Gleðilegan maí allir nær og fjær. Hér er komið alvöru sumar og ekki hefur bólað á rigningunni og þrumunum, sem spáð hefur verið að koma eigi. En nú á hann víst að kólna á morgun. Sjáum til hvað úr því verður. Það er náttúrlega ekki alveg eðlilegt að það komi tæp 30 stig í lok apríl. Okkur var vel heitt í Fallersleben.
Borðuðum hádegismat inni og fórum svo út og sátum fyrst í sólinni, en svo var sólhlíf sett up.
Báðar dæturnar voru þarna og Alper, kærasti Danielu líka. Hann er rosa hress og gott að að fá hann í hópinn. Líflegri umræður og léttara yfir öllu. Setti myndir á Facebook, sem þið eruð vonandi búin að skoða. Þarf að læra að senda Svanhildi slóðina--.
Við Klaus unnum svo í garðinum á sunnudaginn og mánudaginn. Í gær fékk Klaus svo loks fri :) hjá konunni.
Hann kom einhverju í verk--haha. Fyrir 7 árum grófum við skurð meðfram húsinu og ofan í honum er rafmagnsleiðsla, sem kom upp við endann á húsinu, móti skúrnum. Búið að vera vafinn inn í plast, og beðið þar eftir næsta skrefi. Nú gróf Klaus minn loks skurð frá húsinu að skúrnum, og leiðslan er komin inn í skúr. Bíður nú bara eftir að fá á sig tengil. Meiningin er nefnilega að koma rafmagni í þennan hluta garðsins. Innstungan er sunnan við, en vatnspumpan norðan við. Eða norð/vestan við.
Svo við þurfum að vera með leiðslu liggjandi alla leið frá skúrnum og yfir veröndina. Draga hana frá þegar slegið er og svo framvegis. Búið skrifa upp innkaupalista hvað vanti og farið verður í þetta um helgina næstu :)
Ég gekk frá horninu þar sem Efeuið var. Setti þar niður Clematis, sem fær svo falleg blóm á sumarin. Raðaði steinum í kring. Allt að verða voða pent. Klaus sló garðinn og hitt og þetta smávegis var gert.
Passaði kisa og við fórum í einn hjóltúr til Ahnsen að gefa honum. En svo var Klaus ekki í stuði fyrir meiri hjóltúra.
Hér eru allir úti að vinna í görðunum. Verið að setja nýja girðingu hjá gamla húsi Söndru. Renate gróf upp flotta Kirschlorbeer, sem fór illa í frostinu í vor. Út um allt er þessi runni illa farinn. Já, síðbúið frost er ekki gott.
Allt gott að frétta af Margréti. Bíð eftir fréttum af 1.maí ferðinn með Söru vinkonu hennar. Og Arnhildur farin í Hveragerði með Huldu, sem var að flytja í gamla húsið sitt.
Ég er svo að fara með einni úr kórnum, Anitu, til Hannover á eftir. Bara þvælingur á mér.
Jæja. Þá er víst að koma tími til að fara í vinnuna. Hafið það gott og það styttist í næstu helgi--frábært þegar vikan er svona stutt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Væri alveg til í að vinna smá með ykkur í garðinum og setja niður blóm :) En ég þarf allavega ekki lengur að öfunda ykkur um góða veðrið. Hér er glampandi sól og 20 stiga hiti.
Lol, Margrét
Væri svo til í hitann og sólina hjá ykkur :o) og að sjá fallega garðinn ykkar.
kveðja
Kristín E. í vinnunni, alveg að komast heim :D
ég væri bara til í sumar og blíðu hér er skítakuldi kveðja Þórdís
Hæ hæ. Vona að allt sé gott hjá ykkur og sumarið ekki yfirgefið ykkur! Hér ætlar árið í fyrra að endurtaka sig...nema hvað þið Margrét eruð því miður ekki á ferðinni til að gleðja okkur í kuldanum að þessu sinni.
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
kvitt kvitt, ást og knús þín Arnhildur
Mér gengur misvel að kvitta hér! Fermingarundirbúningur í gangi, væri gaman að hafa þig nær, en hlökkum mikið til að hitta þig í ´júní. Skype í klessu hjá okkur, væri sniðugt að fara til Kristínar í heimsókn, gætum þá báðar spjallað við þig :) Vikan verður eitthvað frekar klemmd, en ég læt þig vita hvenær ég get spjallað!!
Post a Comment