Kominn mánudagur og fríið að styttast. Klaus fer í vinnuna á morgun. Ég á fimmtudaginn. Við þurfum bæði snemma á fætur á morgun því ég fékk tíma hjá kvennsjúkdómalækninum mínum 9.20 í fyrramálið. Hefði ekki valað svona tíma nema af því að Frau Kühle ætlaði að koma með mér, en hætti svo við og ég fer ein. Eldri sonurinn vildi endilega fara í gamla þorpið, og upplifa páska eins og alltaf--. Ekki veit ég hvað hann er að hugsa. Þau hafa ekkert hús lengur og Frau Kühle þurfti að borga hótel undir hann og soninn hans. Held að það sé ekki vafi á hvaða kona það var, sem Maddý sá forðum í bollanum. Þessi, sem sokinn var í svo djúpan skít að hún komst ekki uppúr. Æ, ég er bara smá pirruð út í hana. Milli þess, sem ég vorkenni henni.
Svo ætla ég til Hannover með lestinni. Kíkja í búðir og hitta svo Ramonu klukkan 18.00.
Við vorum í kaffi hjá Susanne á laugardaginn. Stelpurnar báðar þar og svo kom maður í heimsókn, sem við áttum ekki von á. Daniela er komin með kærasta. Það er fyrsti kærastinn hennar og hún er í sæluvímu. Hann er tyrki og vinnur eitthvað við tölvur. Virðist vera voða indæll og allavega spjallaði hann mikið og var hress. Þau skötuhjúin leiddust um og voru greinilega mjög ástfangin. Það er nú aldeilis gott.
Ramona er að spá í að skifta um vinnustað. En á eftir að semja um kaup. Hún er ein eins og er.
Veðrið var mun skárra um helgina en spáð hafði verið. Við fengum sól báða dagana. Það er hins vegar kalt og búið að vera næturfrost. Við hjónakornin tókum törn í garðinum fyrir páska. Klaus mokaði og sigtaði úr lífræna safnkassanum. Við dreifðum því á beð og settum svo 3 poka af muldum trjáberki á beðin. Dugar ekki til. Er búin að taka nokkrar skorpur í illgresisplokkun. Allt lítur þvi bara vel út.
Og svo er komin ný klósettseta, sem er nú eins gott áður en Þorgerður kemur. Maddý vildi nú vita hvort ég væri ekki örugglega með tannkremstúbburnar með endana til skiftis upp og niður. Og auðvitað er það svo, og komin ljósgræn servétta undir svo Kristin Einars geti nú heimsótt mig líka :)
Í gær komu Kristin Draheim og Peter í pönnukökukaffi. Hef ekki hitt hann fyrr. Hann vinnur við Solarenergie-sólarorku. Og það gengur ekki of vel í þeim bransa. Þratt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um að hætta við kjarnorku. Kristín vinnur við háskóla, en samningurinn rennur út í lok apríl. Og hún er að hugsa sín mál. Vinnur lika tölvert mikið sjálfstætt, en það er ekki sérlega vel borgað.
Allavega eru þau búin að panta flug til Íslands í júlílok. En verði eitthvað vesen hjá Peter í vinnunni getur verið að hann komist ekki-og hvort Kristin komi þá ein----það er sem sé á huldu. En vonandi reddast þetta allt. Og þá eru þau á Íslandi frá og með 21.7.
Peter er frá Mecklenburg. Akkurat frá þessu svæði, sem við vorum á. Hann er mikill siglingamaður eins og margir, sem búa við vötn. Og hann er rosa hress.
Í dag ætlar sólin ekki að koma fram. Var að strauja og ganga frá þvotti. Klaus situr við tölvuna. Er forfallinn í einhverjum leik, sem gengur sjaldan upp. Mig vantar Maddý til að sýna mér hvernig ég eigi að sauma brauðkörfu--. En kannski við reddum þvi bara á skæpinu! Lýsingarnar eru svo flóknar. Best að byrja bara. :)
Fékk lánaðar nokkrar bækur hjá Susanne og ætla að setjast á sófann og detta í lestur.
Hafið það öll sem best.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
langar í pönnukökukaffi !!!
Knús Margrét :D
Hafðu það gott elsku frænka, hitti Arnhildi smá um páskana og næ vonandi að hitta hana um helgina líka.
kveðja
Kristín E.
Vona þessi stutta vinnuvika hafi liðið hratt, hér eru allir að koma sér á ról eftir páskafrí! Fengum hér Litluhlíðarhjón og VÖ í mat í gær, hefði verið frábært að sjá Arnhildi líka-það verður bara næst.
Góða helgi, vona að sólin láti nú sjá sig hjá ykkur. Bestu kveðjur, Svanhildur
Post a Comment