Mánudagskvöld og þrír dagar frá því við komum heim úr ferðinni fínu. Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða. Og þessir 5 dagar, sem við vorum í Mecklenburg voru æðislegir og flognir áður en við vissum af.
Við vorum heppin með hótelið. Það er gamalt hús frá 1880/ eða um það bil. Var í einkaeign, en svo lögðu Rússarnir það undir sig, og loks Stasi. Við hliðina á húsinu er svo lögreglustöðin, sem er í illa förnu húsi. Gamli og nýji tíminn en samt margt sameiginlegt. Fyrir nokkrum árum var húsið gert upp, og byggt við það. Í viðbyggingunni eru matsalur, lyfta og stiginn. Það eru bara 2 ár frá þvi opnað var. Allt voða stílhreint og smekklegt. Litirnir hvítur, grár, svartur og rauður sem aðal litirnir og má geta nærri að mér líkaði það vel. Það var svolítið skondið að ekki var venjuleg hurð yrir baðinu. Heldur rennihurð með mjólkurlituðu gleri. Ekki eins góð dempun á hljóðum, hmhm. :) . Herbergið rúmgott, og sjónvarp á veggnum, sem við notuðum okkur þegar við komum heim seint á kvöldin.
Við vorum eina 3 og 1/2 tíma að aka héðan. Vorum ein fyrstu nóttina og tekið var á móti okkur af hressilegum ungum manni, sem kom beint úr garðinum, og baðst margfalt afsökunar. En skiljanlegt að þau noti tímann til að undirbúa páskatörnina. Við vorum svo ein í sæta matsalnum og fengum nægan mat handa fjölda fólks :) Hina morgnana voru einn og einn, og alltaf voða rólegt.
Klaus var í essinu sínu í þessu fríi. Hann elskar að aka um. Stansa stutt í hverri borg nema veðrið sé það gott að hægt sé að sitja á bekk við vatn eða höfn. Og það gátum við gert fyrstu þrjá dagana. En á fim. var kominn mikill vindur og hann kólnaði tölvert. Á miðvikudaginn fór hitinn í 18 gráður. Það var náttúrlega himneskt. En það er jú ekki nema apríl, og svona hiti er ekki eðlilegur hérna. Við ókum um og skoðuðum nágrennið. Fórum svo til Mecklemburgische Schweiz, sem kallast svo af því að þar eru miklu meiri hæðir og hólar en annars staðar í Þýskalandi. Skemmtilegt svæði. Maður sér að mikið hefur lagast frá því opnað var austur. En það eru samt rosalega mörg ónýt hús, eða illa máluð og illa farin. Við skemmtum okkur yfir litavali þeirra í austrinu. það eru greinilegt að þeir voru glaðir að fá hressilega liti. Uppáhaldið virðist vera gulur. Svo bleikur og grænn. Allir litirnir í öllum hugsanlegum setteringum og ofta notaðir saman á einu og sömu byggingunni. Himberjableikt og gult--ææææ.
Við ókum til Schwerin, Rostock, Malchow, Neustrelitz og fleiri borga. Allar skemmtilegar og hver á sinn hátt. Í Rostock eru t.d. ofsalega margar blokkir. Úr þessum típísku einingum. Það eru heil hverfi með risa blokkum. En svo eru verulega falleg hús í miðbænum, og mikið lagt í málningu og viðhald. Hér og þar skemmtilegar búðir og hefðu þær dætur mínar verið með, hefði stoppið í borgunum verið lengra. En ég vildi nú ekki pína Klaus um of :) Hann fór hins vegar með mér í skóbúð og hjálpaði mér að velja mér reimaða skó, sem gott er að ganga á. Það voru einu kaupin.
Klaus ákvað að þetta væri alvöru frí. Ekkert með að kaupa sér köku og borða úti á bekk og drekka með djús. Ó nei. Við fórum sko 5 sinnum á kaffihús og 4 sinnum út að borða. Fullt af fólki á kaffihúsunum ef veðrið var gott. En sama sagan með kvöldmatinn og morgunmatinn. Við vorum nánast ein í matsölunum. En nú ætti fjöldinn að fara að flykkjast þangað og ég þakka fyrir að vera ekki á þessu vinsæla svæði á aðalferðamannatímanum. Við áttum bara staðina og það var æðislegt.
Á heimleiðinni stoppuðum við í Hitzacker, sem er í vestrinu. Það er mjög þekkt borg. Með dúlluleg lítlil hús. Stendur við ána Elbe, og þegar mikið er af vatnavöxtum fer svæðið þarna oft illlega undir vatn. Verulega notalegur bær og mig langar aftur þangað með dæturnar og Kristínu Dögg við tækifæri.
Hér heima var allt rólegt. Maja ein við hliðina. Sonia, Artur og hundurinn í Póllandi. Maður sér varla nokkra sálu. Greinilega margir farið burt í fríinu. Skrapp til Frau Kühle í gærmorgun. Hún gaf mér nokkra blómlauka, sem ég set niður þegar eitthvað hefur hlýnað meir.
Hér hefur verið hundleiðinlega hvasst. Skrapp svo út í dag eftir kaffið því þá kom loks logn og dundaði við að rífa upp illgresi. Eftir að ég var búin að strauja 7 skyrtur--hehe.
Jæja, nóg í bili. Hafið það gott og verið dugleg að kvitta svo ég sjái að einhver nenni að lesa þetta.
Saknaðarkveðjur frá Meinersen
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Greinilega skemmtilegt frí :o) Ég skil Klaus vel, finnst mjög gaman að keyra um og rölta um borgir og skoða hús, götur og mannlíf.
Hafið það gott, við fjölskyldan stefnum til Akureyrar eftir að Sigginn minn klárar próf í skólanum á morgun... ekki slæmt
kveðja
Kristín E.
Svona segir google translate að kommentið mitt hljómi á þýsku :o)
Deutlich angenehmer Urlaub: o) Ich verstehe auch Klaus, fühlt sich sehr schön zu fahren um und durch Städte bummeln und sehen Sie die Häuser, Straßen und Gemeinden.
Halten Sie die gute, beenden die Familienpolitik nach Akureyri zu Siggi meine Prüfungen in der Schule von morgen ... nicht schlecht
Gruß
hahahahaha------ frábært---
familienpolitik - hehehehe ég dey úr hlátri :) kv. Malla
Þetta hefur verið frábært hjá ykkur, eruð þið ekki farin að huga að næstu ferð saman! Þetta hljómar allt svo vel og hafa verið góðir dagar.
Vona að þið hafið það gott um páskana :)
Bestu kveðjur úr snjókomu á Snæfellsnesi, Svanhildur
P.S. Kristín! Ég vona að Siggi rúlli upp prófinu sem mér sýnist goggle vilja gera að þínu prófi...já og að familienpolitikin lúti öðrum lögmálum en þessi venjulega politik!!!!
Vonandi bara sú fyrsta af mörgum skemmtilegum ferðum ykkar Klaus. Væri alveg til í smáferðalag um þessar slóðir. Bk Diddi
svo gott að þið skilduð skella ykkur í frí saman !!!
Margrét
kvitti kvitt :D knús og kossar frá Arnhildi
Post a Comment