Þá er komið að þessum langþráða degi heima. Vonandi verður sumarið betra en síðasta sumar. Þetta var nú meira veðrið, sem við Margrét upplifðum í maí og júní. Meira að segja snjór í júní.
Hér er aprílveður. " April April, der macht was er will" . Stundum hlýtt og stundum kalt. En lítið af regni, sem ekki er gott fyrir akrana. En einhvern veginn vill rigningin oft koma á vitlausum tíma.
Það er oft frost á nóttunni. Ég tók áhættuna og setti 3 Geraníur út í pott, og þær eru eitthvað slappar eftir frostið. En vonadi ná þær sér. Maður er kominn með svo mikla blómaþrá. Já, og veit að þið eruð komin með enn meiri þrá eftir sól og sumri.
Við Klaus erum búin að kaupa 4 nýja garðstóla. Í þetta skiftið úr járni. Svo þeir brotni ekki niður og ekki þurfi að bera á þá hvert vor :) . Og eins gott að vera komin með almennilegar græjur áður en Viktoría frænka kemur í júní. Henni á eftir að blöskra ástandið á hlutunum hérna hjá frænku sinni, sem í den tid var svo þrifin. En--allavega er komin græn servétta í tannkremstúbbu-skúffuna.
Við erum sem sé í vorhugleiðingum. Búin að setja niður fjörær blóm. Er að prófa nýjar tegundir. Klaus klippti runna og við settum helling af greinum út á stétt áður en ruslakarlarnir komu í árlegu greinasöfnunina. Af og til er hægt að sitja úti á veröndinni. Og þá gert svikalaust.
Nýlega góður þurkur og ég með fullar snúrur--þá brotnaði rörið neðst á þvottagrindinni og allt lág á hliðinni í grasinu--hehe. En hann Klaus minn sagaði stykkið af og núna er grindin "lág og pen"--en nothæf.
Var að koma frá honum Möller okkar Margrétar og Frau Kühle. Árleg krabbameinsskoðun. Og hann segir að ég verði að láta skera mig aftur upp vegna sigsins. Blaðran er ansi neðarlega og ég get ekki haldið vatni ef ég þarf skyndilega. Og þetta batnar ekki. Heldur versnar. Einhvern tíman á næsta ári ætti ég að fara í uppskurð. Já, það er ekki verið að hlífa manni. Bað hann að skrifa upp hvað þetta heitir á latínu--svo hjúkrunarkonurnar i fjölskyldunni geti komist að því hvað þetta sig kallist á íslansku.
"Descensus vaginae anteior " Svo mörg voru þau orð. Klaus segir að ég eigi ekki að vera stressuð út af þessu heldur segja að ég hafi einu sinni komist í gegn um þetta og það muni takast aftur. Gott ráð.
Var hjá Heilpraktiker á þriðjudaginn. Hún telur að vesenið í maganum í mér sé út af "Klappen" -lokum, sem loka fyrir smáþarmana og þessar lokur séu meira og minna opnar hjá mér. Þær eiga að veita grautnum leið í þarmana af og til, í smá skömmtun. En séu þær opnar fari oft mikið af vökvunum í þarmana og þegar hann taki vökvann til sín í of miklu magni, fái maður oft niðurgang. --Ef ég skildi þetta rétt :) Mjög spennandi umræðuefni, en þar sem hellingur af ættingjunum er með vanda út af meltingu ætti kannski að spyrja lækni hvort aðrir séu með svona loku-vandamál. Við þessu lítið að gera nema passa að drekka nóg--og ég meira verulega mikið.
Svo fer ég í lok maí í skoðun út af skjaldkirtlinum og hver veit nema hann segi að nú sé kominn tími á uppskurinn, sem hann segir að ég losni ekki við. Haha--maður er sko algjört læknakonfekt. Hér og þar og alls staðar vesen og nóg að krukka í.
Hef svo líka gert skemmtilega hluti. T.d. fór Frau Kühle með mér í dag til Möller og við drukkum auðvitað kaffi og fengum okkur köku á eftir :)
Svo var ég nýlega í Hannover með Susanne mágkonu. Hittum Ramonu eftir að hún var búin að vinna. Fengum okkur snarl á veitingastað og sátum í teppum úti í blíðunni. En ekki hlýju. Bauð Susanne líka á franska kaffihúsið, sem er svo sætar kökur. Og hún sýndi mér Bahlsankexverksmiðjuna, sem er við endanum á þessari nýju uppáhaldsgötu minni, Lister Meile. Þar fæst kex og nammi á lágu verði.
Keypti tvo efnisbúta. Meterinn á 12 evrur, sem er flott verð.
Við tókum lestina og Susanne ók til Dedenhausen á stöðina þar. Þangag fer ég auðvitað með Viktoríu frænku og liðið svo ekki sé vesen með bílastæði og slíkt inni í Hannover. Og þá geta þau fengið sér bjór :)
Fór svo í góða innkaupaferð til Bs. Já, alveg að tapa mér í þessu. Keypti 5 skyrtur, á tilboði, á Klaus minn, sokka, nærbuxur og peysu. Á mig lika nærbuxur, sokka og peysu. Og ekki nóg með það heldur felkk ég mér Softshelljakka. Reyndar líka á tilboði, 50 evrur. Sem er ekki mikið miðað við 180 evrur hjá Karstadt.
Í gær kom Anita, úr kórnum, í heimsókn. Naya og Luka komu með. Luka er í gæslunni. Þau léku sér í playmó og við drukkum te. Svo var farið út og þar hittummvið nágranna og spjölluðum. Loks er fólk að skríða út úr húsunum eftir veturinn.
Er að fara á söngæfingu. Komst ekki síðast út af magaverk. Og var svo í burtu. Svo það er líklega nóg að læra núna.
Margrét fer á morgun til Stavanger með Söru vinkonu. Þær taka næturlestina og gista svo eina nótt. Þetta verður löng og spennandi ferð. Alltaf nóg að gera hjá henni og maí verður æðislegur. Konsertar og fermingar, og Birthe kemur í lok maí. Já, timinn flýgur.
Þá hef ég ekki meiri tíma til að pikka því eitthvað verð ég að borða áður en ég fer á æfinguna.
Þorgerður--"meikar" þetta með magann og lokurnar sens??? Og reyndu að finna út fyrir mig hvaða sig ég sé með--takk kærlega :)
Hafið það gott- ykkar gallaða Áslaug :) :) :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Þetta hljómar spennandi. Ekki svo að þetta sé neitt skemmtiefni en samt eru sem betur fer orðnir svo flottir hlutir í gangi í læknisfræðinni að aðgerðir eru mun minna mál en var. Tek undir með Klaus að þú ættir alveg að geta andað rólega og farið svo flott í gegnum þetta þegar þú ert búin. Veit ekki hvort það er eitthvað raunhæft en hefur þú spáð í hvort hægt er að gera þetta hér heima og þú því dúllað þér hér á landi um stund í stað þess að vera þarna úti í Þjóðverjalandi? Tengdapabbi fékk kransæðakast í gær og á að fara í þræðingu á morgun. Ekkert gert í dag af því það er frídagur. Eins gott að velja dagana til að veikjast á. Annars allt gott að frétta, ég í skólanum og er svo á heimleið til að elda eitthvað fyrir mannskapinn.
Bk kveðjur í bili.
Diddi
sæl Áslaug mín og gleðilegt sumar.
Þú ert svo lagin að skrifa skemmtilega ....jafnvel um magavandamál o.fl. :) Hér er kalt og ekki sérlega sumarlegt en við vorum viku á Spáni og fengum sól í kroppinn. Pabbi gamli lærbrotnaði í janúar og ég hélt að hann myndi ekki komast á ról aftur en hann er farinn að ganga með einn staf og er bara býsna brattur.
Bestu kveðjur Inga frænka
Gott að sumarið er að nálgast, allir orðnir leiðir á vetrinum held ég bara. Hér snjóar þó enn af og til hehe. Annars allt þokkalegt að frétta , mikið að gera hjá öllum. Er á leið í myndatöku út af endalausu kvefi, komin á e.k. spreymeðala kúr út af kinnholubólgunni. Vona að þetta fari nú að lagast. Heyrumst fljótlega kæra sys, kv affí
HæHæ
Fórum í bústað í Brekkuskógi á fimmtudag, nálægt Laugarvatni, og komum heim í kvöld. Yndislegt veður allan tímann, ekki heitt en glampandi sól og því heitt í skjóli og sól :o) Nenni engan vegin aftur í vinnuna á morgun hehehe
Heyrumst
kv
Kristín E.
Ég þekki þetta ekki með þessar lokur! En væri sjálfsagt gáfulegt fyrir fleiri ættmenni að kanna þetta meltingarstand, það hafa kannski verið lokurnar mínar sem voru að trufla mig í nótt!!! Vorum á Djúpavogi um helgina, verið að jarða ömmu hans Gilla sem var fædd 1917 eins og allar ömmurnar okkar fjórar, merkilegt. Svo hún er sú síðasta til að kveðja. 7 klst akstur hvora leið svo nú er maður hálf dasaður í dag. Helga Margrét í skíðaferð með skólanum, Dagur að fara að keppa í dansi í fyrsta sinn um næstu helgi og aðalmálið - slétt vika í að hún Hildur okkar skili sér heim aftur :)
Post a Comment