Monday, March 19, 2012

Glampandi sól og töluverður vindur.

Hvað var ég að kvarta yfir sólarleysinu? Hún mætti í morgun og skein í næstum allan dag. Það var reyndar frekar gluggaveður en sólbaðsveður. Vindurinn var kaldur. En ég sat með kaffibollann í Strandkorb og naut tilverunnar. Það var nú líka bara töluverð ástæða til að vera ánægð með lífið. Í fyrsta lagi vorum við Frau Kühle rosa duglegar í kjallaranum í morgun. Auðvitað var byrjað á morgunmat. Brötchen og kaffi. Og svo farið í innri geymsluna. Vildi svo óska að Affí hefði verið með! Hún hefði fengið áfall í ruslinu og skítnum. Vefirnir enn verri en í hinni geymslunni.
Fórum með helling út fyrir bílskúrinn og nú fer að borga sig að koma þessu á haugana.

Eftir törnina dreif ég mig í sturtu. Gat blásið og sléttað og var samt mætt á réttum tíma. Svo heim og spjallaði við Margréti. Hún var mjög hress . Það hafði gengið vel að syngja. Veðrið er enn fínt. Hún er núna með Theu á kóræfingu með litlu krökkunum. Bara að gamni. Þekkir eina litla stelpu, sem er með. Joni og Jan eru í Þýskalandi í 3 daga. Svo það er konu-búskapur á bænum. Veðrið enn fínt. Og allt í blóma. Svo var Arndís frænka að spyrja hana hvort hún hefði áhuga á að vera Au pair næsta vetur í Reykjavík. Það er samt allt óráðið hvernig fer með vinnu hjá henni og svoleiðis. Hún fékk að vita að Margrét væri mjög spennt og nú leggjumst við bara öll á bæn að þetta gæti orðið. Væri frábær lausn á herbergi, fæði og vinnu. Bíð spennt eftir að eitthvað komi betur í ljós með þetta. Sem sé ekki neitt ákveðið, síður en svo.

Og ekki var svo fréttin á Facebook verri! Þorgerður er hætt við að fara með kórnum til Ítalíu og ætlar að vera í Þýskalandi frá 19.6. til 4.7. Þau Gilli koma með Dag og Helgu Margréti. Veit ekki hversu lengi ég fæ að hafa þau. Vonandi sem flesta daga. Hér er sko alveg nóg að skoða. Barnaskemmtigarður rétt hjá. ( Ersepark ) Æðisleg öldusundlaug í Wolfsburg. Bílaverksmiðjurnar æðislegar. Hægt að aka þar í gegn. Það gerði liðið í Heljarslóðarorustunni forðum--hehe. Braunschweig og Hannover, Celle og gömlu landamærin, Harzfjöllin með Werningerode og höllinni flottu----og ---og --.
Mér líst vel á þetta. Hef reyndar miklar áhyggjur af öllum þvottinum, sem fylgir þeim. Og hávaðanum í Gilla. En við hljótum að komast í gegn um þetta---hahaha. Æ, bara æðislegt.

Svo er að spá í hvort þær KD og Arnhildur geti ekki komið í sumar. Sennilega verður KD að vinna. Hún er nú alveg til í að sleppa því en ætli faðir hennar taka það nú í mál. Og þetta eru nú bara 5-6 vikur eða um það bil., sem krakkarnir fá. Spurning hvort þær myndu fljúga til Oslo, og fara með okkur til baka. Eða hingað og með okkur þangað--allt í áætlun og best að spá í málin í rólegheitum.
Og pabbi gæti komið í haust.

Það var leiðinda vindur á sunnudaginn. Við ætluðum á hjóli út í buskann, en slepptum því. Vorum frekar löt. En ég tók svefnherbergið í gegn. Hreint á rúmin. Og pússaði baðið vel. Svo er ég að fara í gegn um gömul kvennablöð. Sum eru frá 2004--hehe og tími til kominn að þau fari í tunnuna.

1.bekkingar búnir að gera ungana og þeir komnir í ostadollu, skreytta með flottu bandi, með gervigrasi og eggjabroti með. Verð nú fegin þegar þessi gífurlega föndurtörn er búin :)

Veðrið var æðislegt á fö. Þá þurfti ég til Leiferde að aðstoða við sölu á salati og pylsum. Foreldrafélagið þurfti að fá aðstoð. Gaman að hitta liðið aftur og gat spjallað við ýmsa. Vann einn tíma sem kennari í skólanum í 4.bekk. Á enn eftir að vinna af mér tíma frá síðasta vori.

Klaus ætlar ekki að vera með neitt "nestisstand" á okkur í fríinu. Við bara förum á kaffihús og teríur og borðum úti. Þetta verður algjört lúxuslíf. Ekki nein tiltekt, lítið að pakka, og engin eldamennska. Og spáin er þrusu góð. Svo við bara vonum að allt gengi vel og verði í hinu besta lagi. Hægt að fá netsamband enda get ég ekki lifað svona lengi án sambands við dætur og ættingja--hehe.

Klukkan meira en 7, og best að fá sér brauðsneið. Teið tilbúið. Klaus lauk við afganginn af núðlubakstrinum. Fékk mér þannig í hádeginu. Kannski það sé mynd, sem horfandi sé á í sjónvarpinu. Í gær var krimmi frá Malmö og Köbenhavn. Heitir hér Brúin--kannist þið við hana??????
Hjartans kveðjur frá Meinersen-- hótelið hefur opið alla daga ársins og þið eruð velkomin <2

5 comments:

Anonymous said...

Þetta hljómar allt vel systir. Gott að karlinn ætlar að gera lúxusfrí úr þessu. Og gott að þú missir ekki af ættingjunum. Bið að heilsa.
Diddi

Anonymous said...

Góða ferð í lúxusfríið :o) njótið lífsins og slakið á.
Gaman að Þorgerður og co ætli að skella sér til Þýskalands, vonandi kemst ég einhverntíman með mína fjölskyldu.... þarf fyrst að vinna lottópott hehehehe
Spennandi kannski-fréttir með Margréti, það væri æðislegt að hafa hana á höfuðborgarsvæðinu næsta vetur, þá gætu þær Margrétarnar tvær aldeilis hist og kynnst upp á nýtt :D
kv
Kristín E:

Anonymous said...

Miklu skemmtilegra að lesa bloggið þitt þegar við skæpum ekki á hverjum degi :) Gaman að frétta af þessum sumarplönum sem ég veit ekkert af enþá :D
Heyrumst nú í kvöld. Margrét <3

Anonymous said...

Hæ gamla mín.Ég er í letistuði,Einar í badm.t.og Ingibjörg og Þorlákur að horfa á sjónv.Grautur í Norró á eftir.Siggi og Kristín koma frá Húsavík seinni partinn.Það er verið að jarðsyngja Ömmu Öddu og þess vegna eru þau á norðurlandi.Nafna mín er hjá Þorgerði.Það mallar þvottur í vélinni sem verður hengdur út í blíðuna.Annars ekkert sem þarf að gera.Þorgerður kemur um næstu helgi í fermingu Helgu Sigríðar svo koma Kristín og co.aftur þann 4.ap.og vonandi Malla líka.það fá örugglega einhv.gistingu í Norro og svo fara Össi og Malla öruggl.eithvað í sveitina en verða þá í Garði,það er byrjað að rutta til í Álftag.en Gígja og Addi eru í kjallaranum í Ödduhúsi (Freddahúsi)Eg fæ örugglega að heyra um ferðalag Þorgerðar þegar hún kemur norður.Við Einar förum út 1.juní og komum aftur þann 8. Heyrumst Magga móða.

Anonymous said...

Hlakka til að frétta af ferðalaginu. 'Eg horfi á Bruen í danska sjónvarpinu en er búin að missa af talsvert mörgum þáttum svo ég veit ekki alveg hvað er að gerast hehe. Frábærir þættir. Er með bullandi hæsi, missti alveg röddina svo það eru margir glaðir þessa síðustu og verstu.. hehe. Annars allt sæmilegt, styttist í páska og bara vonandi sumarið, er alveg búin að fá upp í kok af þessum klaka, svell-rokraskatsvetri. Bið þá frekar um almennilegan vetur með alvöru snjó og frosti. Góða skemmtun í ferðinni, kv affí