Friday, April 27, 2012

April að enda.

Í dag er afmæli Svanhildar mágkonu. Innilegar hamingjuóskir til hennar og allra kallanna hennar  <3  .
Og Ulli sonur Frau Kühle á afmæli í dag. 40 ára. Og á morgun verður Gregor 57 ára, og Alexander ný orðrinn 16. Ef maður tekur ekki eftir hvað maður eldist þá fattar maður það með því að horfa á aðra--haha. Þeir eldast og eldast, en maður sjálfur--nei nei.  :)
Hér var yndislegt veður í dag. Veit ekki hvort hann fór í 18 stig eða hvað. Sól og hlý gola. Þarf ekki að verða neitt heitara fyrir mig. Kaffið smakkaðist  vel á stéttinni í hlýjunni.
Ég er jú ekki alveg eins og fólk er flest--hehe. Eyddi nokkuð löngum tíma í það í gær að klippa og saga rætur af sígrænni plöntu, sem óx hægra megin við eldhúsgluggann og fór illa með  vegginn. Ræturnar voru ekki neitt smáræði að stærð. En ég bar sigur af hólmi!
Þarna var slatti af smásteinum, sem mig vantar eiginlega  utan um "tjörnina" góðu. En ekki með illgresi og mold. Svo ég fór út með koll og sat með eldhússigti og sigtaði steinana!!!!! Yes-- ekki alveg normal  haha.
Moldin var náttúrlega æðislega mjúk og fín, og svo eru steinarnir sprautaðir og fara svo á sinn nýja stað. Sonia kom til min og aðstoðaði mig. Spjallaði mikið að venju.Við plöntuðum Clematis, klifurblómi í staðinn fyrir Efeuið, og Sonia raðaði hraunsteinunum mínum  í kring  :) 


Mér tókst svo að misstíga mig á plastskónum mínum, sem ég nota til að fara í út í garð. Þetta eru töfflur, með þykkum botni og ég er völt á þeim. Datt kirfilega  á hnén og er rauð og flott. Og Sonia henti skónum fyrir mig svo þetta kæmi ekki aftur fyrir. Ég er sko frábær.

Frau Kühle spurði hvort ég vildi ekki koma í afmælið. Hellti upp á kaffi og kveikti á 40 kertum áður en hún kom með Ulli og Niklas, son hans, frá lestarstöðinni. Var hjá þeim í góðu yfirlæti í 2 tíma. Klaus kom ekki heim fyrr en klukkan 5 því hann þurfti að klára svo magt áður en hann fór í 4 daga fríið.
Hann er búin að vera duglegur að horfa á sjónvarpið og slappa vel af, blessaður.

Við fórum verulega snemma á fætur í morgun. Kallarnir komu 7.20 til að athuga hvað væri að sjónvarpinu uppi. Eitthvað að, sem ég ekki skil, -tengill, eða svoleiðis. Verður pantað fyrir okkur og Klaus minn getur svo sjálfur sett það í samband. Ekki bara Elli minn, sem getur allt!!!!
Og í gær var ég næstum tekin í rúminu af myndarlegum ungum manni--haha--, sem kom að mæla sturtuveggina. Fæ mér glervegg og hurð og opnanlega hurð í einu stykki! Hann á eftir að senda okkur tilboð. Mikið hlakka ég til að losna við þetta gamla óhreina og ógeðslega drasl.

Á morgun er afmælishóf hja Gregor. Líklega grillað ef veðrið er til friðs. Átti nú að vera rigning í dag en ekki bólaði á henni. Hver veit hvað verður á morgun. Spáð rigningu og etv. þrumum í nótt.

Var á söngæfingu á fim.kvöldið. Og Leila kom í enskutíma til mín.

Jæja. Tilveran sem sé þokkaleg og  allt í rólegheitum og við bara hress.
Vona að einhver nenni að lesa þetta og kvitta. Ekki nema 2 kvitt hjá okkur mæðgum við síðustu skrifin. Og kannski bara allir búnir að gleyma okkur-- getur ekki verið að fólk sé upptekið eða þannig  :)  
Góða helgi og vonandi sól og blíða alls staðar.
Saknaðarkveðjur frá Vorfeldweg 39 ---               Lots of love    <3       

5 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir afmæliskveðjuna! Hér áttum við rólegan dag, þeir feðgar dekruðu við mig - alltaf gaman að eiga afmæli.

Hafið það gott! Bestu kveðjur frá öllum hér, Svanhildur

Anonymous said...

Ekki gott að detta á hnén, ég hrasaði á hjólinu í malarinnkeyrslu og rispaði á mér öklan og sleppti hlaupum í gær þess vegna. En við KE skelltum okkur á Helgafellið í dag og það var voða gott og hressandi. Kv. Malla

Anonymous said...

voru þetta skórnir með svarta botninum og hvítu böndunum yfir? ég hef allavega dottið í nokkur skipti á þeim :)
lots og love til þín líka
Margrét

Anonymous said...

kvitti kvitt :o) er búin að vera svo upptekin undanfarið og mikið úti í sólinni, já og í fjallgöngur í rigningu með Möllu á Helgafell, að ég hef ekkert farið í tölvu.
kveðja
Kristín E.

Anonymous said...

ég missteig mig um þarsíðustu helgi og er bara rétt að jafna mig núna sneri mig bara ansi illa kv þórdís