið að gægjast upp úr bottum innan dyra þó. Allir glaðir að vera komnir í helgarfrí!
Bestu kveðjur og góða helgi, Svanhildur
P.S. Var að lesa frétt af peningaumslögum sem hafa verið að finnast hér og þar í Braunschweig...spurning um að horfa vel eftir þeim þegar þú ferð næst!!
sammála Möllu og Svanhildi :)
love you <3 Margrét
Tilraun þrjátíu ! Er ekki hægt að henda út þessum fáránlegu orðum sem þarf að endurskrifa til að sanna að maður sé ekki robot ? Þetta er svo illa skrifað að ekki nokkur leið að sjá hvað stendur þarna. - En sem sé, enn og aftur, hér er allt ágætt að frétta, var að kommentera hjá MArgéti sem hefur heldur betur skemmt sér vel um helgina. Dásamlegt að heyra. Pabbi hressari, en samt enn mjög slappur. Nóg að gera hjá öllum, hafðu það gott, kveðja til klaus, þín sys affí
Post a Comment