Tuesday, April 24, 2012

Aprílmánuður.

Þriðjudagur 24. apríl.
Nú er ég alveg hissa. Allt nýtt á bloggsíðunni og ég veit ekki hvort þetta virkar. En verð að prófa. Alltaf verið að gera eitthvað nýtt og rugla mann. En ef þetta yrði nú til þess að léttara verði að kvitta þá er ég sátt. Bæði Þórdís og Affí kvarta undan því hvað erfitt sé að kvitta hjá okkur Möggu í Norge.
Margrét er komin heim eftir velheppnaða ferð til Stavanger. Fullt af fínum myndum á Facebook, og þær Sara reynslunni ríkari. Lentu í herbergi, sem ekki var í góðu lagi. Ekki hægt að loka glugganum, vesen með niðurfallið í sturtunni. Og fengu annað og betra herbergi, en þá voru nágrannarnir vel hressir og spiluðu háværa tónlist fram undir morgun. Ég hélt að maður fengi n.k. rúm í næturlestunum, en þær þurftu að sofa í sætunum, sem ekki er sérlega þægilegt. Svo Margrét er þá búin að upplifa slíkt og bæta við reynsluna frá í ferjunni þegar hún svaf undir stiganum á gólfinu--hehe.
Mig langar líka til Stavanger. Eftir að sjá hvað við Klaus gerum í fríinu. Fer eftir því hvort A og KD komi, hvenær, hvort þær fljúgi til Oslo, eða bara til Berlinar. Sem sé fullt af spurningum og svo aðal spurningin hvenær KD geti komið ef hún ætlar að passa í sumar. Og hvað hún geti stansað lengi.
En það kemur allt í ljós.

Við Klaus vorum ekki dugleg að hreyfa okkur um helgina. Við þurfum að sparka rækilega í rassinn á hvort öðru og drífa okkur út. Fórum að versla meiri mulinn börk fyrir beðin, og Klaus druslaði 2 vatnskössum í bílinn og inn. Fegin að þurfa ekki að smá tína flöskurnar í og úr, hehe. Ergilegt að mega ekki halda á nema litlu. En ég hlýði nú læknunum :)
Var að klára að strauja rúmföt, sem ég fékk hjá Frau Kühle, og skyrturnar hans Klaus. Annars er ég löt að drífa í hlutunum, og geri frekar lítið af öllu því, sem ég ætla að framkvæma. Mála, setja nýtt veggfóður og fleira slíkt. En allavega búin að hreinsa límklessurnar á baðgluggunum. Og þrífa nokkra glugga, jibbí.

Erum byrjuð að láta krakkana gera mömmudagsgjöf. Keyptum púslhjörtu, sem þau teikna á. Voða spennandi. Svo keyptum við papparammma og ég er að taka myndir af liðinu, öllum 64, og þetta verður pabbadagsgjöfin. Uppstigningardagur er hér Vatertag.

Á sunnudaginn aðstoðaði ég í fermingarveislu hjá Falkenrodt. Það er fjölskyldan, sem Margrét passaði oft hjá. Susi, mamma Lennert, sem lærði Latínu hjá Magréti, var með mér. Við helltum í glös, bárum inn súpuna, hituðum vatn í dalla, sem maturinn var settur í,  settum í uppþvottavélina og svona sitt hvað. Lennert er ekki góður í latinunni, og líklega veitti honum ekki af að fá Margréti aftur :) . Já, hennar er sárt saknað!
Í gær var svo vinum boðið í fermingarkvöldmat og það var bara gaman. Spjallaði við eina, sem ég kynntist í fyrra í fermingu Lisu Falkenrodt. Þessi kona á stelpu, sem er í Chile sem skiftinemi. Svo fer Marie, dóttir einar, sem ég þekki úr gæslunni, til Irlands. Og ein á dóttur, sem var í Frakklandi. Svo það var mikið spjallað um dæturnar, sem fara í burtu :)

Það er frí á mánudaginn og svo þr., fyrsta maí. Framundan sem sé 4 daga helgi. Vð erum boðin til Gregors, sem verður 57 ára. Hm hm--og ég verð það líka á árinu. Já, maður eldist, --nei nei--þroskast!
Sennilega verður grillað eins og vanalega ef veðrið er gott. Spáin ágæt.
Er að reyna að fá uppúr Klaus hvað hann langi til að gera um helgina, en hann er ekki búinn  að hugsa það til enda. Gætum farið í lengri hjóltúr eða bíltúr. Nóg að skoða og ekki allt svo langt i burtu.

Fegin að Möllu gekk vel í USA, og fegin að Hildur fer að koma heim og það m.a.s. ósködduð eftir ferðalagið.  Líka glöð að Siggi og kellurnar hans eru komin heim hress og kát eftir Kínaferðalagið. Stolt af Aldísi Dagmar, sem erft hefur alls konar hæfileika frá -já, frá mörgum held ég megi segja.
Það hafi ýmsir hæfileika, en nota þá ekki sem skyldi. En það er aldrei of seint!!!!!!
Dimmt yfir í dag og hann búinn að rigna, en er að hlýna og birta.
Kaffibolli og engiferkex er akkurat það rétta í augnablikinu og ég sest nú bara út í nýjan stólinn og læt mig dreyma um sumarið með dætrunum og henni Kristínu minni.  Bestu kveðjur frá latri og kærulausri konu, sem er að njóta lífsins--haldið þið að þetta sé nokkurt vit    <3    .




3 comments:

Anonymous said...

Ekki finnst mér allt sem þú ert að gera eða ekki gera eitthvað merki um leti eða kæruleysi...er þetta ekki allt best í bland!!

Spennandi sumar fram undan hjá ykkur vonandi með sumarblíðu og stelpunum ykkar öllum.

Ég er hér rosa löt og kærulaus að lesa bloggið þitt með bækurnar starandi á mig...en fór í leikfimi í morgun þannig að þetta kemur kannski út á eitt!!

Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

kvitt kvitt frá mér
Margréti :)

Anonymous said...

Gaman að skoða myndirnar hjá Margréti, þetta hefur verið flott ferð. 'Eg er enn með kvef, þarf að sprauta einhverju drasli í nefið á hverju kvöldi, vona að það virki. Átti svo að heyra frá lækninum hvort eitthvað hefði komið ut úr myndatökunni af kynnholunum, fór sem sé í rönken í síðustu viku, en gleymdi að hringja íhann í dag. Heyri í honum eftir helgi. Elli fullur af kvefi líka svo við erum meiri hóstaræflarnir. En vorið að koma svo það hlýtur bara allt að lagast :) Að öðru leyti eru hlutirnir bara nokkuð góðir, nema ég fer allt of sjalfan í Litluhlíð, en nú styttist í að skólinn klárist, ( ca fram að 17 mai síðasta vinnutörnin hjá mér). Kveðja til Klaus, þín sys affí